Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 9
tengslum við Kárahnjúkavirkjun. Viðskiptin hafa vaxið um 400%
og er áframhaldandi vöxtur fyrirsjáanlegur. Þetta hefur leitt til
þess að við höfum þurft að stækka við okkur þar og fjölga bæði
starfsfólki og bílum.“
Fyrirtækjasamningar
Hertz býður fyrirtækjum, sem eru í viðskiptum, sérstaka fyrir-
tækjasamninga. „Þetta eru aðgengilegir samningar, enda er það
stefna okkar að hafa hlutina klára og skýra. Þeir sem ganga í
fyrirtækjaþjónustu Hertzfá samningsverð sem gildir allt árið og
gerir það að verkum að allir útreikningar rekstrarkostnaðar
verða einfaldari fyrir leigutakana.
Eftir að við fórum að þjóna þessum
markhópi sérstaklega fyrir 4 árum hefur
hann vaxið um 500% og lætur nærri að
veltan frá innlendum fyrirtækjum vegi um
20% af heildarveltu okkar. Þessi
markaður er því mikilvægur og fer sí
stækkandi," segir Vilhjálmur sem segir
ýmislegt felast í samningnum annað en
gott verð.
„Þegar búið er að panta bílinn bíður
leigusamningurinn tilbúinn eftir leigu-
taka. Á veturna býður bíllinn upphitaður
þannig að viðskiptavinir fara inn í heitan bílinn.
Við sjáum einnig um að bóka bílaleigubíla erlendis fyrir fyrir-
tæki auk þess sem starfsmenn þeirra eiga þess kost að ganga í
„Hertz #1 Club Gold“ en það er Gullklúbbur Hertz. Þau fyrir-
tæki og einstaklingar sem eru í Gullklúbbi Hertz fá sérstaka
þjónustu hjá Hertz erlendis."
Hertz býður upp á allar stærðir og gerðir bifreiða, fólksbíla,
skutbíla, litía, meðalstóra og stóra jeppa, sendiferðabíla til flutn-
inga á vörum, sendiferðabíla með sætum fyrir 7-15 manns, auk
fullkominna húsbíla.
Öryggi í umferðinni í fyrirrúmi
Hertz hefur alla tíð lagt mikla áherslu á
öryggismál, enda er fyrirtækið með mjög gott
eftirlitskerfi og allir bílar fara í reglulegt eftirlit
auk þess sem allir jeppar og stærri bílar eru
skoðaðir sérstaklega fyrir hveija leigu. „Sem
dæmi má nefna að við höfum mun strangari
reglur varðandi slit á dekkjum heldur en
reglugerðir segja til um.
Við höfum einnig sýnt myndband um borð í flugvélum
Icelandair þar sem sérstaklega er varað við akstri á lausamöl og
við aðrar erfiðar íslenskar aðstæður."
Aukin þjónusta uið innlenda ferðamenn
Framleiðsla og útgáfa á nýjum geisladiskum undir nafninu
,Audio Explorer", sem Bílaleiga Flugleiða kom fram með fyrst
fyrir 3 árum, þykir einstök og hefur vakið athygli um allan heim.
Um er að íæða geisladiska sem farþegar í Hertz-bílum geta
hlustað á meðan ekið er um ákveðna landshluta. Á diskunum er
fyallað um sögu landsins, staðarhætti, menningu og kemur
sögumaðurinn inn á helstu áhugaverðustu staðina sem ekið
er fram hjá. Ásamt geisladisknum
fær leigutaki mjög veglegt kort af
svæðinu með leiðbeiningum. Auk
þess er hægt að njóta íslenskrar
tónlistar sem er á diskunum. „I dag
eru til þrír diskar, The Golden
Circle, South Shore og Reykjanes
Peninsula. Það liggur fyrir að þeir
verði endurgerðir auk þess sem við
ætlum að ráðast í það verkefni að
tjölga þeim. Við höfum gert áætlun
um framleiðslu diska sem heita:
• Go west - Snæfellsnes and beyond
• North Iceland, Akureyri-Mývatn
• Reykjavík City Guide
Fyrirhugað er að byija að framleiða þessa diska einnig á
íslensku fyrir íslendinga sem eru að ferðast um landið.
Með þessu viljum við veita viðskiptavinum okkar meiri og
betri upplýsingar um landið og gera ferðalög um það skemmti-
legri og meira fræðandi.“ SH
Lægsta verð á bílaleigubílum erlendis
„Fyrir rúmu ári fórum við að útvega almenningi bílaleigubfla hjá
Hertz erlendis. Það hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur í
þeim viðskiptum og langt umfram væntingar okkai'. í dag
bjóðum við mjög hagstætt verð erlendis, hvort sem fólk er að
fara til Evrópu eða til Bandaríkjanna. Þetta hagstæða verð hefur
einnig leitt til þess að flestar ferðaskrifstofur hafa kosið að útvega
bflaleigubíla í gegnum okkur, en þar má nefna söluskrifstofur
Icelandair, Heimsferðir, Úrval-Útsýn ogTerra Nova.“
í Bandaríkjunum býður Hertz upp á „never lost“ en það er
aksturstölva sem hjálpar mikið til þegar ekið er um ókunnar
slóðir.
Hertz Car Rental - Flugvallarvegur
101 Reykajvík - lceland
Sími: 50 50 600 - Fax: 50 50 650
www.hertz.is
9