Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 66
FRETTIR Umsjón: Guðrún Helga Sigurðardóttir
Elvar Ingimarsson auglýsingahönnuður er að hefja rekstur
Rossopomodoro, eða Rauða tómatsins, í húsnæði við
Laugaveg þar sem áður var Iðunnarapótek.
Mynd: Geir Ólafsson
Strax skotinn
Húsnæði Iðunnarapóteks er aftur komið í notkun, að
þessu sinni er það ekki apótek heldur ítalski veitinga-
staðurinn Rossopomodoro, eða Rauði tómaturinn, sem
kemur til með að lokka fólk með dýrindis pitsum, pasta og
öðru ítölsku góðgæti frá Napólí. Það er Elvar nokkur Ingi-
marsson auglýsingahönnuður sem hefur fengið einkaleyfi á
Norðurlöndum fyrir keðjuna og opnar fýrsta veitingastaðinn
á Laugavegi 40 i Reykjavík. Hann stefnir að því að opna
næsta stað í Kaupmannahöfn í haust og svo tvo staði til við-
bótar á hinum Norðurlöndunum næstu fjögur árin. Elvar
mun framselja einkaleyfið til annarra þannig að veitinga-
staðirnir geta risið eins og gorkúlur um öll Norðurlöndin á
næstu árum.
Hann er auglýsingahönn-
uður og rak stofu í
Mílanó en söðlaði um og
fékk einkaleyfi fyrir
ítölsku veitingastaðakeðj-
una Rossopomodoro á
Norðurlöndum. Hann er
þegar búinn að opna
fyrsta staðinn á Laugavegi
og opnar þann næsta í
Kaupmannahöfii í haust.
Tveir staðir til greina í Köben
„Ég bý í Mílanó og svona
staður var í nágrenni við mig
í fýrra. Ég varð strax skotinn
í þessari viðskiptahugmynd
enda var fólk mjög hrifið af
matnum og stemmningunni
sem er á þessum stað. Mat-
urinn er á góðu verði og
________________ stemmningn er skemmti-
leg. Fólk getur fengið sér að
borða og drekka fýrir lítinn pening. Þegar ég komst að því að
þetta væri keðja veitingastaða hafði ég samband við eigandann
í sumar, vann með þeim í mánuð og komst inn í þetta. Ég er
harður á því að þetta á eftir að virka mjög vel í Skandinavíu.
Italskt eldhús virkar mjög vel ef þetta er gert almennilega og
verðið er í góðu lagi,“ segir Elvar. Það er ekki ódýrt að hefja
rekstur nýrrar veitingahúsakeðju á íslandi. Kostnaðurinn er um
30 milljónir ffam að þessu. í Danmörku verður það ennþá
dýrara. Tveir staðir koma til greina, við Strikið og í nýrri versl-
unarmiðstöð sem verður opnuð í maí. Elvar fer utan fljótlega til
að velja og ganga frá samningum um húsnæðið. Elvar flutti til
Ítalíu iýrir átta árum, lærði þar auglýsingahönnun og markaðs-
setningu og opnaði eigin auglýsingastofu í Mílanó fýrir fimm
árum. Samkeppnin er gríðarleg í auglýsingabransanum á Ítalíu
og ekki batnaði það eftir 11. september 2001. Þá urðu tvær
stærstu auglýsingastofurnar gjaldþrota og grafískir hönnuðir
fóru í hrönnum að leita sér að vinnu. „Það voru allir tilbúnir til
að gera allt fýrir mjög lítinn pening,“ segir Elvar sem starfar í
dag sjálfstætt á Italíu ásamt tveimur samstarfsmönnum þar. Œi
Vitnað gegn Mörthu Stewart
Vitni, sem kallað hefur verið lýrir í
réttarhöldunum yfir bandaríska
fjárfestinum og innanhúss-
hönnuðinum Mörthu Stewart,
eiganda lífstílsfyrirtækisins Martha
Stewart Living Omnimedia inc., segir
að Martha Stewart hafi gefið grænt
ljós á söluna á hlutum sínum í líftækni-
fyrirtækinu ImClone Systems Inc.
eftir að hann hafi sagt henni að stofn-
andi fyrirtækisins væri að reyna að
selja sinn hlut.
Martha var kölluð fýrir rétt í
Bandaríkjunum í byrjun ársins ákærð
fýrir að hafa notfært sér innherjaupp-
lýsingar þegar hún seldi hluti sína í
líftæknifýrirtækinu ImClone Systems
Inc. skömmu áður en áríðandi tilkynn-
ing barst um að bandarísk lyfjayfirvöld hefðu hafnað aðallyfi
félagsins. Verðmæti sölu Mörthu var um 18 milljarðar króna
en gengi bréfanna hrapaði eftir þessa til-
kynningu.
Vitnið hélt því fram að hann hefði fengið
fyrirmæli frá yfirmanni sínum, Peter
Bacanovic, um að hringja í Mörthu Stewart.
„Við höfum engar upplýsingar um fyrir-
tækið en Peter hélt að þú vildir bregðast við
því að Sam Waksal væri að reyna að selja
sína hluti,“ sagðist vitnið hafa sagt við
Mörthu Stewart í símann. Hún hefði strax
lýst því yfir að hún vildi selja sína hluti.
Saksóknari hefur haldið því fram að
málið gegn Mörthu Stewart snerist um það
hvort hún hefði logið að yfirvöldum eða
ekki, hagrætt sönnunargögnum og svikið
fjárfesta á hlutabréfamarkaði eða ekki. Veij-
endur Mörthu Stewart hafa hins vegar
haldið fram sakleysi hennar, það hafi verið
löngu ákveðið að hún myndi selja ef gengið færi niður fýrir
ákveðið mark eins og gerðist þennan dag. SS
Bandaríski fjárfestirinn og athafna-
konan Martha Stewart hefur verið
kölluð fyrir rétt í Bandaríkjunum til
að svara ásökunum um að hafa
nýtt sér innherjaupplýsingar með
ólögmætum hætti.
66