Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 74
Rósbjörg
Jónsdóttir,
verkefnastjóri
Ráðstefnuskrif-
stofu íslands
m
Ráöstefnuskrifstofa íslands:
Island - Mestur vöxtur
í ráðstefnuhaldi í Evrópu
á síðustu 10 árum
Ráðstefnuhald er sá þáttur ferðaþjón-
ustunnar sem er í hvað mestri sókn í
heiminum og talið er að markaður-
inn velti um 300 milljörðum Bandaríkja-
dala á ári. Talið er að hluti íslands geti
verið allt að 45 milljónir Bandaríkjadala og
við stefnum markvisst að því að auka
hann,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir, verk-
efnastjóri Ráðstefnuskrifstofu íslands.
173% AUKNING í RÁÐSTEFNUHALDI Á 1D ÁRUM Með aukinni
alþjóðavæðingu hefur þörf fyrir fundi, ráðstefnur og ýmsa
viðburði vaxið verulega. Frá stofnun Ráðstefnuskrifstofu
Islands hefur verið unnið markvisst að kynningu á íslandi sem
ráðstefnulandi og bættri aðstöðu og þjónustu við ráðstefnugesti.
„Það er því ánægjulegt að niðurstöður UIA, Union of
International Association, sem árlega tekur saman tölulegar
upplýsingar um ijölda og þróun funda í heiminum, sýna að
ísland er hástökkvari í Evrópu með 173% aukningu, þegar horft
er yfir árangur síðustu 10 ára. í þessum tölum er miðað við
ráðstefnur með 300 gesti að lágmarki, 40% þátttakenda eru
erlendir gestir frá a.m.k. fimm þjóðum og lágmarksdvöl er þrír
dagar,“ segir Rósbjörg. „Síðastliðin tiu ár hafa margir samverk-
andi þættir orðið til þess að landslagið í
þessum efnum hefur þróast til betri vegar
hér á landi. Allur aðbúnaður til ráðstefnu-
halds er orðinn betri, hótelrými hefur
aukist sem og afreyingarmöguleikar og
allar tæknilegar útfærslur.“
HÖRO SAMKEPPNI Rósbjörg bendir á að
samkeppni á þessum markaði verði sífellt
harðari enda hafi ráðstefnuhald aukist um
allan heim. „Við mætum stöðugt auknum kröfum viðskipta-
vina sem þannig ráða ferðinni. Standist aðbúnaður og þjónusta
ekki væntingar fara þeir einfaldlega eitthvað annað. Með stöð-
ugum endurbótum á innviðunum verðum við samkeppnis-
hæfari og betur í stakk búin að viðhalda áframhaldandi vexti.“
Ráðstefnuskrifstofan er aðili að ICCA, International
Conference & Convention Association, og á þeim vettvangi er
hægt að fylgjast með árangrinum frá ári til árs. „Þar má t.d. sjá
að Norðurlöndin eru í sókn, ef tekið er mið af fjölda funda;
Finnland og Svíþjóð eru á lista yfir 10 efstu löndin og Danmörk
og Noregur komast inn á listann yfir 20 efstu löndin,“ segir hún
en bendir jafnframt á að þegar skoðuð séu viðmið ICCA varð-
andi fjölda funda sé heildarmarkaðshlutdeild íslands á heims-
RSÍ hvetur alla væntanlega
ráðstefnugestgjafa til að nýta
sér þá þjónustu og þekkingu
á ráðstefnuhaldi sem fyrir
hendi er meðal fagaðila.
www.icelandconvention.com
74