Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 117
Þegar kenna á opinbera framkomu í ræðustól og
sjónvarpi skiptir miklu máli að hafa reynslu. María
Ellingsen leikkona, sem kennir á námskeiðum hjá
IMG, hefur slíka reynslu til að bera en hún hefur ekki aðeins
lært leiklist, heldur einnig unnið við sjónvarp og blaða-
mennsku og getur því sótt í marga brunna.
„Eg hef kennt ræðumennsku og framkomu í sjónvarpi
síðastliðin 2 ár,“ segir María sem þessa dagana er mest
heima við og sinnir þar nýfæddu barni sínu. „Það er
ótalmargt úr leikhúsinu sem hægt er að nota, og þegar
kemur að vinnslu texta kemur blaðamennskan að góðu
gagni og svo þekki ég sjónvarpsformið mjög vel. Þessi
námskeið eru fyrir 10-15 manns í einu og við förum í
gegnum þá lykilþætti sem lúta að því að koma fram opinber-
lega. Þetta er verklegt námskeið, enda læra menn mest á því
að prófa hlutina. Það er upptökuvél á staðnum svo að þátt-
takendur geta séð og metið hvernig þeir koma út og bætt og
breytt því sem þeir eru ekki sáttir við.“
FRAMKOMA, ORÐ 0G ATHÖFN Sviðsskrekkur er nokkuð
sem flestir eiga sameiginlegt þegar kemur að opinberri fram-
komu og getur verið slíkur þröskuldur að sú dýrmæta
þekking sem menn vilja miðla fer fyrir ofan garð og neðan.
Þeim vefst tunga um tönn, röddin brestur og þeir fela sig á
bak við power point glærur og snúa baki við áheyrendum
eða grúfa sig niður í nóturnar sínar, hiksta og stama. Við
FUNDIR OG RAÐSTEFNUR
María Ellingsen hefur mikla reynslu af framkomu í sjónvarpi
og á sviði. Hún deilir þeirri reynslu með þátttakendum á
námskeiðum IMG.
Framkoman skiptir máli
byijum á því að nýta okkur gamalkunn ráð úr
leikhúsinu til að yfirstíga þessa hræðslu. Öll
þekkjum við svo löngu leiðinlegu ræðurnar
þar sem aðalatriðin drukkna í smáatriðum og
málalengingum og eru lesnar eintóna beint
upp af blaðinu þar til allir áheyrendur eru
sofnaðir eða farnir að hugsa um innkaupa-
listann. Til að stemma stigu við þessu er kafli á námskeiðinu
þar sem farið er sérstaklega í textagerð og svo í beinu fram-
haldi er útskýrt hvernig flytja má textann á lifandi og
áhrifamikinn hátt. Þar eru lykilatriði sannfæringarkraftur,
rödd, framsögn, líkamsstaða og síðast en ekki síst útgeislun.
GOÐUR UNDIRBÚNINGUR NAUÐSYNLEGUR „Þegar kemur
að sjónvarpsviðtölum skiptir máli að þekkja formið og
tímarammann sem þú gengur inn í,“ segir María. „Þú þarft
að undirbúa þig vel og vera með aðalatriði málsins á hreinu
því að sjónvarp býður ekki upp á að þú takir þér tíma í að hita
þig upp og hugsa málið. Þú þarft að geta komið
þínu máli á framfæri hratt og vel svo þú lendir
ekki í því að búið sé að þakka þér fyrir og
kveðja áður en þú hefur sagt nokkuð. Önnur
atríði, eins og klæðaburður, skipta líka máli til
að koma vel fyrir.“
Það hentar ekki öllum að vera í hópi og því
er einnig boðið upp á einkatíma hjá IMG þar sem María
ásamt upptökumanni og fréttamanni vinna með viðkomandi
einstakling í heilan dag. „Þetta er fyrir þá sem eru í forsvari
fyrir sín fyrirtæki eða talsmenn þegar stórviðburðir verða.
Þetta fólk þarf að koma fram í fjölmiðlum með skömmum
fyrirvara og oft undir miklu álagi eins og þegar áföll verða og
þá getur það skipt sköpum að vera tilbúinn með áætlun og
vera í góðri þjálfun. Það er dýrt að byggja upp jákvæða
ímynd fyrir fyrirtæki sitt og hana þarf að vernda þegar áföll
verða með því að bregðast rétt við. Á svona degi er stíft
prógramm og fólk tekur gífurlegum framförum." BU
Sjónvarp er óvæginn
miðill og sjaldan
gefst tími til að hugsa
sig um í viðtali sem
sent er beint út.
117