Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 103
FUIMDIR OG RAÐSTEFNUR
tyjamenning
Umdæmisþing Rótarý er haldið árlega á vegum þess klúbbs
sem umdæmisstjóri tilheyrir hveiju sinni. Síðasta sumar,
árið 2003, var umdæmisstjóri Sigurður Símonarson í
Vestmannaeyjum og þingið þvi haldið þar. Það er óhætt að
fullyrða að kraftar klúbbfélaga ha£ verið nýttir til fulls við undir-
búning þingsins og voru gestir á einu máli um að sérlega vel
hefði tekist til.
„Við hófum undirbúning strax að afloknu þinginu á
Mývatni," segir Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri, sem var for-
seti Rótarýklúbbs Yestmannaeyja í iyrra. „Klúbburinn okkar er
ekki stór frekar en Húsavíkurklúbburinn og okkur fannst við
geta miðað við þau, þó svo metnaðurinn stæði til að gera enn
betur en Arbæingar sem héldu þing árið á undan. Við sáum þó
að það gætum við ekki kostnaðarins vegna, en ákváðum að
leggja áherslu á það mannlif og lífsgleði sem einkennir Vest-
mannaeyjar. Klúbbfélagar skipuðu sér í þijár nefndir: undir-
búningsnefnd, ritnefnd og Jjáröflunarnefnd. Allir klúbbfélagar
voru því virkir í skipulagningu og undirbúningi þingsins.
Þema þingsins var Eyjalíf - fólk - náttúra og saga. Mark-
miðið var að gestirnir fengju að kynnast því hvernig það er að
búa í Eyjum. Stórbrotinni náttúru Eyjanna, gestrisni Eyja-
manna og Eyjamenningunni sem aðeins fáir þekkja en margir
hafa heyrt um. Allt skipulag miðaðist við það, við fléttuðum
saman dagskrá og frítíma og notuðum hvert tækifæri til að
kynna Eyjarnar. Þjónustuhugsjónin er höfuðmarkmið Rótarý
og við lögðum mikla áherslu á að allt sem gert var, skemmti-
dagskrár, fyrirlestrar, öll ráðstefnugögn, blaðið og annað sem
unnið var, væri gert í bænum og þannig myndi Vestmanna-
eyjabær njóta óbeint góðs af þinginu.“
FRÁBÆR FUNDUR „Eitt af því sem við gerðum til að gera
þingið eftirminnilegt og öðruvísi var að halda Rótarýfund í
Herjólfsdal, en hann er í hugum Eyjamanna nánast helgur
staður enda myndar hann stórbrotna umgjörð um helstu hátíð
Eyjanna, þjóðhátíðina," segir Halldóra.
I dalnum var komið upp stóru tjaldi og gestir sátu á tré-
bekkjum, ekki ósvipað því sem gerist á þjóðhátíð. Þetta var
hátíðarfundur með hátíðardagskrá en um leið skemmtidag-
skrá sem verður lengi í minnum höfð. Sigurgeir Jónsson flutti
í Herjólfsdal ríkti nánast
þjóðhátíðarstemmning í júní
sl.þegar þar var haldinn einn
alskemmtilegasti Rótarý-
fundur sem sögur fara af.
fundarmönnum pistil um
þjóðhátíð og undirbúning
hennar. Einar Hallgrímsson
spilaði á gítar og stjórnaði
íjöldasöng þar sem m.a þjóð-
hátíðarlögin voru sungin hátt og snjallt. Jafnframt dró hann
ýmsa valinkunna Rótarýmenn upp á svið og kynnti gestum lítt
þekkta hæfileika þeirra. Þar á meðal má telja þá Olaf Helga
Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og Sigurð Símonarson
sem sungu sig inn í hjörtu áheyrenda.
„Við ákváðum í upphafi að halda okkur við tímaramma
fundarins, þó svo gestirnir væru ljóslega tilbúnir til að vera
lengur á þessum skemmtilega fundi," segir Halldóra „Veðrið
lék við okkur og margir gestanna fóru niður í bæ þar sem víða
var glatt á hjalla.“
SKDÐUNARFERÐIR í samræmi við þema þingsins var kynnt
bæði saga og náttúra Eyjanna og þar á meðal gosið. „Eg var
mjög ánægð með hvernig kynningin heppnaðist," segir Hall-
dóra. „Sumum þótti við djörf að ætla að láta gestina ganga á
Eldfellið en að sama skapi þótti vel til fundið að vera með
óvæntar veitingar við rætur fellsins og ekki síður frábær frá-
sögn Bibba í Straumi (Friðbjörns Valtýssonar) þar sem hann
sagði frá reynslu sinni og sinnar Jjölskyldu af gosinu. Þá kom
enn í ljós hve þræðir Rótarý liggja víða, því í áheyrendahópn-
um reyndist vera Rótarýmaður sem hafði á sínum tíma tekið á
móti honum þegar hann kom upp á land og útvegað honum
vinnu. Þarna urðu sem sagt skemmtilegir endurfundir.“
Allar veitingar voru sérvestmanneyskar ef svo má að orði
komast. Veitingamennirnir Simmi og Grimur í Höllinni bjuggu
til gott sýnishorn af þeim mat sem framleiddur er í Eyjum. A
hátíðarkvöldverðinum var t.d. grafinn lundi í forrétt, þó ekki
væri lundaveiðitímabil. „Þegar við lítum til baka, er okkur fyrst
og fremst gleði og þakklæti í huga,“ segir Halldóra. „Það
lagðist allt á eitt með að gera þingið eftirminnilegt og gott,
frábær samvinna klúbbfélaganna í Eyjum, jákvæðni og gleði
þinggesta ásamt dásamlegu veðri og síðast en ekki síst framlag
allra þjónustuaðila í Eyjum þar sem fóru fremstir á meðal jafn-
ingja Grimur og Simmi í okkar glæsilegu ráðstefnuhöll." S!j
Nokkrir valinkunnir Rótarýmenn skoða Gestir á frábærum Rótarýfundi í Herj- Garðurinn í hrauninu skoðaður.
varnir Vestmannaeyja. ólfsdal.