Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 83
Icelandair Hotels:
Uinna og uellíðan á lcelandair hótelum
NORDICA HOTEL
Nýjasta hótel Icelandair hótela er Nordica hótel við Suður-
landsbraut. Nordica er frábær vettvangur fyrir ráðstefnur, inn-
lendar og erlendar, enda er þar fullkomnasta ráðstefnuaðstaða
landsins og þó víðar væri leitað.
Fyrir utan frábæra fundaaðstöðu og lúxusherbergi, er á
Nordica heilsulindin Nordica Spa, sem veitir fyrsta flokks
þjónustu í afslöppuðu og þægilegu andrúmslofti. Heitir pottar,
gufuböð og sauna er gestum til þæginda og slökunar en
einnig er boðið upp á herðanudd í heitu pottunum ásamt
fyrsta flokks líkamsmeðferð við allra hæfi.
Á Nordica er veitingastaðurinn Vox, sem býður klassíska
evrópska matargerð. Yfirmatreiðslumaður er Hákon Már
Örvarsson en hann tók þátt i hinni þekktu Bocuse d'Or mat-
reiðslukeppni og vann þar til bronsverðlauna. Hægt er að velja
á milli a la carte og bistromatseðils.
LOFTLEIÐIR
Icelandair Hotels er keðja 22 hótela sem eru að finna víða um
land. Öll hótelin bjóða upp á fullkomna funda- og ráðstefnu-
aðstöðu.
Á Hótel Loftleiðum eru 220
herbergi og 14 glæsilegir salir
sem allir eru búnir fullkomnum
tækjakosti til ráðstefnu- og veislu-
halds. Þrautþjálfað starfsfólk Loft-
leiða, sem á sér langa og farsæla
sögu, sér um að allt gangi snuðru-
laust fyrir sig. Á hótelinu er sund-
laug og heitur pottur þar sem
gestir geta slakað á. I næsta
nágrenni er Öskjuhlíðin, tilvalin til
gönguferða og útsýnisferða og
stutt er í ylströndina í Naut-
hólsvík.
LANDSBYGGÐIN
Af hótelum á landsbyggðinni má nefna Hótel Flúðir þar sem
eru tveir funda- og veislusalir auk þess sem hótelið hefúr til
afnota ijóra aðra funda- og veislusali sem eru í göngufæri við
hótelið. Allur búnaður til ráðstefnu- og fundahalda er til staðar.
Hótelið á Kirkjubæjarklaustri sem er kjörið til fundarhalda.
Aðalsalurinn tekur allt að 150 manns í sæti og minni salirnir
henta sérlega vel fyrir einkasamkvæmi og fundi. Auk hótelsal-
anna stendur mönnum til boða að fá til afnota fundarsalinn í
félagsheimilinu á Klaustri.
í Keflavík er Flughótel þar sem er stór veitingasalur og
tveir ráðstefnusalir. Sá stærri hentar allt að sextíu manns en
hinn minni er fyrir fimmtán manna hóp.
Ef ætlunin er að fara austur á land liggur beint við að nota
Hótel Hérað sem býður upp á margvíslega þjónustu við ráð-
stefnuhaldara. Á hótelinu eru 3 - 4 fundasalir, mjög vel búin
salur sem rúmar 40 - 50 manns, einnig skiptanlegir salir sem
rúma frá 12 til 100 manns. Að sjálfsögðu er allur helsti tækjabún-
aður til reiðu hér. Starfsfólk er alltaf til staðar til að tryggja að
þinghald, ráðstefnur og veitingar gangi hnökralaust fyrir sig.
VEIÐIHÚS 0G HÓTEL
Hótel Rangá er hlýlegt hótel í
bjálkastíl og býður upp á öll þau
þægindi og þjónustu sem vænta má
af fyrsta flokks hóteli. Hótelið er
staðsett á bökkum Eystri Rangár á
Suðurlandi, í aðeins um 90 mínútna
akstursijarlægð frá Reykjavík.
Hestamennska, golf, veiði-
mennska, gönguferðir, fjallaferðir
og skoðunarferðir, allt er þetta í
örskotsfæri við hótelið sem jafn-
framt býður upp á fullkomna funda-
og ráðstefnuaðstöðu. SH
Á HEIMASÍÐU ICELANDAIRHÓTELS, WnAHW.ICEHOTELS.IS ER AÐ FINNA GREINARGÓÐAR UPPLÝSINGAR
UM HÓTELIN, STAÐSETNINGU OG BÚNAÐ. HÆGT ER AÐ SENDA FYRIRSPURNIR Á
C0NFERENCE@ICEH0TELS.IS OG RÉ^ ER AÐ BENDA Á AÐ STÖÐUGT ERU TILBOÐ í GANGI Á SÍÐUNNI.
83