Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 104
Inga Sólnes, eigandi og framkvæmdastjóri Gestamóttök-
unnar.
FUIMDIR OG RÁÐSTEFIMUR
VAXANDIEFTIRSPURN Inga segir að ferðaþjónustan breytíst
hratt. „Maður þarf alltaf að vita hvað er að gerast og fylgjast vel
með öllum nýjungum á sviði afþreyingar, gistingar og þess sem
í boði er um allt land. Fyrirtækjum er að Jjölga í þessum geira en
eftírspurnin eftír þjónustu okkar fer sífellt vaxandisegir Inga,
en hjá henni vinna alls þrír starfsmenn og fleiri eru kallaðir til
þegar mikið liggur við. „Það er ekkert verkefni of litíð eða of
stórt fyrir Gestamóttökuna. Við sjáum jafnt um Jjölmennar
ráðstefnur sem litla fundi. Okkur finnst starfið skemmtílegt,
það er gaman að skipuleggja og veita ráðgjöf varðandi undirbún-
ing á hvers kyns afþreyingu og fundahöldum. Þetta er líflegt
starf og þjónustuviljinn verður að vera í Jyrirrúmi enda hafa
viðskiptavinir okkar verið mjög ánægðir með árangurinn. Það er
mikilvægt að geta veitt sérhæfða og persónulega þjónustu þvi
þetta snýst jú allt um fólk og upplifun þess.“
Þegar Inga stofnaði Gestamóttökuna voru ekki mörg iýrir-
tæki í eigu kvenna í ferðaþjónustu, jafnvel þó að konur hafi ætíð
verið í miklum meirihluta sem starfsmenn þessara Jýrirtækja.
„Reynsla mín af ferðaþjónustu er orðin löng en ég byrjaði sem
Gestamóttakan:
Klæðskerasaumuð þjónusta
Minn aðall hefur alla tíð verið sá að bjóða
persónulega þjónustu og fylgja hlutunum
eftír frá A-Ö,“ segir Inga Sólnes, eigandi
og framkvæmdastjóri Gestamóttökunnar ehf.,
sem er til húsa í gömlu og vinalegu húsi á horni
Bankastrætís og Ingólfsstrætís.
Gestamóttakan sér um stóra og smáa fundi
og ráðstefnur auk hvataferða. „Við höfum verið með allt að 500
manna ráðstefnur, þ.m.t. norræna fundi, á vegum ýmissa
stofnana. Norrænum ráðstefnum hér á landi er alltaf að Jjölga,
ekki síst í ár þar sem Island er með formennsku í Norðurlanda-
ráði. Enda eru mörg skemmtíleg verkefni fram undan," segir
Inga. „Gestamóttakan var stofnuð íýrir tæpum níu árum og var
upphafleg Jyrirmynd að stofnun hennar það sem Bretar kalla
„Hospitality Services" eða sérhæfð móttaka gesta. Einnig
höfum við sérhæft okkur í alls kyns þjónustu við móttöku gesta
hjá fyrirtækjum og stofnunum, eins konar „VIP-þjónustu“. Við
sjáum þá um allan pakkann, allt frá því að sækja á flugvöllinn
og skipuleggja hvers kyns kynnisferðir og afþreyingu yfir í að
skipulegga fúndi, finna rétta staðinn, hvort heldur er í Reykja-
vik eða útí á landi, og yfirhöfuð að aðstoða við dagskrá og alla
umgjörð fundarins. Þá má ekki gleyma því að í ferðaþjónustu
eins og öðrum atvinnugreinum íleygir tækninni fram og nú er
mikilvægt að geta boðið upp á fullkomið skráningarkerfi sem
heldur utan um þátttökuskráningu og upplýsingar ásamt því að
bjóða upp á rafræna skráningu á Netinu. Við setjum einnig upp
sérstakar heimasíður Jýrir hverja ráðstefnu Jýrir sig, enda
sparar það prentkostnað og býður upp á örari upplýsingar
varðandi viðkomandi atburð.“
leiðsögumaður og fékk ómetanlega reynslu af að
ferðast með erlendum gestum hringinn í kringum
landið. A þessum árum lærði ég að meta þetta
góða land og skynja það sem útlendingarnir sáu.
Eg vann svo um skeið hjá þá nýstofnaðri Upplýs-
ingamiðstöð ferðamála í Reykjavik og síðan hjá
Ferðamálaráði íslands. Um nokkurra ára skeið
var ég svo framkvæmdastjóri Vestnorden, sem er samstarf
Islands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála," segir Inga.
MIKIL GROSKA Inga segir gróskuna í ferðamálum mikla og
gaman að fylgjast með þróun mála. „ísland hentar sérlega vel
tíl hvataferða og það þykir spennandi kostur. Það er ljóst að
erlendir gestir leggja nú meiri áherslu á að taka þátt í afþrey-
ingu þar sem þeir gera eitthvað sjálfir, s.s. gönguferðum, jökla-
ferðum og hestnferðum, að ógleymdum heitum laugum og
sundlaugunum sem ég beinlinis hvet alla til að prófa, enda fer
fækkandi ferðum þar sem aðeins er um að ræða að aka í rútum
og skoða. Þetta er góð þróun og gefur þeim sem bjóða afþrey-
ingu möguleika á að nýta sér kosti landsins og sérstöðu hvers
staðar fyrir sig.“ Merki Gestamóttökunnar er holtasóley og má
sjá hana á bréfsefni og heimasíðu fyrirtækisins. „Holtasóley,
sem er af rósaætt, er í mínum huga blóm íslands," segir Inga.
„Það eru varla margar jurtir íslenskari en hún, harðgerð, vex
þar sem veikbyggðari plöntur vaxa ekki og gæti þess vegna
verið persónugervingur þjóðarinnar. A sama hátt er Gesta-
móttakan íslensk, býður erlendum gestum að njóta þess besta
sem Island hefur upp á að bjóða og þróast og þroskast í sam-
ræmi við aðstæður og umhverfi." 33
Móttaka erlendra
gesta, hvort sem þeir
koma margir eða fáir,
krefst fagmennsku
og þekkingar.
104