Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 128
FOLK
„Golfið reynum við að stunda eins og tími gefst til," segir Guðmundur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri ISS íslands ehf. Mynd: Geir Ólafsson
því að stækka markaðinn.
„Við erum með starfsemi um
allt land og ætlum okkur að
vaxa með breiðara þjónustu-
framboði." Hjá ISS á íslandi
starfa um 630 manns á 13
stöðum á landsbyggðinni,
þar af eru 120 manns á
Norðurlandi.
Guðmundur er kvæntur
Ruth Sigurðardóttur hjúkr-
unarfræðingi og eiga þau
tvær dætur, 14 og 20 ára en
tjölskyldan býr í Garðabæ.
Ferðalög eru ofarlega á vin-
sældalistanum hjá Guð-
mundi og Ruth og reyna þau
að nota sumarið til ferðalaga
innanlands. Þá kemur felli-
hýsi þeirra að góðum notum
Guðmundur Guðmundsson,
Iramkvæmdastióri hjá ISS
Eftir ísak Örn Sigurðsson
Guðmundur Guðmunds-
son er framkvæmda-
stjóri ISS íslands ehf.
Hann útskrifaðist sem véla-
og rekstrarverkfræðingur frá
HI 1981 og tyrstu tvö árin
vann hann hjá Plastprenti,
síðan hjá Landssambandi
iðnaðarmanna og Samtökum
iðnaðarins þar sem hann var
um 9 ára skeið.
„Eftir að hafa starfað í um
10 ár fór ég í mastersnám í
verkfræði til Michigan í
Bandaríkjunum. Það var gam-
all draumur, sem ég sé ekki
eftir að hafa látið rætast, það
er gott að endurmennta sig á
10 ára fresti og í anda þess
ákvað ég í tyrra að heija aftur
MBA (fjar)nám í tengslum við
starf mitt hjá ISS. Ég hef lokið
tæpu einu ári af þremur í
Henley Management College
128
í Englandi, jafnhliða starfi
mínu hjá ISS,“ segir Guð-
mundur.
Árið 1996 varð Guð-
mundur aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Securitas og í
janúar árið 2000 varð hann
framkvæmdastjóri hjá ISS
Island ehf., þegar alþjóða-
íyrirtækið ISS hóf starfsemi
á Islandi. „Þessi alþjóðlega
tenging gefur okkur aðgang
að alþjóðlegri reynslu og
þekkingu."
Markmið ISS er að vera
leiðandi þjónustufyrirtæki
sem skapar viðskiptavinum
og starfsmönnum vellíðan og
losar viðskiptavini undan
áreiti sem tilheyrir ekki
þeirra kjarnastarfsemi.
„Nútímaræsting er fag, með
öllum þeim efnum og
aðferðum sem til eru til að
þrífa gríðarlega fjölbreytt
efnisval innanhúss. Þetta er
viðurkennt víða erlendis. í
sjávarútvegi höfum við heyrt
frá viðskiptavinum okkar, að
þegar erlendir viðskiptavinir
þeirra koma og sjá að ISS sér
um þrifamál, er ekki spurt
frekar. Viðskiptavinirnir
þekkja þetta alþjóðlega vöru-
merki.“
„ISS Island er nú með fjöl-
margar nýjungar, svo sem
tölvu- og tækniþrif, þrif á loft-
stokkakerfum, matar-, kaffi-
stofu- og lóðarumsjón og
þannig mætti áfram telja. I
ágúst nk. byrjum við á okkar
fýrsta svokölluðu „Facility
Service" verkefni, í Nýsköp-
unar og rannsóknarhúsi
Háskólans á Akureyri. Þar
sjáum við um allan rekstur
húsnæðisins að innan og þar
með talið allt viðhald, í 25 ár.
I þessum geira atvinnulífs-
ins er mikil samkeppni. ISS
Island hefur einbeitt sér að
og öll tækifæri notuð sem
gefast.
„Golfið reynum við að
stunda eins og tími gefst til
sem því miður er allt of
sjaldan. Nýjasta áhugamálið
hjá okkur hjónunum eru
mótorhjól. Ég keypti mér á
sínum tíma 27 ára gamla
Hondu í toppstandi sem ég
notaði lengi vel, en fékk
reyndar nýtt BMW-mótor-
hjól í sumar. Ruth tekur
virkan þátt í þessu og hefur
átt mótorhjól í tvö ár. Það
voru margir hissa á því þegar
hún fékk sér hjól, en hún
hefur lítinn áhuga á þvi að
vera hnakkaskraut hjá mér.
Hingað til hafa ferðalögin á
mótorhjóli einskorðast við
Island, en það er í framtíðar-
áætlunum að fara í mótor-
hjólaferð til útlanda. Frábært
áhugamál iýrir hjón,“ segir
Guðmundur að lokum. BIl