Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 86
Radisson SAS Hótel Saga:
Frábæn til funda
Það hvílir
einhver sjarmi
yfir svæðinu
í kringum
Hótel Sögu.
Kannski er það menntasjarmi sem
stafar af nálægð háskólabygging-
anna eða þá að minningar liðinna
tíma vakna upp við að koma þar sem eitt
sinn voru spilaðir stórir fótboltaleikir og
fjöldi fólks finnur tíl skyldleika við
staðinn.
Hótel Saga hefur vaxið og stækkað með árunum. Það var
opnað árið 1962 og hefur allar götur síðan verið íbúum borg-
arinnar og ekki síður utanbæjarfólki staður þar sem ganga
mátti að fyrsta flokks þjónustu og veitingum sem vísum.
Byggt var við hótelið árið 1987 og það nær tvöfaldað að
stærð. Nú eru í hótelinu níu fundarsalir sem rúma allt frá 20 til
400 manns en ekki má gleyma Súlnasalnum, þeim fræga sal,
sem rúmar allt að 800 manns í móttöku.
FYRSTA FL0KKS „Við leggjum gríðarlega mikla áherslu á að
þjónustan og aðstaðan sé fyrsta flokks og í samræmi við þessa
góðu byggingu sem allir þekkja,“ segir Kristján Daníelsson,
sölu- og markaðsstjóri Radisson SAS hótelanna á íslandi. „Hér
er þráðlaus nettenging, tæknimaður til aðstoðar ef með þarf,
Skrifað var undir samning milli Háskóla íslands og Radisson
SAS hótels Sögu nýlega.
SATTMALI UM FRAMGOIMGU Nýlega tóku
Radisson SAS hótelin upp samstarf við MPI
(Meeting planner International) en það eru
samtök fundaskipuleggjenda.
„Þetta eru stærstu samtök sinnar teg-
undar í heiminum og þau hafa lagt línurnar
hvað skipulagningu funda áhrærir," segir
Kristján. „Til þess að svo sé þarf að þjálfa allt starfsfólk upp í
ákveðna þjónustustaðla og ekkert hótel fær viðurkenningu
MPI fyrr en það hefur verið uppfyllt.
STAÐLARIMIR, SEM RAUNAR HAFA VERIÐ KALLAÐIR
„L0F0RÐ UM FRAMGÖNGU", ERU ÞESSIR:
1. Starfsfólk lofar 100% fagmennsku í því að sjá til þess að
viðskiptavinir fái bestu mögulega þjónustu hveiju sinni.
2. Hótelið skuldbindur sig tíl þess að tryggja 100% að sú
þjónusta, sem veitt er, sé sú sem óskað er eftír.
3. Viðskiptavinum er lofuð 100% umhyggja, því ljóst er að
mjúk og mannleg gildi þarf að tvinna saman við staðlaða
framgöngu.
4. Lofað er 100% tryggingu fyrir því að viðskiptavinir séu
100% ánægðir með alla þætti og sé eitthvað ekki eins og
viðskiptavinur telur að það eigi að vera, er hann beðinn
um að greina frá því svo hægt sé að lagfæra það sem
aflaga fór.
SAMSTARF VI0 HÍ Fyrir stuttu tóku Radisson SAS hótel Saga
og Háskóli íslands upp samstarf sem felst í því að hótelið tekur
að sér alla sölu- og markaðssetningu á funda- og ráðstefnu-
sölum Háskóla Islands þann tíma sem húsnæðið er ekki nýtt
undir kennslu, kvikmyndasýningar eða starfsemi Sinfóníu-
hljómsveitar Islands. „Þarna er um að ræða sex sali í Háskóla-
bíói sem bjóða upp á sæti fyrir 100-900 manns, kennslustofur í
Lögbergi og Odda auk funda- og fyrirlestrasala í hinu nýja
Náttúrufræðahúsi," segir Krislján. „Við munum endurnýja allt
kynningarefni og sameina það bæklingum okkar auk þess sem
við setjum salina inn í sölukerfi okkar. Það er Ijóst að þetta sam-
starf er báðum aðilum tíl góðs því nú getur hótelið boðið upp á
mun stærri funda- og ráðstefnuaðstöðu en áður. Háskólinn fær
betri nýtingu á húsakostí sínum auk þess sem fagaðili sér um
markaðs- og sölustarf innanlands sem utan. Viðskiptavinir
okkar munu njóta þess að hafa þarna alla þætti á sama stað.“ BS
FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR
Kristján Daníelsson, sölu- og markaðs-
stjóri Radissons SAS hótels Sögu.
tveir veitingastaðir og starfsfólk okkar ávallt
boðið og búið.“
I kjallara hússins er heilsulindin Mecca
Spa þar sem gestir hótelsins geta látíð vel um
sig fara og slakað á eftír erfiði dagsins. Þar
eru hárgreiðslustofur, boðið upp á nudd og
snyrtingu og auðvitað heitir pottar og gufa.
86