Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 42
SALAN A BRIMI
Þessir sýndu
áhuga á Brimi
ÚA
• Skinney-Þinganes og Aðalsteinn Ing-
ólfsson, framkvæmdastjóri þess.
• Rifsfeðgar; Kristján Guðmundsson,
Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir.
• KEA, Andri Teitsson framkvæmdastjóri
KEA og Afl Þorsteins Vilhelmssonar
fjárfestis. Með í því var Styrmir Braga-
son, framkvæmdastjóri Afls.
Skagstrendingur
• Fiskiðjan Skagstrendingur, Heima-
menn á Skagaströnd ásamt Þormóði
ramma og framkvæmdastjóra þess,
Eiríki Tómassyni.
• Guðrún Lárusdóttir og Ágúst G. Sig-
urðsson, eigendur Stálskipa, sendu inn
tilboð ásamt tveimur ungum og lítt
þekktum mönnum, Steingrími Erlings-
syni útgerðarstjóra og Finni Harðar-
syni, framkvæmdastjóra útgerðarfyrir-
tækisins Bjamars á Seltjarnamesi.
• Heimamenn með Þormóði ramma og
Eiríki Tómassyni framkvæmdastjóra.
HB
• Grandi og HB fjölskyldan.
• Rifsfeðgarnir Kristján Guðmundsson
og Guðmundur og Hjálmar Kristjáns-
synir.
• BP Skip og Björgvin Úlafsson, fram-
kvæmdastjóri BP Skipa, skilaði inn til-
boði fyrir hönd nokkurra fjárfesta, þar á
meðal Sveins Sturlaugssonar í HB fjöl-
skyldunni.
• Sandgerðisbær. Hafði áhuga á að
brjóta fyrirtækið upp og flytja veiði-
heimildir til Suðumesja.
Talið var að ísfélagið, TM og HB fjölskyld-
an myndu skoða saman kaup á HB, hugs-
anlega Straumur líka, en ekkert varð úr
slíku. TM kom hins vegar inn í kaupin á
Granda með HB fjölskyldunni.
PERSÚNUR
OG LEIKENDUR
Þrír menn skipuðu viðræðunefnd Landsbankans og Brims og sáu um söluna á
sjávarútvegsfyrirtækjunum þremur, þeir Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Burðaráss, Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbank-
ans, og Bjarni Þórður Bjarnason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs bankans. Þessir
menn voru í nánu sambandi og samráði við sína yfirmenn, Magnús Gunnarsson,
stjórnarformann Brims, og bankastjórana Sigurjón Þ. Árnason og Halldór Jón
Kristjánsson. Það er mat manna, sem Fijáls verslun hefur rætt við, að það hafi
einkum verið Siguijón sem hafi séð um söluna á fyrirtækjum Brims. Halldór Jón
hafi komið inn þegar þurft hafi að miðla málum og séð um söluna á Skagstrendingi.
MflGNÚS GUWWflRSSOW
stjórnarformaður Eimskipafélagsins
Heiðursmaður, yfirveg-
aður, hæfur og samnings-
lipur, traustur, reyndur
og flinkur í samskiptum
við fólk. Magnús nýtur
mikillar virðingar. Sagt er að hann standi
ávallt við orð sín. Stúdentspróf frá Versl-
unarskólanum og cand.oecon.-próf trá HI
1971. Hefur lokið nokkrum námskeiðum
erlendis.
Magnús hefur víðtæka reynslu úr at-
vinnulífinu, m.a. starfað sem fram-
kvæmdastjóri hjá Vinnuveitendasam-
bandinu og SÍF um nokkurra ára skeið
auk þess sem hann hefur m.a. gegnt for-
mennsku í Vinnuveitendasambandinu,
Utflutningsráði og HB á Akranesi. Magn-
ús hefur rekið ráðgjafaþjónustuna Capital
frá 1993. Hann tók við formennsku í
Brimi í haust.
FRIÐRIK JÚHflNNSSDN
framkvæmdastjóri Burðaráss
^ Gegnheill sómamaður,
góður samningamaður
i og mikill keppnismaður,
I hægur og traustur, með
jákvæða útgeislun. Hann
tekur virkan þátt í félagsmálum og þykir
fastur fyrir í fótbolta. Landsbankinn ann-
aðist söluna. Friðrik var fulltrúi Eimskips
í viðræðunefndinni og þar með tengingin
við stjórnarmenn í Brimi.
Friðrik hefur verið framkvæmdastjóri
Burðaráss í sjö ár. Hann hefur víðtæka
reynslu úr atvinnulifinu, var til að mynda
löggiltur endurskoðandi og fram-
kvæmdastjóri Skandia á íslandi. Hann
hefúr setið í stjórn nokkurra fyrirtækja og
var m.a. stjórnarformaður Útgerðar-
félags Akureyringa 1997-2002.
Friðrik er fæddur árið 1957, viðskipta-
fræðingur og löggiltur endurskoðandi að
mennt.
HflLLDDR JDN KRISTJflNSSON
bankastjóri Landsbanka íslands
Halldór J. Kristjánsson
þykir öflugur maður,
traustur og laginn samn-
ingamaður, reyndur og
lipur. Halldór nýtur al-
mennt mikillar virðingar fyrir reynslu
sína og hæfni í samningagerð. Þeir þykja
vega hvor annan vel upp, hann og Sigur-
jón.
Halldór hefur starfað sem bankastjóri við
Landsbankann frá 1998 og er því ekki
gamall í hettunni sem bankastjóri en áður
starfaði hann hjá hinu opinbera. Hann
starfaði í iðnaðarráðuneytinu 1981-1991,
var skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu 1994-1996 og ráðuneytis-
stjóri 1996-1998. Halldór var aðstoðar-
bankastjóri Evrópubankans í London
1991-1994.
Halldór er fæddur árið 1955, lauk stúd-
entsprófi í Noregi og lagði stund á lífefna-
fræði í Bandaríkjunum í eitt ár um miðjan
42