Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 41

Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 41
SALAN Á BRIMI FRETTIR myndi ekki bjóða í bréfin núna nema í sátt við heima- menn. Árni skýrði þá frá því að auki að Grandi ætti nú orðið um 10% hlut í sjálfu sér og sá hlutur stæði þeim til boða. Með kaupum á honum gæti HB ijölskyldan og samstarfsmenn hennar eignast myndarlegan hlut í fyrirtækinu. Það myndi opna þeim formlega leið til áhrifa gegnum eignarþátttöku og sljórnarsetu. Sunnu- daginn 28. desember höfðu bræðurnir samband við Arna og var ákveðið að standa saman að kauptilboði í bréfin. Þegar Landsbankinn kynnti söluáformin og sínar verðhug- myndir mánudaginn 5. janúar mættu Haraldur, Sturlaugur og Árni á kynninguna. Mánudaginn 12. janúar hófust samningavið- ræður og um tvöleytið um nóttina slitnaði upp úr viðræðum þar sem of mikill munur var á milli verðhugmynda rnanna. Rifs- feðgar höfðu boðið 8,3 milljarða í HB en Árni og bræðurnir 7,5 milljarða, 240 milljónum meira en HB fór á við samrunann inn í Brim, þannig að þrýst var á þá að hækka sig. Viðræðunefnd Landsbankans og Brims var treg til þess að lækka sig nokkuð á móti og kváðu þremenningarnir þá upp úr um að ekki tjóaði að halda viðræðunum áfram. Þær höfðu átt sér stað í banka- stjóraherberginu í aðalbankanum. Síðar um nóttina fór síminn að hringja og var ákveðið að hittast á ný morguninn eftir. Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður Eimskips, hafði þá komið sterkar inn í myndina. Um morguninn hittu fulltrúar Granda og HB, Friðrik, Magnús og Halldór Jón á 4. hæð í Eimskipafélagshúsinu og endaði það með samkomulagi sem síðan var staðfest um kvöldið. Það hljóðaði upp á 7,8 milljarða króna. Af kaupverðinu voru rúmlega 3,2 milljarðar greiddir í reiðufé. Greiðslan var að hluta flármögnuð með sölu á 9,9 prósenta hlut í Granda til HB fjölskyldunnar og TM fyrir samtals 985 milljónir króna. Fjölskyldan greiddi um 750 milljónir og TM •afganginn. Hún var einnig Jjármögnuð með sölu Granda á hlutabréfum í Eskju. Afgangurinn var fenginn að láni í Lands- bankanum. Þegar framtíðarmöguleikar hins nýja fyrirtækis HB og Granda eru skoðaðir kemur í ljós að þessi tvö fyrirtæki henta vel saman hvernig sem á er litið og blasir framtíðin við því sem öflugu fyrirtæki við Faxaflóann sem leggur áherslu á land- og sjóvinnslu ásamt uppsjávarfiski. Þó að hagræðing og breytingar verði í sjávarútvegi og þróunin hröð þá má búast við að Akranes og höfuðborgarsvæðið verði eitt atvinnusvæði á næstu árum og hafnirnar þijár, Reykjavíkurhöfn, Akraneshöfn og Grundartangahöfn - ein tjölfarnasta höfn landsins, geti orðið eitt hafnasamlag í framtíðinni. Landið í kringum Reykja- vikurhöfn verður stöðugt dýrara og eftirsóknarverðara undir aðra starfsemi en sjávarút- veg og því er hugsanlegt að þar geti orðið breytingar á hvað Granda varðar til lengri tíma fitið. Stefnt er að því að HB og Grandi verði sameinuð í eitt félag á næstunni. BH Viðræðunefiid Landsbankans og Brims var treg til þess að lækka sig nokkuð á móti og kváðu þremenningamir þá upp úr, þeir Arni, Haraldur og Sturlaugur, um að ekki tjóaði að halda viðræðunum áfram. Síðar um nóttína fór síminn að hringja og var ákveðið að hittast á ný morguninn eftir. Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður Eimskips, hafði þá komið sterkar inn í myndina. STERK SAMNINGSSTAÐA SKAGSTRENDINGA Skagstrendingur seldist síðastur af sjávarútvegsfyrirtækj- unum þremur enda hafði hann nokkuð sérstaka stöðu. Sveitarfélagið og heimamenn áttu um 25% í félaginu þegar Skagstrendingur, eins og ÚA eftir áðurgengnar viðræður um sameiginlega framtíðarsýn, gekk inn í Eimskip fyrir rúmu ári. Þar sem Skagstrendingur er langstærsta fyrirtækið á Skaga- strönd og ber uppi atvinnulífið var gerð skrifleg yfirlýsing um sameiginlega sýn forráðamanna Skagstrendings, stjórnenda ÚA og þáverandi stjórnar Eimskips. Þessi samningur styrkti óneitanlega samningsstöðu heimamanna og telja sumir jafnvel að félagið hefði ekki verið selt Fiskiðjunni hefðu heimamenn verið mótfallnir því. Hvað um það. Sú trú virðist hafa verið ríkjandi að Brim myndi semja við heimamenn, hvort heldur á Skagaströnd eða Akureyri, ef verðhugmyndir væru svipaðar eða aðeins lægri en hugmyndir annarra. Það reyndist misskilningur. Skagstrend- ingar, sem höfðu alltaf átt gott samstarf við Fiskiðjuna, FISK, höfðu kannað hvort boð kæmi þaðan og töldu svo ekki vera. Þeir sendu sjálfir inn hugmynd í samstarfi \4ð Þormóð ramma en lentu til hliðar í samningaviðræðunum þar sem þeirra verð- hugmynd var lægri en FISK Einnig er hugsanlegt að slæm skuldastaða Þormóðs ramma hafi haft áhrif. Boð þeirra hljóðaði upp á 2,3 milljarða. Skagstrendingarnir mættu suður, ræddu við menn og hækkuðu sig úr 2,3 milljörðum í 2,5 milljarða króna. Fiskiðjan var samt með 200 milljóna króna hærri verðhugmynd og fékk Skagstrending í sinn hlut. Viðræður forráðamanna Fiskiðjunnar um Skagstrending voru nokkuð sérstakar því að þeir komust ekki suður í boðaðar viðræður þriðjudaginn 13. janúar vegna veðurs og urðu að senda lögmann fyrir sig. Þetta setti mark sitt á viðræðurnar. Þeir voru komnir suður á miðvikudagskvöld og var þá lögð áhersla á að klára samningana fljótt og vel. Það náðist kvöldið eftir. Þegar Skagstrendingum varð ljóst hver þróunin var nýttu þeir sér samningsstöðu sína, þ.e. með tilvísan til samkomulagsins við fyrri stjórn Eimskips, og áttu viðræður við fulltrúa Fiskiðjunnar fyrir milligöngu Halldórs Jóns Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans, og Magnúsar Gunnarssonar, stjórnarformanns Eimskips, fimmtudaginn 15. janúar um sameiginlega sýn á rekstur Skagstrendings. Þannig tryggðu þeir hagsmuni sína. Skagstrendingur yrði áfram sjálfstætt félag og rekið í nánast óbreyttu formi með góðan stöðugleika og trygga eignaraðild, en náið samstarf við Fiskiðjuna eflir byggðarlagið í heild. Qfl 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.