Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 71
FUIMDIR OG RÁÐSTEFNUR
Hefnd lyrir
hákarlinn
Erna Gísladóttir, forstjóri B&L.
Erna Gísladóttir, forstjóri B&L, hefur víða farið og á marg-
ar erlendar ráðstefnur. Henni er ein sérstaklega minnis-
stæð. Þetta var ráðstefna hjá Land Rover og hluti af dag-
skránni fólst í reynsluakstri sem stóð yfir heilan dag. Þarna
var verið að prófa Land Rover á sveitavegum í Wales, en við
myndum nú ekki flokka þessa „sveitavegi" sem slíka, til þess
voru þeir of góðir. Til afþreyingar var ýmislegt gert, m.a. var
farið í golf, skotfimi, bogfimi og loftbelaaflug sem ég þorði
ekki í reyndar. Mér fannst mjög gaman að kynnast þessum
greinum og gæti alveg hugsað mér eftir þessa reynslu að læra
að skjóta í mark. Um kvöldið var farið með okkur í gamalt
klaustur, þar valinn kóngur og drottning og máttum við sitja í
hásæti þar allt kvöldið. Okkur var gert að borða með guðs
göflunum kjúkling og ýmislegt fleira góðgæti að hætti tyrri
íbúa hér á öldum áður en ég held að þetta hafi verið hefnd
þeirra Land Rover manna. Þeir höfðu komið til okkar nokkru
áður og við farið með þá á Þrjá Frakka þar sem þeir fengu há-
karl og hval að borða. í vélinni á leiðinni heim frá Islandi
heyrðu þeir hvernig hákarlinn var verkaður hér á árum áður
og það gleymdist víst að leiðrétta þann misskiling við þá en
þeir héldu að hann væri enn verkaður þannig og urðu víst
aðeins veikir eftir að hafa frétt þetta. S!1
Ferðamálafrömuðir njóta íslenskrar náttúru.
Úfærð á ferða-
málaráðstefnu
Maria Guðmundsdóttir, ritstjóri ferðaútgáfu Heims,
hefur vegna starfa sinna víða farið og sótt margar
ráðstefnur. „Af öllum þeim ráðstefnum sem ég hef
farið á er einna eftirminnilegust sú sem ég sótti á Egilsstöðum
í febrúar 1990,“ segir María. „Það snjóaði alveg gífurlega og
almennt var mikil ófærð en á ráðstefnuna kom ijöldi gesta víða
að af landinu. Gistirými í bænum dugði engan veginn og
margir gistu í sumarhúsum að Eiðum. Það var mikið ævintýri
bara að komast á milli ráðstefnustaðar og svefnstaðar.
Þetta var vel sótt ráðstefna og mjög hressileg og maður fann
vel fyrir eldmóði og áhuga gesta á þessari ört vaxandi atvinnu-
grein. Erindi voru flutt um menntamál og uppbyggingu ferða-
þjónustunnar í dreifbýli. Þáverandi samgönguráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon, hafði sett á stofn ferðamálanefnd á vegum
samgönguráðuneytisins og Hjörleifur Guttormsson, formaður
nefndarinnar, kynnti störf hennar á ráðstefnunni. Þær hug-
myndir og það starf sem unnið var í þágu ferðamála í þeirri
nefnd á sínum tíma er með því markverðara sem unnið hefur
verið á undanförnum árum þó svo að nýtt frumvarp, sem byggt
var á tillögum nefndarinnar, næði ekki fram að ganga.
GLÆSILEG HÁTÍÐAHDLD Seinni dag ráðstefnunnar voru
ráðstefnugestir í hörkuvinnu í starfshópum og niðurstöður
hópavinnu voru kynntar síðar þann dag. Mjög líflegar og
skapandi umræður spunnust í hópavinnu þessari sem var
nokkuð nýnæmi á ráðstefnum sem þessari. í lok ráðstefnunnar
voru glæsileg hátíðarhöld í boði heimamanna og minnist ég
þess að maður var kappklæddur undir sparifötunum. Eg var
t.d. í síðbuxum undir pilsinu til að geta vaðið skaflana út í rútu.
í lok ráðstefiiunnar var lokahóf í boði heimamanna en það var
sérlega vel lukkað þar sem ijöldi fróðra og skemmtilegra Aust-
firðinga skemmti aðkomumönnum.“ S!1
71