Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 76
FUIMDIR OG RÁÐSTEFIMUR
Pétur Bauer, deildarstjóri heildsöludeildar Opinna kerfa
Opin kerfi:
Þú + hp = allt er
framkvæmanlegt
„Carly Fiorina, forstjóri HP, segir mikla áherslu hafa verið
lagða á tæki sem hægt er að meðhöndla eða hengja upp á
vegg,“ segir Pétur. „En stafræna upplifunin er miklu meiri en
það. Hún snýst um hönnun, dreifingu, stjórnun og ánægju af
öllum gerðum stafræns efnis frá mismunandi miðlum. Vanda-
mál sem upp koma snúast einkum um kostnað, flækjustig og
tengimöguleika. Framleiðendur þurfa að átta sig á því að það
má ekki eingöngu leggja áherslu á tækin, heldur verður að
horfa á heildarmyndina og skapa notendavænt viðmót."
HP STAFRÆNIR SKJÁIR Hágæða 30“ flatir skjáir og 42“
plasmaskjáir eru vörur sem HP kemur til með að markaðssetja
í sumar. HP mun bjóða fullkomna hljóðtækni og byltingar-
kennda tækni í myndgæðum sem veitir áhorfandanum mun
betri og raunverulegri mynd.
SKJÁUARPAR 0G FARTÖLVUR „HP skjávarpar eru hannaðir
fyrir þá sem þurfa að varpa fram kynningu í hágæða upplausn
á einfaldan hátt,“ segir Pétur. „Þessir hljóðlátu og léttu skjá-
varpar tryggja fullkomna kynningu með HP áreiðanleika og
samhæfni.“ HP eru mestu seldu fartölvur í heimi samkvæmt
niðurstöðum IDC. Pétur segir að fyrirtækið hafi nýlega kynnt
vörulínur sem mæta þörfum mismunandi notendahópa. „HP
Compaq nc vörulínan er hönnuð fýrir þarfir stærri fyrirtækja
á meðan nx vörulínan eru ætluð einstaklingum eða minni
fyrirtækjum. Til dæmis er nýja HP nx7010 ómissandi fartölva
sem er með 15,4“ breiðskjá og nýju Intel Centrino tækninni."
HP kynnti nýja stefnu í lausnum fyrir meðalstór
fyrirtæki (SMB) í september sl. og hefur markaós-
sett yfir 100 nýjar vörur og lausnir frá þeim tíma.
HP er eini framleiðandinn í upplýsingatækni með heildar-
lausnir í tæknibúnaði, allt frá prent- og stafrænum mynd-
lausnum, PC tölvum, fartölvum upp í stærri netþjóna og
gagnalausnir. „Það er staðreynd að HP er stærsti framleiðandi
heims á sviði tæknibúnaðar
fyrir lítil og meðalstór fyrir-
tæki, með yfir 1400 milljarða á
ári í veltu,“ segir Pétur Bauer,
deildarstjóri heildsöludeildar
Opinna kerfa. „Fyrirtækið er
með um 210.000 samstarfs-
aðila í 160 löndum."
UPPLIFUIMIIM SEM SKIPTIR MÁLI
HP kynnti innkomu fyrirtækis-
ins á afþreyingarsviði með
úrvali nýrra lausna og sam-
starfsaðila þann 8. janúar. Sú
innkoma á að auðga upplifun
fólks á stafrænum miðlum, svo
sem tónlist, þíómyndum, sjón-
varpi og ljósmyndum.
FUNDAHERBERGI FRAMTÍÐARINNAR Á rannsóknarstofu
HP í Bristol í Englandi er verið að þróa búnað fyrir fundarher-
bergi. „Þessi byltingakenndi búnaður, RoomWizard, er festur
á vegg við fundarherbergið. Á skjánum koma fram upplýs-
ingar um það hvort herbergið sé laust eða ekki, hver hafi
bókað það og í hvaða tilgangi. Skjár sem þessi er aðeins upp-
hafið á snjalltækjum sem sameina húsgögn, arkitektúr og
tækjabúnað og hann verður hluti af heildarlausn sem aðstoðar
fólk við að skipuleggja
umhverfi framtíðarinnar."
HVAR GET ÉG KEYPT? Opin
kerfi hafa flutt inn HP lausnir
og þjónað þeim frá 1985. Auk
þess að vera með úrval tækni-
búnaðar og þjónustu eru Opin
kerfi með yfir 70 samstarfsaðila
um land allt.
„Við erum með sölu- og um-
boðsaðila í Reykjavík og um
land allt sem bjóða HP vörur og
veita einnig allar upplýsingar,"
segir Pétur og bætir við að lok-
um að nánari upplýsingar er að
fmna á heimasíðu Opinna
kerfa: www.okás.S!]
Atriði sem fartölvukaupendur þurfa að hafa í huga:
• Ef þú ætlar að nota fartölvuna við kynningar
þarftu stóran skjá með háa upplausn.
• Ef þú þarft að tengjast staðarneti eða þráðlausu
neti þarf nettengimöguleika eins og venjuleg netkort
(10/100/1000) eða þráðlaus netkort (802.11 b/g).
• Ef þú þarft að vinna við skrifborð, þarftu að geta
tengt fartölvuna við tengikví, aukaskjá, mús og
lyklaborð.
• Ef þú þarft að taka afrit af gögnum, þá þarftu
fartölvu sem er með geislaskrifara (CD-RW
eða DVD skrifara).
76