Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 28
FORSÍÐUGREIN - KAUPIN f ÍSLANDSBANKA
Næsta bankaráð:
Kristián eða Einar
EINAR SVEINSSON FORSTJÓRI SJÓVÁR-ALMENNRA. Eftir
að Sjóvá-Almennar urðu dótturfélag (slandsbanka er nánast
útilokað fyrir hann að gegna stöðu forstjóra á sama tíma og
hann situr í bankaráðinu.
w
Ihluthafahópi Islandsbanka hefur undanfarið verið tekist á
um það hvort Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs
íslandsbanka, eigi að draga sig í hlé og stíga út af leiksviðinu
til að rýma fyrir Einari Sveinssyni, forstjóra Sjóvár-Almennra og
varaformanni bankaráðs Islandsbanka.
Kristján er 65 ára að aldri og hefur verið formaður bankaráðs
Islandsbanka frá upphafi, þ.e. frá stofhun bankans í ársbyijun
1990. Einar hefur sömuleiðis setið um árabil í stjórn bankans.
Einar er forstjóri Sjóvár-Almennra og það gerir honum erfiðara
að gegna þeirri stöðu á sama tíma og hann situr í bankaráðinu
eftir að félagið varð dótturfélag bankans. Formaður banka-
ráðsins er ekki kjörinn í beinni kosningu af hluthöfum heldur af
sjö manna bankaráði.
Hörðustu fylgismenn þess að Einar setjist í formannssætið
eru sagðir þeir Víglundur Þorsteinsson, fulltrúi Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, og Helgi Magnússon, fulltrúi Lífeyrissjóðs
Framsýnar. Gengið er út frá því sem vísu að þeir verði báðir
áfram í bankaráðinu þótt Helgi sé á leið-
inni út úr stjórn Lífeyrissjóðs Framsýnar
vegna reglna um hvað menn geta setið þar
lengi í stjórn. Helgi er sömuleiðis í stjórn
Straums fjárfestingarbanka og finnst
ýmsum sem það rekist illa saman að hann
sé bæði í bankaráði íslandsbanka og
stjórn Straums þótt síðarnefnda félagið sé
að mestu leyti í eigu bankans.
KRISTJÁN RAGNARSSON. Fer hann fram eða dregur hann
sig í hlé? Sest hann í bankaráðið án þess að verða þar for-
maður?
Mun Kristján draga sig í hlé? En mun Kristján draga sig í hlé
og segja sem svo að hann fari ekki fram nema hann verði áfram
formaður? Innan hlutahafahópsins er rætt um að Kristján njóti
vinsælda og hann ætti ekki í neinum vandræðum með að fá 12
til 14% fylgi. Þá finnst mörgum sem hann eigi fullt erindi áfram
í bankaráðið, hvort sem hann verður þar formaður eða ekki.
Þau rök hafa verið nefnd Einari til stuðnings í formennsku
bankaráðsins að hann sé fulltrúi hluthafa sem séu með sitt
eigið fé í bankanum á tímum þegar lífejaissjóðir eru að
minnka eignarhluti sína í bankanum eða draga sig þar alveg
út, eins og Lífeyrissjóðirnir í Bankastræti 7 (LSR) gerðu. Einar
er talinn hafa örugg 8 til 9% atkvæða á bak við sig þegar
atkvæði samherja hans úr Sjóvá-Almennum, sem urðu hlut-
hafar í Islandsbanka við kaup bankans á Sjóvá-Almennum, eru
talin honum til tekna.
Ef Einar Sveinsson verður næsti formaður bankaráðs
Islandsbanka blasir við að hann hættir sem forstjóri Sjóvár-
Almennra. Hann verður að velja þarna á
milli. Sem formaður bankaráðs yrði hann
yfir Bjarna Armannssyni, forstjóra
bankans, og hann getur því ekki á sama
tíma verið undirmaður hans sem forstjóri
Sjóvár-Almennra. Raunar má segja að
almennir bankaráðsmenn séu ekkert síður
yfirmenn Bjarna og því ekki mjög hentugt
að þeir séu líka undirmenn hans sem
Sem formaður bankaráðs
jtrði Einar yfir Bjarna
Armannssyni, forstjóra
bankans, og hann getur því
ekki á sama tíma verið
undirmaður hans sem
forstjóri Sjóvár-Almennra.
28