Frjáls verslun - 01.01.2004, Síða 55
Dómaratríóið stóð oft í ströngu. Þau Bubbi, Sigga og Þor-
valdur höfðu mikil áhrif á framgang keppninnar með um-
sögnum sínum um keppendur. Enda þótt þau væru titluð
dómarar keppninnar, var það þjóðin sem var hinn raunveru-
legi dómari keppninnar og greiddi atkvæði í gegnum síma.
MARKAÐSMÁL
Kynnarnir Simmi og Jói. Samstarf þeirra hófst á útvarps-
stöðinni Mono árið 1999 en þeir stýrðu svo einum vin-
sælasta sjónvarpsþætti landsins, 70 mínútum, á Popptíví.
Þeir unnu hug og hjörtu landsmanna með látlausri og
skemmtilegri framkomu sinni.
hins vegar hefðbundnum auglýsingum. Kostendur voru tveir
og má telja að hvor aðili hafi greitt um 4 milljónir iyrir að
tengja sitt vörumerki við keppnina og mega nota Idol-merkið
í sínu markaðsstarfi.
Auglýsingatíminn var auðvitað sá dýrasti í sjónvarpi og kost-
aði mínútan 272.000 krónur eða 4.548 kr. sekúndan. Alls voru
tvö auglýsingahólf í þætti og 300 sekúndur í hólfi. Auglýsinga-
tekjur í hveijum þætti voru þvx um 3 milljónir króna og auglýs-
ingatekjur í það heila af keppninni um 40 milljónir króna.
Þá hafði fýrirtækið tekjur af atkvæðagreiðslu þar sem
landsmenn greiddu atkvæði með símakosningu. Rúmlega
500 þúsund atkvæði voru greidd en hvert atkvæði kostaði 99
krónur. Farsímaiýrirtækin innheimta um helming af því
gjaldi en eftirstöðvarnar fá Norðurljós. Tekjur af atkvæða-
greiðslu voru því liðlega 25 milljónir króna.
Fyrirtækið hefur einnig tekjur af ýmsu öðru í tengslum við
keppnina; svo sem sölu á minjagripum, útgáfu á tónlist með
flytjendum keppninnar o.s.frv. Heildartekjur Stöðvar 2 af
keppninni skv. þessum tölum voru um 130 milljónir. Hluti af
þeim tekjum fer til eigenda Idol-leyfisins erlendis. Almenn
regla í þessum geira hefur verið sú að greiða um 15-20% af
heildarveltu vegna viðskiptasérleyfa til sérleyfiseigandans.
Hreinar tekjur voru því um 104 milljónir króna.
Aður hefur komið fram í samtölum við forsvarsmenn
keppninnar að kostnaður vegna hennar hafi verið á milli 40
og 50 milljónir króna. Samkvæmt þessu ætti því hagnaður
Norðurljósa af keppninni að vera rúmar 50 milljónir króna.
Erfitt er að meta ýmsa aðra þætti til fjár, eins og bætta ímynd
stöðvarinnar og að stöðin hafi haldið í alla þá áskrifendur sem
fýrir voru hjá henni vegna keppninnar.
Komin til að vera Ekki fer á milli mála að Norðurljósum
hefur tekist mjög vel til með framkvæmd keppninnar. Segja
má að „allt hafi verið á hvolfi“ hjá auglýsinga- og markaðs-
deild fýrirtækisins frá því að keppnin hófst og þangað til nú
fýrir nokkrum vikum þegar keppninni lauk.
Keppnin um auglýsendur er hafin að nýju og undir-
búningur og sala auglýsinga komin á fullt fýrir næstu Idol-
keppni í haust. Fáum dylst að þessi fýrsta Idol-keppni Stöðv-
ar 2 tókst einstaklega vel.
Af Kalla Bjarna er það annars að ffétta að hann tekur þátt
í 5-10 uppákomum á viku. Skemmtistaðir, skólar, félagasam-
tök o.fl. sækjast eftir honum og heyrst hefur að hann sé í
þann mund að ganga frá samningum við tvö stór iýrirtæki
sem vilja nota poppstjörnuna til að ná til markhópa sinna.SH
Tekjur Stöðvar 2 af Idol*
Samtals tekjur 130 milljónir króna
-flætlun, ekki rauntölur.
Auglýsingar:
Atkuæðagreiðsla um síma:
Aðrar tekjur (5 milljónir)
8 milljónir kr.
IVýjar áskriftir
meðan á
keppninni
stóð:
52 milljónir kr.
25 milljónir kr.
(Símafyrirtækin
taka helminginn
af 99 kr.)
Kostun:
40 milljónir kr.
55