Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 61
MARKAÐSMÁL
Síminn hjálpar fólki að láta hugmyndirnar verða að veruleika. Hér sést skot úr auglýsingu sem gerir út á hið svokallað „flash-
mop" æði, þar sem SMS og tölvupóstur eru notuð til að stefna fólki á einn stað þar sem allir framkvæma í sameiningu ein-
hverja hugmynd. í þessu tilfelli að leggjast niður á Lækjartorgi.
og reynt. Fyrst segir hún að S formið hafi verið skoðað, síðan
hlekkjaformið og þá hnötturinn. Þetta hafi síðan þróast í þá
niðurstöðu sem nú liggur fyrir. Sama hafi gilt um liti, fiöl-
margir litir hafi verið skoðaðir, nánast allt litaspjaldið. „Það má
segja að liturinn hafi orðið til við þróun merkisins. Hann hefur
bæði skírskotun til fortíðarinnar og framtíðarinnar. Okkar
litur hefur verið blár en niðurstaðan var sú að okkur fannst
þessir litir, sem valdir voru, hafa skírskotun í ferskleika og
vera nútímalegri en dökkblái liturinn. Með þessum lit erum
við að horfa til framtíðar," segir hún.
„Flash-mop" í Sjónvarpinu Herferð Símans gengur út á
sama þema, þ.e. „þetta er þín hugmynd, við hjálpum þér að
láta hana gerast.“ Fjarskiptatæknin og síminn eru mjög stór
hluti af lífi fólks í dag og þá skiptir máli að kunna að nýta sér
það. „Við komum við sögu mjög víða í lífi fólks og þannig varð
þessi hugmyndafræði til. Það sem skiptir máli fyrir viðskipta-
vininn er notagildi tækninnar. Hann notar flarskiptatæknina
út frá sínum lífsstíl til að koma hugmyndum sínum og löng-
unum til framkvæmda," segir Katrín Olga.
í auglýsingaherferð sinni leggur Síminn áherslu á að sím-
inn/tæknin hjálpi fólki í daglegu lífi að láta hugmyndirnar
verða að veruleika. Ein auglýsingin fjallar t.d. um svokallað
,4ash-mop“, sem ku vera nýtt æði um allan heim þar sem fólk
sendir SMS eða tölvupóst til annarra um stefnumót á ein-
hverjum fyrirffam ákveðnum stað og tíma. Menn ijölmenna
síðan á staðinn og framkvæma þar einhveija hugmynd. Þetta
sést t.d. í einni auglýsingu Símans þar sem fólk streymir
niður á Lækjartorg. Klukkan þijú er þar kominn stór hópur
fólks sem leggst niður og stendur svo upp aftur eftir stutta
stund og hverfur til sinnar fyrri iðju.
Heildarútlitinu breytt Síminn hefur ekki bara verið með
hefðbundnar auglýsingar í ljósvakamiðlum og blöðum. Fyrir-
tækið hefur líka farið óhefðbundnar leiðir, t.d. með því að vera
með áreiti á strætóskýlum. Nokkrum dögum áður en lógóið
Gary Wake og Jón Arnason, framkvæmdastjórar hug-
mynda- og auglýsingasviðs, og til hægri er Hjörvar
Harðarson, listrænn stjórnandi. Allir eru þeir starfsmenn hjá
Góðu fólki-McCann Erickson.
var kynnt og herferðin hófst dreifði fyrirtækið líka bolum
með sömu skilaboðum og eru í auglýsingum fyrirtækisins og
mátti m.a. sjá stjórnendur þáttarins 70 mínútur í slíkum bol-
um. En breytingarnar eru miklu viðameiri en bara þetta.
Heildarútlit fyrirtækisins hefur verið tekið til endurskoðunar
og þessa dagana er t.d. verið að breyta útliti verslana Símans,
merkja bíla og þannig mætti lengi telja. Það er samræmi í
heildarútliti sem gildir.
Árlegur kostnaður vegna markaðsmála Símans er ekki
gefinn upp en á síðasta ári var kostnaður vegna mörkunar-
vinnunnar tekinn af ráðstöfunarfé til markaðsmála fyrirtækis-
ins. í ár var ákveðið að hækka um 15 prósent fjárupphæðina
sem varið er til markaðsmála og ber að líta á það sem hluta af
kostnaði vegna endurskipulagningar fyrirtækisins. Kostnað-
urinn vegna umræddrar markaðsherferðar, sem hleypt var af
stokkunum nýverið er 32 milljónir króna, þar með talinn
kostnaður við hönnun, gerð firmamerkis og auglýsingar því
tengdar. Áætlað er að um 200 milljónum verði varið á næstu
tveimur árum til Jjárfestingar í endurhönnun, endurbótum og
lagfæringum á verslunum og ásjónu Símans. S!í
61