Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 72
FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Stríð í Kosouo
Flestir fundir og ráðstefnur eru nokkurn veginn eins. Þótt
margir þeirra séu áhugaverðir vegna þeirra málefna sem
þar eru til umfjöllunar er sjaldan annað sem stendur upp
úr. Mér er hins vegar sérstaklega minnisstæð ferð sem ég fór
til Bandaríkjanna árið 1999 með hópi fólks úr stjórnmálum og
fjölmiðlum til að fá betri innsýn inn í þankagang Bandaríkja-
stjórnar í utanríkis- og varnarmálum. Við sátum ijölmarga
fundi en einnig hafði verið skipulögð ferð í Hvíta húsið þar
sem við áttum að fá að fylgjast með Joe Lockhart blaðafulltrúa
forsetans stýra blaðamannafundi. Skömmu eftir að fundurinn
hefst er Lockhart afhentur miði og hann þagnar. Það kom
nokkurt fát á menn enda vissi enginn hvað var að gerast fyrr
en Bill Clinton sjálfur gengur inn í salinn og tilkynnti að stríðið
í Kosovo væri hafið. Þetta var að sjálfsögðu mikil upplifun fyrir
okkur sem tókum þátt í þessu og skemmtilegt að fá tækifæri
til að fylgjast með Bandaríkjaforseta tilkynna um sögulegan
viðburð í þetta miklu návígi. Þetta var líka frábær hópur í
þessari ferð og við höfum haldið sambandi síðan og hittumst
reglulega enn þann dag í dag. [ffl
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík.
Friðarfundur í Seúl
Múhameðstrúarmenn, kristnir, gyðingar og hindúar
ásamt fulltrúum fiölmargra annarra trúarhópa hittust í
Seúl í Suður-Kóreu fyrir nokkrum árum.
„Ein eftirminnilegasta ráðstefna, sem ég hef farið á, var
haldin í Seúl,“ segir Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur
Fríkirkjunnar í Reykjavík. „Þarna komu saman fulltrúar helstu
trúarbragða heimsins, bæði lítilla og stórra, og ræddu tengsl
trúarbragða og heimsfriðar. Rætt var um hvað það er innan
trúarbragðanna sem helst vinnur gegn friði og stuðlar að
aðgreiningu og flokkadráttum. Og hvort þá þætti sé ekki að
finna í öllum helstu trúarbrögðunum. Einnig var rætt um
friðarhorfur og þátt trúarbragða í að koma á fríði í stríðs-
hrjáðum heimshlutum. Þó svo að hugtök eins og friður, kær-
leikur og fyrirgefning séu lykilhugtök í mörgum helstu trúar-
brögðum heimsins þá virðist oft sem vissar trúarkenningar og
þeir trúarleiðtogar sem halda þeim á lofti stuðli frekar að
sundrungu, fordómum, mismunun og jafnvel stríði.
Þarna ræddu saman múftar, rabbínar, og prestar og það var
athyglisvert að heyra samtöl þeirra og skoðanir og kannski
athyglisverðast af öllu að sjá hversu þráin eftir friði og kærleika
var sterk hjá öllum þátttakendum, hvaða trú sem þeir játuðu."
Sr. Hjörtur Magni segir að sér sé minnisstætt að hafa séð
þarna í mjög framandi landi, sem verkaði á marga þátttak-
endur sem hlutlaust svæði, fulltrúa ýmissa trúarhópa, menn
sem eru framarlega og áberandi í sínum heimalöndum, fella
niður varnir sínar og dansa saman á skemmtikvöldi.
„Þarna voru mun fleiri karlar en konur, því miður, því að
mörg trúarbrögðin eru enn mjög karlmiðlæg, en það sást ljós-
lega þetta kvöld hvað þessir menn, sem maður sér helst í fjöl-
miðlum og á alvarlegum nótum, gátu verið mannlegir og
skemmt sér vel saman og skemmt öðrum.“
En oft er það svo á stórum ráðstefnum að það sem gerist
utan dagskrár er ekki síður merkilegt. Eftir ráðstefnuna tókst
mér einmitt að heimsækja þá kirkju sem hefur verið í hvað
örustum vexti allra kirkna í heiminum undanfarin ár og þar
skynjaði ég svo mikinn kraft og mikla sköpunargleði að það er
ógleymanlegt. SH
72