Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 82
Helga Ölafsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Flugleiðum.
FUIMDIR OG RÁÐSTEFNUR
Icelandair:
Golf, fornbílan og íþnóttin
Þær eru margvíslegar ferðirnar sem boðið er upp á hjá Icelandair. Sumar þeirra eru fyrir ákveðna
hópa en smátt og smátt berst út hversu skemmtilegar þær eru og fleiri vilja komast að.
Fyrirtækjum sem bjóða starfsfólki sínu upp á árshátíðar-
ferðir erlendis fer Jjölgandi,“ segir Helga Ólafsdóttir, sölu-
og markaðsfulltrúi hjá Flugleiðum. „Flestir fara til Kaup-
mannahafnar og London en auðvitað bjóðum við upp á ferðir til
fleiri borga og í nýjasta bæklingnum sem fyrirtæki fengu send
nýlega eru 10 borgir nefndar sem góður kostur fyrir árshátfðir."
SÉRFERÐIR FYRIR GOLFÁHUGAFÓLK Nú er flogið allt árið til
Flórída og mikið er um að golfáhugafólk fari þangað. Veður er
að jafnaði gott og hægt að stunda golf allt áiið en yfir sumarið
er vinsælt að fara t.d. til Skotlands og fleiri landa sem eru
norðar á hnettinum. Eins eru áhugaverðar ferðir til Maryland.
Helga sér um að aðstoða þá sem vilja fara í slíkar ferðir og
segist vera með gríðarlegt rnagn upplýsinga um góða staði.
„Það má líka nefna ferðir í æfingabúðir en við sendum nýlega
út unglingalandsliðið í golfi sem var í 8 daga æfingabúðum,"
segir Helga. „Fótboltaferðir eru vinsælar og við gerðum sér-
stakan samning við Chelsea um gott verð á leiki hjá liðinu. Og
eru ferðirnar skipulagðar í samvinnu við Chelsea klúbbinn á
Islandi. Margir hafa farið á leiki eftir það og þeim fer ijölgandi
sem tvinna saman fótboltaleiki og lengra frí með ijölskyldunni.
Þessar ferðir eru á góðu verði og tilvalið að nota sér þær. Svo
eru sérferðir eins og lúxussælkeraferð til Frakklands, ferð til
Costa Rica, ferðir á Formúluna og tónleikaferðir. Það má segja
að við reynum að uppfylla óskir allra hópa og finna ferð við
hæfi, sé hún ekki til staðar hjá okkur þegar að bókun kernur."
FORNBÍLASÝNINGAR Undanfarin fimm ár hefur Icelandair
flogið með hóp til Flórída í nóvember, á fornbílasýningu.
„I ár fóru um 70 manns og hópurinn fer sífellt stækkandi,“
segir Helga. „Þetta er mikið áhugamál og sýningin ein hin
stærsta í heimi og mikil upplifun. Eitt árið fóru aðeins 30 manns,
en það var árið sem árásin var gerð á New York en hin árin hafa
alltaf verið mun fleiri sem fara og Islendingar eru orðnir frægir
þarna og mynd af þeim á heimasíðu sýningarinnar. Fólk byrjar
að skrá sig í næstu ferð um leið og það kemur heim.“
Af öðrum ferðum Icelandair má nefna sérferðir til Rúss-
lands, ferðir til fjarlægra landa og ferðir á ýmsar vörusýningar
sem þá eru gjarnan settar upp í samvinnu við fyrirtæki sem
þekkja til viðkomandi sýninga eða taka þátt í þeim. S!j
82