Frjáls verslun - 01.05.2004, Side 16
NÆRMYND - EGILL AGUSTSSON
EGILL ÁGÚSTSSON
Egill Ágústsson, 54 ára
framkvæmdastjóri íslensk-
ameríska, hefur staðið í
ströngu undanfarin ár við
að færa út kvíarnar. IMýlega
keypti Íslensk-ameríska
fyrirtækið Mylluna.
íslensk-ameríska hefur vaxið hratt á undan-
fórnum árum. Nýlega bætti það Myllunni
við í safii margra dótturfélaga sinna.
Texti: Haukur Lárus Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
Egill Ágústsson kom til starfa
hjá Islensk-ameríska árið
1975, þá aðeins 25 ára. Egill
og aðaleigandinn, Bert Hanson,
náðu strax mjög vel saman.
Egill Ágústsson, 54 ára framkvæmdastjóri Íslensk-ameríska
verslunarfélagsins, er lítið fyrir að vera í kastljósi ijölmiðl-
anna og hefur ekki gefið kost á sérstökum viðtölum. Egill
er hér í nærmynd Frjálsrar verslunar. Islensk-ameríska heíur
tekið mikinn vaxtarkipp síðustu Jjögur ár og vakið verð-
skuldaða athygli í viðskiptalífinu. Það er núna eitt umsvifa-
mesta innflutnings- og verslunarfyrirtæki landsins.
Íslensk-ameríska er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, stofnað 15.
april 1964 af Bert Hanson sem flutti til landsins árið 1963 ásamt
eiginkonu sinni, Ragnheiði Jónasdóttur. Fyrirtækið hefur alla
tið verið í eigu flölskyldunnar og er nú til húsa í 4200 fermetra
húsnæði á Tunguhálsi.
Fyrstu árin flutti fyrirtækið inn tískufatnað, gjafavörur og
snyrtivörur eins og Pierre Robert, 9VA og Revlon. Frá upphafi
var lögð áhersla á að flytja inn vörur í samvinnu við framleið-
endur þeirra og má nefna Becton Dickinson, sem framleiðir
vörur fyrir heilbrigðissvið, tóbaksframleiðandann Philip
Morris og síðar matvöruframleiðendurna Gerber, Dr. Oetker
og Campbell’s. Islensk-ameríska setti í þann stóra þegar það
varð einkaumbjóðandi Procter & Gamble á íslandi. Árið 1994
hófst samstarf við BKI kaffe. í dag starfrækir Islensk-ameríska
söludeildir í hreinlætisvörum, matvörum, hjúkrunar- og rann-
sóknarvörum og golfvörum.
VÖXtur Hér er aðeins hálf sagan sögð því Islensk-ameríska
hefur heldur betur fært út kvíarnar síðustu árin. Eftir að hafa
startrækt umboð fyrir vínframleiðendur um langt skeið var
gengið til liðs við alþjóðlega fyrirtækið Allied Domecq Int. og
stofnað fyrirtækið Allied Domecq á íslandi, fyrsta fyrirtæki
sinnar tegundar hér á landi sem sér um sölu og dreifingu
áfengra drykkja. Fyrirtækið er að hálfu í eigu
Íslensk-ameríska og er sjálfstæð rekstrareining.
Árið 2000 festu íslensk-ameríska og Innnes
kaup á Fróni sem hafði verið ijölskyldufyrirtæki
í 75 ár. Frón er eitt þekktasta vörumerki lands-
ins og framleiðsluvörur þeirra með sterka mark-
aðsstöðu. Þegar Íslensk-ameríska seldi sinn hlut
Traust samband Egili Ágústsson
kom til starfa hjá íslensk-ameríska
árið 1975. Egill og aðaleigandinn,
Bert Hanson, virðast strax hafa
náð mjög vel saman því Egill var
gerður að framkvæmdastjóra 1980
og hefur gegnt því starfi síðan, eða
í Innnesi eignaðist fyrirtækið öll hlutabréfin í Fróni. Árið 2002
var Ora keypt, gamalgróið flölskyldufyrirtæki sem verið hefur
leiðandi í framleiðslu á niðursuðuvörum og selt framleiðslu
sína bæði innanlands og utan. Hjá Ora höfðu þrjár kynslóðir
setið við stjórnvölinn. Snemma á þessu ári keypti Islensk-
ameríska síðan öll hlutabréf í Myllunni-Brauði hf., fyrirtæki
sem var stofnað og sljórnað af sömu ijölskyldunni frá 1959. Þá
eru ótalin kaup á Kexsmiðjunni, fyrirtæki sem stofnað var á
Akureyri 1996. Islensk-ameríska er einnig hluthafi ásamt Bygg
ehf. og Agústi Ármann í Tankinum hf. sem á og rekur veitinga-
staðina T.G.I. Friday's og Burger King í Smáralind.
Hjá Íslensk-ameríska og fyrirtækjum sem eru að öllu eða að
hluta í þess eigu starfa um 400 manns og heildarársveltan
nemur um 5,4 milljörðum.
Glaðsinna
vinnuforkur
16