Frjáls verslun - 01.05.2004, Side 43
KONUR í lflÐSKIPTALÍFINU
Kristín Pétursdóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI HJÁ KB BANKA
Tlvær konur eru framkvæmdastjórar hjá Kaupþingi-Búnaðar-
banka, Kristín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri ljárstýr-
ingar, og Guðný Arna Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri flár-
málasviðs. Kristín er þjóðhagfræðingur að mennt, með háskóla-
próf frá Háskóla Islands og mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum
frá Noregi. Hún hefur starfað hjá Kaupþingi-Búnaðarbanka frá
1997, síðustu árin sem framkvæmdastjóri flárstýringar.
Sem framkvæmdasljóri flárstýringar sér Kristín um fjár-
mögnun bankans, lausaijárstýringu, gjaldeyris- og afleiðuvið-
skipti og situr um leið í framkvæmdastjórn bankans. í dag er
bankinn að miklu leyti fjármagnaður erlendis. „Eg ber ábyrgð á
verkefnum míns sviðs. Starfið felst mikið í samvinnu við önnur
svið innan bankans. Við vinnum í opnu umhverfi, allir fram-
kvæmdastjórarnir vinna með sínu fólki á gólfinu og við erum
því öll vel tengd því sem er að gerast, hvort sem það er innan
okkar deildar, á markaði og í öðrum deildum íýrirtækisins. í
svona opnu umhverfi verður samvinnan mjög óformleg og sam-
vinna er jú lykilatriði, að fólk nái vel saman og tali saman.
Boðleiðir verða svo miklu styttri og einfaldari með þeim hætti.“
KB banki hefur stækkað og breyst gríðarlega mikið frá því
að Kristín hóf þar störf 1997. „Þá var ég starfsmaður númer 55,
í dag er þetta 1.300 manna fýrirtæki. Þetta hefur verið
skemmtilegur og spennandi tími og það hefur verið frábært að
taka þátt í þeim breytingum sem bankinn hefur gengið í
gegnum,“ segir hún og telur spennandi tíma framundan í
bankanum. Bankinn sé kominn vel á veg í uppbyggingu
erlendis og sú uppbygging skipti sífellt meira máli í starfsemi
bankans. Tækifærin innanlands séu takmörkuð því að
markaðurinn sé lítill og samkeppnin mikil.
„Okkar markmið er að verða leiðandi fjárfestingabanki á
Norðurlöndum. Eg held að við séum komin vel á veg að því
markmiði. Það eru gríðariega spennandi tímar framundan og
mikið af spennandi verkefnum tengd útrás og því sem við
erum að gera erlendis. Bankinn hefur stækkað mikið sl. sjö ár
og sú þróun heldur áfram. Það er mikið af spennandi verk-
efnum framundan."
Kristín telur að tvær konur af níu í framkvæmdastjórn
bankans endurspegli kynjaskiptinguna í geiranum. Karlmenn
séu í meirihluta í framlínunni í bankageiranum almennt og
fleiri karlar virðist sækjast eftir og haíi áhuga á starfsframa en
konur. „Þetta er ekki svona endilega af því að þessar stofnanir
vilji hafa það þannig. Mín skoðun er sú og það er mín reynsla
að það hafi aldrei hamlað mér að vera kona í þessum geira. Svo
er hitt að karlar sækjast meira í að komast í áhrifastöður. Konur
veigra sér kannski stundum við að sækjast eftír ábyrgðar-
stöðum og það er þeirra val,“ segir hún.
Kristín hefur sett sér markmið og unnið að þeim án þess að
velta mikið fyrir sér hvort það að hún sé kona setji henni
einhveijar hindranir. „Ef þú veist hvað þú vilt og hefur
menntun og hæfileika, stefndu þá að markmiðum þínum án
þess að gefa þér fyrirfram að kynferði þitt skipti máli!“ ffl
Kristín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri hjá KB banka. „Ef þú veist hvað þú vilt og hefur menntun og hæfileika, stefndu þá að
markmiðum þínum." Mynd: Geir Ólafsson
43