Frjáls verslun - 01.05.2004, Side 66
FRETTIR
Katrín S. Óladóttir, formaður FKA og framkvæmdastjóri
Hagvangs.
Byggja upp
tengslanet
Starfið hefur gengið mög vel. Félagskonum ijölgar
stöðugt og eru nú yfir 400 konur skráðar í félagið.
Einnig höfum við verið að efla tengsl við landsbyggðina
og höfum haldið félagsfund á Akureyri í því skyni. Markmiðið
er að virkja konur meira úti á landi. Þá er í undirbúningi inn-
ganga í alþjóðleg samtök frumkvöðla sem voru stofnuð í
Frakklandi á sínum tíma. Við förum á heimsþing þessara
samtaka í október þar sem aðild okkar hefur verið formlega
samþykkt. Þetta er það helsta sem er á döfinni,“ segir Katrín
S. Oladóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA.
FKA var stofnað árið 1999 og er Katrín nú að sitja sitt
annað ár sem formaður. Markmið félagsins er meðal annars
að byggja upp stórt og öflugt tengslanet kvenna í viðskipta-
lífinu. Þá er félagið að mynda samstarf með „Auði í krafti
kvenna" en þær Auðarkonur, sem hafa stofnað sín fyrirtæki,
hafa starfað með FKA og margar þeirra eru þegar komnar
inn í félagið. „Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að konur
myndi öflugt tengslanet eins og karlar hafa gert í gegnum
tíðina. Til að konur nái árangri þá þurfa þær að byggja upp
tengslanet því að tengsl skipta miklu máli í viðskiptum. Við
vorum með ráðstefnu í apríl um tengslamyndun og kölluðum
hana „Tengsl eru tækifæri“,“ segir hún.
- Hvað græða konur á því að vera í félaginu?
„Þetta er fyrst og fremst sameiginlegur vettvangur fyrir
konur til að koma saman og kynnast og læra af reynslu
annarra. Þær fá gríðarlegar upplýsingar og tengsl við aðrar
konur, geta miðlað reynslu og þekkingu auk þess sem fyrir-
tæki þeirra verða sýnilegri í viðskiptalífinu þegar svo stór
hópur kvenfyrirtækja er saman kominn. Konurnar eru alltaf
að læra. Eg sé að yngri konurnar í félaginu læra af þeim eldri
og öfugt, þeim þykir gott að gefa gengið í smiðju annarra
kvenna. Algengt er að konur vita ekki hvar þær eiga að leita
sér upplýsinga. Konur hafa ekki verið áberandi í rekstri og
hafa jafnvel fundist þær fá lakari þjónustu en karlar í gegnum
tiðina. Við finnum að þetta er að breytast. Konur eru farnar
að segja að það sé tekið vel á móti þeim í bankanum." SS
Konum fjölgar í fasteignasölu
Kvenkyns sölumönnum í fasteignaviðskiptum hefur
ljölgað verulega á síðustu árum. Fyrir tíu árum var
þetta karlastétt, í dag hefur konunum ljölgað veru-
lega. Þó er munur á því hvort um löggilta fasteignasala er
að ræða eða bara sölumenn. Aðeins hafa um fimm konur rétt-
indi sem löggiltir fasteignasalar og hafa haft í mörg ár en þær
eru mun fleiri sem starfa sem sölumenn. Þetta er mat Magn-
úsar Einarssonar, framkvæmdastjóra Félags fasteignasala.
„Ég held að þetta sé rétt Það eru
ekki til neinar tölur um þetta en það
er greinilegt að konum hefur fjölgað.
Maður verður greinilega var við það
og þarf bara að fletta Morgunblaðinu til að sjá það. Aður var
þetta karlastétt en konunum hefur ijölgað töluvert mikið. Er
þetta ekki svona í öllum stéttum? Konur taka að sér eitthvað
sem þær hafa ekki gert áður?“ segir hann. S3
Konum hefur fjölgað
í stétt fasteignasala á
síðustu fimm árum.