Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 114
KONUR í VIÐSKIPTALÍFINU
Agústa Johnson framkvæmdastjóri: „Vinsældir einkaþjálf-
unar hafa aukist gríðarlega síðustu misseri því íslendingar
eru að átta sig á því að einkaþjálfunin skilar afar góðum
árangri á skömmum tíma."
Hreyfing:
Góðar
lausnir
Agústa Johnson hefur rekið likamsræktarstöð frá árinu
1986 og er nú annar eigandi og framvæmdastjóri
Hreyfngar. í Hreyfingu er lögð höfuð áhersla á persónu-
legt viðmót og vandaða þjónustu og hver einstakur starfsmaður,
sem hefúr störf í stöðinni, fær þjálfun sem miðast við gildin
tjögur, gæði, góð líðan, góðar lausnir og gaman.
„Þegar nýr viðskiptavinur kemur í Hreyfingu tekur þjón-
ustufulltrúi á móti honum, sest niður með honum, fer yfir
markmið hans með honum og veitir ráðgjöf í samræmi við
þau,“ segir Ágústa. „Þjónustufulltrúinn sýnir viðskiptavini
aðstöðuna og aðstoðar fólk við að bóka tíma í tækjakennslu og
fleira sem þvi tilhevrir."
Fjölbreytl úrval þolfimitíma í Hreyfingu er að finna ijöl-
breyttasta úrval landsins af þolfimitímum. Meira en 100
mismunandi tímar eru í boði á viku fyrir byijendur jafnt sem
lengra komna. „Hreyfing hefur alltaf státað af því að hafa starf-
í Hreyfingu eru í
hávegum höfð gildin
flögur: Gæði, góð
líðan, góðar lausnir
öggaman.
sem lykilorðin eru árangur og
andi bestu þolfimileiðbein-
endur bæjarins enda sækjast
þolfimileiðbeinendur fast eftir
því að starfa hjá okkur,“ segir
Agústa. „Aðaláherslur þol-
fimideildar Hreyfingar eru að
hafa í boði fjölbreytta tíma þar
skemmtilegt."
flöeins konur Það eru eingöngu konur í stjórnunarstöðum í
Hreyfingu. Ekki vegna þess að það sé sérstök stefna hjá fyrir-
tækinu að sögn Ágústu, heldur af tilviljun. „Það er skemmtileg
tilviljun finnst mér en hjá fyrirtækinu starfa nú um 60 manns.
Fyrir utan mig eru í stjórnunarstöðum þær Unnur Hilmars-
dóttir aðstoðarframkvæmdasljóri, Bryndís Hákonardóttir, sem
stýrir einkaþjálfunar- og söludeild, Andrea Olafsdóttir í barna-
gæslu, Guðbjörg Finnsdóttir, sem er með lífsstílsnámskeið,
Anna Eiríksdóttir í þolfimideild og Ásta Sóllilja, móttökustjóri."
Ágústa, sem eiginlega verður að teljast fyrirmynd íslenskra
kvenna hvað varðar góðan lífsstíl, segist lítið finna til þess að
vera kona í viðskiptalífinu. „Eg hef átt góð samskipti og viðskipti
við karlana og aldrei upplifað annað en að þeir líti á mig sem
jafhingja," segir hún. Aðspurð segist hún ekki lifa neinu
meinlætalifi og láta ýmislegt eftir sér - en í hófi þó.
Lífsstílsnámskeið Hjá Hreyfingu eru haldin margvísleg nám-
skeið og að öðrum ólöstuðum eru 8 vikna lífstílssnámskeiðin
vinsæl en þau eru í boði allan ársins hring og hafa mörg þúsund
konur og karlar náð góðum árangri á þeim. Námskeiðin
byggjast upp á mikilli fræðslu og aðhaldi og auðvitað skemmti-
legri, árangursríkri og Jjölbreyttri þjálfun.
„Yið erum að bjóða spennandi nýjung sem er Pilates, en það
hefur farið eins og stormsveipur um allan heim,“ segir Agústa.
„Við bjóðum bæði námskeið og einkaþjálfun en þetta er ein-
stakt æfingakerfi sem skilar frábærum árangri og er með
áherslum sem ekki hafa þekkst til þessa í hefðbundnum æfinga-
kerfum. Svo hafa vinsældir einkaþjálfunar aukist gríðarlega
síðustu misseri því Islendingar eru að átta sig á því að einka-
þjálfunin skilar afar góðum árangri á skömmum tíma. I
Hreyfingu er starfandi sérstök einkaþjálfunardeild sem stýrt er
af Bryndísi Rögnu Hákonardóttur viðskiptafræðingi. Stefna
Hreyfingar er að allir einkaþjálfarar hafi íþróttakennara- eða
sjúkraþjálfunarmenntun eða viðurkennd réttindi frá ACE
(American Council on Exercise). Allir þjáifarar starfa innan
ákveðins ramma sem Hreyfing setur. Aðalsmerki einkaþjálf-
unardeildarinnar er fagmennska og starfa þjálfarar ávallt eftir
nýjustu faglegum upplýsingum og vísindalegum rannsóknum á
hvetjum tíma.“
0ð börnin líka Barnagæsla Hreyfingar er rómuð fyrir hinar
frábæru gæslukonur sem starfa þar undir styrkri stjórn Andreu
Ólafsdóttur. Börnunum líður vel og finnst gaman og vilja koma
aftur og aftur. Foreldrar nýta sér barnagæsluna í auknum mæli
og eru áhyggjulausir að æfa á meðan. Œj
114