Frjáls verslun - 01.05.2004, Síða 128
KONUR í UIÐSKIPTALÍFIIMU
Heyrum mikið í viðskiptavinum Þó að starf þjónustustjóra sé
að stórum hluta pappírsvinna þá ijallar það lika um mannleg
samskipti, bæði samstarfið innan útibúsins og samstarfið við
viðskiptavini. Viglín segir að starfsmenn útibúsins leggi áherslu
á persónulega þjónustu og hraða afgreiðslu því að boðleiðirnar
séu stuttar. Viðskiptavinir hafi mikið samband við starfsmenn
útibúsins í gegnum tölvupóst, fax og síma. Minna sé hinsvegar
um að þeir komi í útibúið enda er það svo sem í takt við
þróunina í bankaviðskiptum síðustu árin. Viðskiptín séu þannig.
„Viðskiptavinir nýta sér mikið Fyrirtækjabankann, skoða
stöðuna á reikningum sínum, millifæra o.fl. Við erum með
góðan Fyrirtækjabanka sem er fremstur í sinni röð og ný tækni
auðveldar stjórnendum yfirsýn yfir fjármálin þannig að þeir
geta séð um flesta hlutí sjálfir. En auðvitað koma viðskipta-
vinirnir líka til okkar eða við heimsækjum þá tíl að ræða við-
skiptin og efla tengslin. Við heyrum því mikið í viðskiptavinum
okkar, sem er hið besta mál,“ segir hún.
Umhverfið er síbreytileyt Sem þjónustustjóri er Viglín stað-
gengill útibússtjóra. Hún hefur verið þjónustustjóri í tvö ár en
hefúr unnið hjá SPRON í tæp tíu ár með hléum. Hún byrjaði
fyrst í gjaldeyrisdeildinni árið 1988. Viglín er Eyfirðingur að
uppruna og hefur stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akur-
eyri. Hún stundaði nám í markaðshagfræði í Danmörku og
lauk því árið 1996. Hún stefndi að því frá námi að starfa í fjár-
málafyrirtæki á borð við SPRON.
Viglín Óskarsdóttir, þjónustustjóri í Fyrirtækjaútibúi SPRON í
Ármúla. „Mikil áhersla er lögð á endurmenntun starfsmanna
og við höfum fengið að fara á flest þau námskeið sem við
höfum óskað eftir. Það er mikill kostur í umhverfi þar sem
allir þurfa að fylgjast með og vera vel með á nótunum."
Mynd: Spron
,Áhugasvið mitt er tjölbreytilegt og m.a. starfið sjálft og
þau mannlegu samskipti sem því fylgja. Eg vinn í góðu fyrir-
tæki með góðu fólki en þetta fyrirtæki passar vel upp á sína
starfsmenn. Þetta er frábært útibú og ekki mikið mál að
stjórna þeim góða hópi sem hér starfar, þetta er sjálfstæður og
Spron:
Forréttindi að starfa hér
að felst ansi mikið í því að vera þjónustustjóri. Ég hef
mikil samskipti við viðskiptavini og sé um ýmis innri
málefni, t.d. að halda utan um starfsmannamál útibúsins
og annað sem viðkemur daglegum rekstri, svo eitthvað sé
nefnt. Starfið er flölbreytt og viðamikið en við erum 10 starfs-
menn í allt hér og við eigum viðskiptí við mörg fyrirtæki af
öllum stærðum og gerðum.
Aðaláherslan hefur samt verið
á lítil og meðalstór fyrirtæki,
en við höfum sérhæft okkur í
þjónustu við þau.“ segir Viglín
Oskarsdóttir, þjónustustjóri í
Fyrirtækjaútibúi SPRON við
Armúla 13a.
vel menntaður hópur og við leggum áherslu á samvinnu. Það
eru forréttindi að starfa með þessu fólki. Sparisjóðirnir hafa
komið vel út í ánægjuvoginni í mörg ár í röð og útibúið hér
hefur komið vel út úr vinnustaðagreiningum. Mikil áhersla er
lögð á endurmenntun starfsmanna og við höfum fengið að
fara á flest þau námskeið sem við höfum óskað eftir. Það er
mikill kostur í umhverfi þar sem allir þurfa að fylgjast
með og vera vel með á nótunum," segir hún.
Viglín kveðst vera mjög sátt við starf sitt, segir mikil
tækifæri liggja í starfsemi útibúsins enda sé umhverfið
síbreytilegt og kröfurnar sem gerðar séu til starfsmanna
miklar, það sé í eðli starfsins. „Enginn dagur er eins í
þessu starfi sem gerir það mjög spennandi en jafnframt
kreijandi." SH
Viglín Óskarsdóttir er
þjónustustjóri í Fyrirtækja-
útibúi SPRON og sér um
samskipti við viðskiptavini og
ýmis innri málefiii er snúa að
daglegum rekstri útibúsins.
128