Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 133
FYRIRTÆKIN A NETINII - FERÐALQG
Munur á verði og
þjónustu flugfélaga
Sífellt fleiri nota Netið til að skipuleggja ferðalög erlendis. Munur getur verið á verði og
þjónustu flugfélaga í Evrópu eftir búsetu þó að slíkt sé með öllu óheimilt
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Griðarlegur munur er á þjónustu flugfélaga á
Netinu og nokkuð hefur verið um að fólki sé
mismunað í verði eftir búsetu. Stefán Haralds-
son, formaður Farfugla og framkvæmdastjóri Bíla-
stæðasjóðs, er að fara með ijölskyldu sína til Seúl í
júní. Stefán skipulagði og bókaði flugið á Netinu en
varð var við að erfiðlega getur gengið að fá þjónustu
á Netinu. Þriðjudaginn 13. apríl sendi hann fyrir-
spurn til Icelandair um það hvort hann gæti notað
vildarpunkta í ferð frá Islandi til London. Þegar svar
við þeirri fyrirspurn hafði ekki borist mánudaginn
26. apríl hringdi hann í Vildarklúbb Flugleiða og
fékk þau svör að þar væri mikið að gera. Eftir langa
mæðu fékk hann að bóka flugið í gegnum símann og
borgaði fyrir það 1.800 krónur.
Stefán hefur talsverða reynslu af því að nota
Netið til að skipuleggja ferðalög sín um heiminn.
Fram til 2000 notaði hann Netið einkum til að
„gramsa“, finna hagstætt verð á flugi og fá starfs-
menn ferðaskrifstofa til að panta það fyrir sig. I
seinni tíð hefur hann reynt að skipuleggja og kaupa
ferðalög sín á Netinu svo að ferðakostnaðurinn stígi
ekki upp úr öllu hófi. Stefán og eiginkona hans hafa
þá bæði gengið í það að leita að sem hagstæðustum
ferðatilboðum og reynt að skipuleggja ferðina
þannig að þau komist tafarlaust á leiðarenda. Þegar
Stefán og kona hans voru að skipuleggja fríið í Seúl
bauðst þeim flug hjá Icelandair frá Keflavík til Seúl
fyrir um eða yfir 200 þúsund krónur á manninn.
Netleitin endaði með því að þau keyptu flug með Air
France í gegnum Ebookers.com frá London til Seúl
gegnum París.
Gróft brot Ó reglum ESB Sagt er að það geti verið
mismunandi eftir búsetu hvað flug kostar á Netinu. Stefán
og kona hans urðu áþreifanlega vör við það. Þau fundu
tilboð um flug með hollenska flugfélaginu KLM frá London
til Seúl á tæpar 70 þúsund krónur. Þar var þó einn hængur
á. Þegar kom að því að slá inn
kreditkortanúmerið kom í Ijós
að tilboðið gilti einungis fyrir
fólk búsett í Bretlandi. Þetta er
gróft brot á reglum ESB. „Það
er algjörlega útilokað að þetta
gangi, það er ekki flóknara en
það,“ segir Einar Páll Tamimi,
forstöðumaður Evrópuréttar-
stofnunar Háskólans í Reykja-
vík. Hann kannast við að það
hafi verið viðloðandi vandamál
um nokkurt skeið að mönnum
hafi verið mismunað í verði eftir
búsetu á Netinu en segir átak í
gangi hjá ESB, m.a. sé verið að
skýra og skerpa reglur til að
koma í veg fyrir þessa
mismunun. Islendingar sem verði varir við svona misnotkun
geti gert tvennt, kvartað til framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins eða stefnt flugfélaginu fyrir Evrópudóm-
stólnum. [B
Viðskiptavinir mega vara
sig á því að vera mismunað
í verði efdr því í hvaða
landi þeir búa. ESB er með
átak í gangi til að stemma
stigu við þessu.
Gagnlegir vefir
www.cheapflight.com
www.cheapflight.co.uk
www.ebookers.com
www.usaguides.com
www.budgetfares.com
Stefán Haraldsson og María Rún Stefánsdóttir á temasýningu úr
Return of the Mummy í Universal Studios í Hollywood.
Mynd: Guðrún Indriðadóttir
VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR ■ FERÐALÖG • VÍN - WWW.HEIMUR.IS
133