Frjáls verslun - 01.05.2004, Síða 135
hafðar kröftugar sósur með ijóma og jafnvel gráðosti. Þar sem
Syrah-vín er áfengt og tannínríkt, vegur það vel upp á móti feitri
sósunni. Syrah-vin er, eins og áður sagði, rétta vínið með pipar-
steikinni, þá er það tilvalið með pastaréttum með bragð-
sterkum sósum og glóðarsteiktu kjöti. Syrah hentar vel með
osti og einnig með sætum og kröftugum efdrréttum, þar sem
aðaluppistaðan er súkkulaði.
Syrah-sósa með dalayrju Fyrir allmörgum árum var ég sem
oftar staddur í Frakklandi, nánar til tekið í Champagne-héraði.
Um kvöldið fór ég á lítinn notalegan veitingastað. A matseðl-
inum var ungnautakjöt. Pantaði ég lund sem var frábærlega
góð. Það sem gerir þessa máltíð þó eftirminnilega var sósan,
hún var himnesk. Mér tókst að fá uppskriftina af henni og mér
er sönn ánægja, lesendur góðir, að birta hana hér.
Það sem harf:
50 gr rótarsellerí, fínt saxað
1 gulrót, fínt söxuð
2 Charlottulaukar, fínt saxaðir
1 msk smjör
3 dl Syrah rauðvín
2 dl ijómi
75 gr Dalayija
11/2 msk sojasósa
Maizenamjöl, hrært út í vatni
fl. Steikið grænmetið í smjörinu í potti. Bætið víninu í pott-
inn og látið sjóða við vægan hita í 15 mín.
B. Síið rauðvínið frá grænmetinu og hellið því í aftur í pott-
inn. Setjið rjómann í pottinn og sojasósuna. Myljið ostinn út í
sósuna og hrærið vel saman við. Þegar osturinn hefur leyst upp
í sósunni er hún þykkt með maizenamjöli eða sósujafnara.
Syrah í Ríkinu Nokkur ágæt Syrah-vín eru í verslunum
ATVR Því miður vantar góð Hermitage og Cótie Rótie úr Rhón-
ardalnum. Eiginlega verður það að segjast eins og er að úrval-
ið af Rhonevínum er lítið spennandi. Frá Kaliforníu kemur hins
vegar skemmtilegt vín, Clay Station Shiraz, á kr. 1.690. Það er
einkar ljúft, sólbrennt, milt en hefur öll einkenni góðs Syrah-
víns. Annar góður Kani er Columbia Crest Grand Syrah, kr.
1.640. Þetta er öndvegisvín með þægilegum ilmi af leðri, léttu
kryddbragði og góðum ávexti, flott með lambakjöti. Þetta vín
er frá Columbia Yalley í Washingtoniylki en þaðan koma nú
orðið mjög áhugaverð Syrah-vín. Frá Chile kemur stórgott vín
á fínu verði, Monte Alpha Syrah, kr. 1.790. Þetta er flókið vín,
aðalbláber, grænn og svartur pipar, vanilla og sveskjur. Dúndur
vín en þó ljúft. Frá Astralíu kemur Wyndham Bin, 555 Shiraz,
kr. 1.490. Þetta er ekta Astrali, ósköp venjulegur á sæmilegu
verði. Wolf Blass President Selection Shiraz á kr. 2.100. Þetta er
frægt vín, elskað og dáð. Það er þungt, vel eikað, dimmrautt
með kröftugum ávexti. Þetta vín krefst góðrar nautasteikur
með matarmikilli piparsósu. Svipað vín, en ef eitthvað er,
nokkuð kröftugra er Peter Lehmann Stonewell Shiraz, kr.
3.390. Þetta er ástralskur bolti, magnað vín - sinfónía af bragð-
upplifunum. Þetta vín er sannkallaður Ástrali. Eitt athyglisverð-
asta Syrah-vínið í ríkinu er einnig frá Peter Lehmann. Það er
Peter Lehmann The Futures Shiraz, kr. 1.790. Hvers vegna, jú
vegna þess að það er á fínu verði, hefur alla kosti góðs Syrah-
víns frá Ástralíu. Þetta er þó ekki bolti, ekki of þétt eða of
kryddað né of eikað. Þetta vín er frekar léttur Syrah eða Shiraz
eins og Ástralir segja. I einu orði sagt, flott og gott matarvín.
Vínið er purpurarautt, í nefi er moldar- og jarðarilmur. Milt
eikarbragð, einnig gætir votts af súkkulaði og myntu. S3
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum Syrah-vín-
tegundum:
Clay Station Shiraz kr. 1.690,-
Columbia Crest Grand Estates Syrah kr. 1.640,-
Montes Alpha Syrah kr. 1.790,-
Wyndham Bin 555 Shiraz kr. 1.490 -
Wolf Blass Presidents Selection Shiraz kr. 2.100,-
Peter Lehmann Stonewell Shiraz kr. 3.390 -
Peter Lehmann The Futures Shiraz kr. 1.790 -
135