Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 136

Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 136
Birgir Hrafnsson hjá Bakkusi ehf. Texti: ísak Örn Sigurðsson Bakkus ehf. var stofnað 16. mars í fyrra, á degi sem kallaður hefur verið Guðmundardagurinn og er kenndur við Guðmund hinn góða. Sá dagur er mér tölu- vert hugleikinn. Um 1920, þann 13. mars, gerði mikið og gott veður hjá afa mínum og ömmu sem bjuggu vestur í Langadal við ísaljarðardjúp. Eins og þá tíðkaðist í góðum vetrarveðrum, var kindum hleypt út til að viðra sig. Síðan skafl á óvæntur bflndbylur og kindurnar týndust. An kinda var aflt útlit fyrir að bregða þyrfti búi og útlitið svart. Þann 16. mars birti hins vegar til og aflar kindurnar komu í leitirnar heilar á húfi. Aflar götur síðan hefur þessi dagur verið í hávegum hafður hjá minni ætt,“ segir Birgir Hrafnsson, framkvæmda- stjóri Bakkusar ehf. „í tilefni af þessum degi ákvað ég að stofna Bakkus víninnflutningsfyrirtækið 16. mars í fyrra. Eg stofnaði Bakkus í framhaldi af því að ég hætti störfum hjá sams konar fyrirtæki sem hét Iind. Þar hafði ég verið fram- kvæmdastjóri frá stofnun þess 1993 þar til að eigandi Lindar keypti ölgerðina Egil Skallagrímsson og sameinaði Lind því fyrirtæki. Eg fór ekki inn í þann samruna og í beinu framhaldi ákvað ég stofnun nýs fyrirtækis. Nokkrir vínframleiðendur ákváðu að segja upp samn- ingum við ölgerðina og fylgja mér inn í nýtt fyrirtæki. Allar söluáætlanir á þessu ári hafa staðist og reksturinn gengur vel. Meðeigandi minn og sölustjóri fýrirtækisins er Sverrir Eyjólfsson. Bakkus selur eingöngu léttvín og bjór - Löwenbrau, sem íslendingum er að góðu kunnur. Astæða þess að við höldum okkur einungis við léttvín auk bjórsins, er sú að þar er vaxtarbroddurinn, menningin og ábyrgðin í neyslunni. Við höfum hægt og bítandi bætt við okkur nýj- um tegundum léttvíns og verslum mikið með léttvíns- tegundir frá Frakklandi, Ítalíu, Chile og Argentínu. Argentína hefur verið að hasla sér völl um allan heim með frábærar víntegundir. Eins og margir á mínum aldri, tók ég þetta klassíska gagnfræðapróf og byrjaði á framhaldsnámi en stoppaði þar stutt við, því hugurinn stefndi á heimsfrægð með hljómsveitunum Svanfríði og Change. Skólagöngunni lauk því þar með. Þegar ég hætti spilamennsku með hljóm- sveitum, stofnaði ég hljóð- færaverslunina Tónkvísl og rak í ein 12 ár. Þegar ég hætti rekstri hennar, tók ég til starfa hjá Ólafi Laufdal, var þar markaðsstjóri og tók við af Björgvin Hafldórssyni. Þar var ég þar til ég datt inn í víninn- flutninginn árið 1989. Áhuga- mál mín hafa oft einkennst af því sem ég hef verið að fást við hverju sinni. Eg er kannski einn af þeim sem sameina áhugamál og vinnu, hvort sem það er kostur eða löstur. Þess skal getið að ég hef sl. 11 ár spilað með hljómsveitinni Pops á hverju ári á nýársfagn- aði ‘68 kynslóðarinnar. Ég hef reyndar afltaf haft gaman af veiðum og er í veiðiklúbbnum „Top of the line“ ásamt Björg- vin Hafldórssyni, Óttari Felix Haukssyni, Einari Bárðarsyni og fleiri veiðiklóm. Við förum afltaf saman í 2-3 veiðiferðir á hvetju ári.“ Birgir er kvæntur Oddný Indíönu Jónsdóttur og þau eiga 3 börn á aldrinum 20- 32 ára. Á heimilinu er hundur- inn Bordó, sem er skírður í höfuðið á Bordeaux, þekktasta vínhéraði heims, og tveir kettir og búa þau hjónin að sögn á friðsælum stað í Mosfellsbæ. 33 136
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.