Ný saga - 01.01.1988, Side 76

Ný saga - 01.01.1988, Side 76
 | miðja 19. öld, en vissi ekki hvernig fólk eldaði mat sinn á þessum tíma. Það vantar að vissu leyti þetta „miljö“ sem þessir ágætu baráttumenn hrærðust í. TÖLVAN OG FRAMTÍÐIN Hvernig komast menn í þessar skrár? Getur Jón Jóns- son komið hér inn og fengið aðfara ígegnum þetta eins og hann vill? Já, já, þetta er í rauninni öll- um opið hér. Það er aðgengi- legt nema hvað það vantar vinnupláss. Það á nú að fara að verða hér viss umsköpun í húsinu og þá verður aðeins meira vinnupláss. Það sem hefur einna helst hindrað þetta er að þegar fólk vill komast í þessar skrár þá er vandinn að finna einhvern stól og kompu handa því að sitja í en það hefur þó talsvert verið gert. Það er töluvert af stúd- entum í sagnfræði sem hafa skrifað stuttar ritgerðir uppúr einhverju hér og það eru fleiri tugir ritgerða sem við eigum hér afrit af. Einnig hafa nem- endur Kennaraháskólans nýtt sér þetta safn. Þetta er í sjálfu sér aðgengilegt, það má hver sem er fá þetta í hendur og skoða það en ekki fara með það útúr húsi nema helst í brynvörðum bíl. Það er ekk- ert afrit til af þessu ennþá. Hitt er annað mál hvernig megi nota þetta opinberlega. Þessi spurning var rædd þegar ég var síðast á fundi um þessi mál úti í Osló, samnorrænum fundi. Það er spurningin, að hve miklu leyti eru þetta trún- aðarmál sem við erum þarna með. Það hafa komið upp vandamál þar sem hafa varla komið upp hér ennþá, en þau gætu komið til ef ætti að fara að nota þetta og nota nöfn í einhverjum ritgerðum eða bókum sem ættu að koma út á prenti. Við gætum kannski staðið frammi fyrir lagalegu og alla vega siðferðilegu vandamál þar, sem hafa varla um við nú haft þetta þannig, ef við höfum sjálf annaðhvort skrifað eða flutt eitthvað í út- varp, að við nefnum ekki nöfn. Við nefnum kannski „kona fædd fyrir aldamót í Norður-Þingeyjarsýslu“ en ekki meira. Þetta er visst vandamál sem getur jafnvel snert höfundarrétt. Það er ekkert gengið frá þessum málum þegar skrárn- ar eru sendar út? Nei, það hefur ekki verið gert og við höfum ekki þorað að vera að því. Við vitum ekki hver réttarstaðan er. Við erum líka hrædd við að þetta myndi kannski fæla fólk frá. Hitt er annað að sumir vilja óðfúsir að þetta komist á prent. Suma dreymir eiginlega um að það verði gefið út. Hvernig ergengið frá þess- um upplýsingum núna og h vernig ætlið þið að ganga frá þeim í framtíðinni? Hvert einasta atriði sem inn kemur er skráð í aðfanga- bók og flokkað eftir því við hvaða spurningaskrá svörin eru. Svör við hverri skrá eru í sérstakri skúffu og í hverri skúffu er þessu raðað topografískt í kringum landið eftir sýslum eða kaupstöðum. Síðan hefur maður spjaldskrá yfir heimildarmennina og maður hefur aðra spjaldskrá yfir hvað hefur komið úr hverju sveitarfélagi eða hverri sýslu. Svo hefur smám saman verið reynt að koma upp at- riðisorðaskrá, sérstaklega yfir það efni sem berst okkur án þess að vera svör við spurn- ingaskrám. Það er dálítið um að efni berist okkur þannig. Þessi atriðisorðaskrá á eftir að breytast með tilkomu tölvu- væðingarinnar. Það er náttúrlega ótækt að þetta sé bara til í einu eintaki. Sú hugmynd var lengi uppi að láta ljósrita þetta allt svo þetta væri til í tveim eintökum og annað eintakið væri geymt einhvers staðar annars staðar. Það væri heilmikið verk því ég reikna með að þetta sé í kring- um 100.000 bls. sem eru núna í þessu skjalasafni. En eftir að við komumst á bragðið í fyrra að taka þetta inn á textaleitar- forrit þá opnar það allt aðra möguleika. Eins og ég sagði, Orðabókin tók þarna inn svör við einni skrá, hún var upp undir 2000 bls. Síðan fengum við fé á þessu ári, um 800,000 krónur, sumpart úr ráðuneyt- um, sumpart úr ríkisfyrir- tækjum eins og vegamála- skrifstofunni og veðurstof- unni, þannig að það hefur verið haldið áfram að slá inn heimildir eða svör. Og núna er á fjárlögum gert ráð fyrir Þetta er í sjálfu sér aðgengilegt, það má hver sem er fá þetta í hendur og skbða það en ekki fara með það útúr húsi nema helst í brynvörðum bíl. En það verður að sýna það á skjánum sjálfum hvað hægt er að galdra fram miklar upplýsingar með þessum forritum. Það er bara allt annað líf. /J i . 74
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.