Ný saga - 01.01.1988, Síða 90
Erlendur Sveinsson
ÍSLAND í LIFANDI MYNDUM
FYRSTU TVEIR ÁRATUGIR ALDARINNAR í LIFANDI MYNDUM
✓
Islenskar kvikmyndir og
kvikmyndir teknar af er-
lendum mönnum á ís-
landi spanna raunverulega
yfir alla öldina. Sú mynd sem
þær gefa af landi og þjóð verð-
ur talsvert heillegri og
skemmtilegri en nú er, þegar
Kvikmyndasafn Islands verð-
ur búið að afla sér eintaka af
öllum þeim kvikmyndum frá
íslandi, sem þessa stundina er
vitað um í söfnum erlendis og
safnið hefur ekki haft tök á að
eignast fram til þessa. Myndin
yrði síðan enn heillegri, ef
tækist að hafa upp á ýmsum
áhugaverðum myndum, sem
við vitum að hafa verið teknar
hér á landi en ekki hafa komið
í leitirnar. Fjölmargar kvik-
myndir, sem álitnar voru glat-
aðar, fundust þegar undirrit-
aður vann að því á vegum
Kvikmyndasafns íslands
fyrstu starfsár þess að safna
saman þeim hátt í 700 kvik-
myndum sem þar eru nú varð-
veittar og það getur að sjálf-
sögðu enn gerst að myndir,
sem ekki er vitað um hvar séu
niður komnar komi í leitirnar,
þegar leitað er að þeim skipu-
lega og notast er við aðferðir
leynilögreglunnar. Hér yrði
of langt mál að gera grein fyrir
öllum þeim myndum, sem
ekki hafa enn fundist en til að
fá hugmynd um þetta mikil-
væga söfnunarverkefni skal
hér birt yfirlit yfir tvo fyrstu
áratugi aldarinnar, þar sem í
vinstri dálki eru kvikmyndir,
sem varðveist hafa en í hægri
dálknum kvikmyndir, sem
vitað er um að hafa verið gerð-
ar en ekki er vitað hvar eru
niðurkomnar.
YFIRLIT YFIR KVIKMYNDIR, SEM TENGJAST
TVO ÁRATUGI ALDARINNAR:1
VARÐVEITTAR KVIKMYNDIR:
1906-1910
1906: Þingmannaförin 1906 en
bað sumar þáði Alþingi ís-
lendinga boð danska þjóð-
þingsins um að íslensku þing-
mennirnir heimsæktu hina
dönsku kollega sína. P. Elfelt
kvikmyndaði.
1906: Slökkviliðsæfing í
Reykjavík.
1907: Konungskoman sumar-
ið 1907 (Kongens Islands-
færd) en þá heimsótti Friðrik
VIII Danakonungur ísland.
1911-1915
1911: Afhjúpun styttu Jóns
Sigurðssonar í Montreal í
Kanada.
1912: Glímufararnir 1912.
Sýnt glímuatriði íslensku’
sveitarinnar á Olympíuleik-
vanginum í Stokkhólmi.
1916-1920
1918: Berg-Ejvind och hans
hustru. Sænsk leikin kvik-
mynd gerð eftir leikriti Jó-
hanns Sigurjónssonar en
kvikmynduð á Lapplandi og
víðar. (Frumsýning á íslandi
1919.)
1919: Bíópetersen hefst handa
um að kvikmynda ýmsa við-
burði o.fl. til sýningar í Gamla
Bíói. Þetta ár kvikmyndar
hann t.d. fyrsta flugið á ís-
landi og komu danska kvik-
myndaleiðangursins til að
taka Sögu Borgarættarinnar.
1919: íslandskvikmynd Svíans
Gustavs Boge, gerð í a.m.k. 7
þáttum og sýnd í hlutum í
Nýja Bíói á árunum 1920-21.
Svo virðist sem einungis einn
þáttur þessarar myndar (nr. 5)
hafi varðveist og það er botn-
vörpuveiði með Agli Skalla-
grímssyni.
1920: Saga Borgarættarinnar.
Leikin kvikmynd gerð eftir
sögu Gunnars Gunnarssonar.
Útiatriði tekin á íslandi.
Frumsýning á íslandi 1921.
ma*«• bm mmmmmmt
isiands-kvikmynd
Leo Hansen.
Ný kvikmynd tckin i lumir *f kinam frag* d*n*k* kvik-
myndarH, uui fertaat hefir vi8»vegHr um heim til þen* »8 tak*
myndir *f náttúrueinkennum og >j68»rhittum. — 1 þ«**«ri
mynd eru nýndir fleitir fcguntu HtaSir Undsina, m. ». myndir
ofsn af jliklum og frá fouunum, sem hvergi eig» ainn lika.
Myndin *ýnir glögglega breytingar liSuatu 4r» á atvinnuvegum
t.i land* og sjávar.
AUir ver8n «8 sjá þesaa mynd.
Auglýsing um íslandsmynd Leo
Hansen árid 1929.
88