Vaki - 01.09.1953, Page 14

Vaki - 01.09.1953, Page 14
sína frægu setningu um hjartað: Le coeur a ses raisons que la raison ne connaít point, átti hann við þetta h'ffæri tilverunnar; engin tilslökun við tilfinningasemi heldur dýpra skyn manns á heild sinni. Þetta er krafa skáldskaparins: að túlka grunnreynslu hjartans. Því er það afneitun á hlutverki hans og frávik frá stöðu hans að skemmta, sem er svik við einmitt þessa reynslu, og til þess eins að gefa mönnum færi á að gleyma því sem gerir þá að mönnum og tilveruna að tilveru manns; sveipar hulu í stað þess að varpa ljósi. Skáldskapurinn er ekki einhvers konar farandprýði tilverunnar né heldur einhver skammvinn og hverful hrifning. Staður hans er á sjálfum burðar- grunni mannlegrar tilveru. Því er hann heldur ekki menningarfyrirbæri eða tján- ing einhverrar tiltekinnar menningar. Það er sjálf verund mannsins sem brýzt fram um skáldskapinn til þess að nefna og syngja tilveru mannsins sem hlutverk hans. Allur stór skáldskapur — og verk Rilkes ef til vill öðrum fremur — segir reynslu mannsins af burðaröflum tilverunnar, ógnum hennar og sælu. Sem þolin- móð heimspekin smíðar slíkri reynslu form í hugtökum verður hún í skáldskap mynd og orð. En reynslan og skáldskaparformið er jafnupprunalegt, verður ekki greint að: formið er inntakið sjálft. Orð og mynd verða ekki skilin frá þeirri reynslu er gefur þeim veruleik sinn. Forsenda skáldskaparins: skilningur þessarar einingar: form og hugsun og reynslan handan þeirra eru eitt sem tveir fletir myntar. Innblástur og túlkun eru óaðgreinanleg . . . 1 skáldskap Rilkes verður tilveran reynd heil og öll í hverju atriði. Hver mynd er heild og ekkert dregið undan. Hér er ekki um táknmyndir fyrir minn- ingar að ræða: .... Það eru eklci minningarnar sjálfar. Þegar þær eru orðnar blóð í oklcur, hreyfing handar, nafnlausar og verða ekki framar gróindar frá sjálfum okkur, þá fyrst getur það hent eina sjaldgæfa stund, að fyrsta orðið í Ijóði rísi upp í hvirfing þeirra og hverfi á braut frá þeim, segir Rilke í skáldsögu sinni, Die Aufzeichnungen des Malte Laurids Brigge. Til þess að slíkt geti hent verður að kunna að bíða. Bíða heila ævi. Rilke beið: hann skildi öll sín fyrri ljóð sem undirbúning. Og í lok lífsins eftir margra ára þögn og þjáning og takmarkalausa bið, brutust elegíurnar í gegnumhann sem ófjötrandi stormur. Nei, það verður ekki sagt með skilgreiningu hvað sé heimspeki og hvað sé skáldskapur. Né heldur hvert sé það líf, sem bæði heimspeki og skáldskapur eiga rætur í. Það er einn lærdómurinn sem dreginn verður af elegíum Rilkes; ef svar er til verður þess ekki leitað nema með þátttöku; maður verður sjálfur að gerast förunautur í leit heimspekingsins; skynja í eigin hjarta sögn skáldsins. önnur leið er ekki fær. En þannig fær maður kannske fundið, hljóðlega og orðalaust, hver er leið þeirra: að þær haldast í hendur yfir hyldýpið. Ég er sannfærður um að það er rangt sem víða er hald sérfræðinga, að elegíurnar séu „lýríkk“. Auk þess sem öll yfirborðskennd flokkun skekkir sjón manns á hlutinn sjálfan, virðist mér slík skoðun deyfa skynið fyrir veruleik þess boðskaps sem þær flytja lífi hvers og eins; hann krypplast, ljóðið veslast upp og deyr í þrengslum slíkra „skýringa“. Mér virðast þær vera ný sögn, nýr háttur að sjá og segja er hófst hjá Hölderlin og lykur um heimspeki og skáldskap í TÍMARITIÐ VAKI 12

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.