Vaki - 01.09.1953, Blaðsíða 44

Vaki - 01.09.1953, Blaðsíða 44
8. ágúst 1856 Æskilegast er að hugarflug og ímyndun fái að flytja erindi sitt ómengað. Franski skólinn leggur ríkasta áherzlu á nákvœma athugun fyrirmynda, en skeytir síður um þcer tilfinningar sem ráða starfi málara og myndhöggvara. Það er ein ástœðan fyrir niður- lœging hans. Frakkar hafa frá öndverðu lagt sig niður við stílsköpun eða frœðilegar rannsóknir á stílum, þykjast hafa fundið órugga leið þar sem aðeins eru villuljós. Þeim er svo gjarnt að sjá reglu í öllum hlutum . . . *) 22. febrúar 1860 Realisma œtti að skilgreina sem andstceðu listar. Ef til vill er hann mun and- styggilegri í málara- og höggmyndalist en í sagnfrœði eða skáldsagnagerð. Tœki skáldsins er agað mál, listrœnn tilbúningur sem magnar fyrir lesanda veruleika ofar viðjum dagsins; realistískt ljóð er mótsögn í orðalagi, reyndar spurning hvort hœgt er að tala um slíka firru. Hvernig á að framkvcema hann í höggmyndalist? Bein afsteypa af náttúruhlut er ólygnari en nokkur eftirlíking. Mér er spurn hvort nokkur trúi því að realisti geti varnað geði sínu að lita verkið þótt hann leggi á sig allar þrautir til að herma eftir náttúrunni. Nema farið sé svo langt að gera ráð fyrir að augu og hendur geti unnið sjálfstcett starf, en hver yrði árangurinn? Ef heitið realismi hefði ákveðna merkingu yrðu allir menn að hugsa og skynja eins. (Þarf að lita yfir það sem ég skrifaði í bláu rissbœkurnar um mun á leikriti sem þrœðir venjulega atburðarás og öðru sem bindur atburði í kerfi með tilliti til áhrifa). Hvað finn ég í nútíma skáldsögum? Upptalningar sem œtlað er að frœða lesand- ann, langa lista yfir hitt og annað, einkum venjulega hluti, smásmyglislegar lýsingar á fólki sem maður kynnist aldrei í athöfn. Mér þykir sem ég standi á vinnustað. en smiðir og múrarar œtla að fara að reisa hús, ég sé stafla af tilhöggnum steinum en aldrei hleðslu, hvorki hvelfingar né göng, því síður heilt hús þar sem listgreindin hefur komið á samrœmi milli einstakra hluta. 1 þessum skáldsögum eyðir höfundur fullt eins miklum tíma í að lýsa aukapersónum og þeim sem fara með mikilvœgustu hlutverkin, leggur sig í líma til að draga fram eðlisþœtti í manneskju sem varla kemur við sögu, hlutföll snúast við svo athyglin greinir naumast söguhetjurnar í öllu smœlkinu. Aðal- reglan er að kunna að fórna. Stakar mannlýsingar, hve vandlega sem þœr eru gerðar, nœgja ekki við að draga upp stóra mynd. Til að eining ríki í verki verður að byggja það upp frá sérstakri tilfinningu sem vísar til um hvað beri að sýna og hvað skuli látið ósagt. Hnignun.*) Listunum hefur stöðugt verið að fara aftur frá því á sextándu öld, en þá náðu þœr fullum þroska. Ekki er því til að dreifa að hörgull hafi verið á mikil- hœfum listamönnum, öðru nœr, þeir eru fjölmargir bœði á seytjándu, átjándu og nítjándu öld. Orsökin er fólgin í breytingum á lífsvenjum og hugsunarhœtti. Smekk- vísin er orðin of sjaldfundin, gagnrýnin seilist til ae meiri áhrifa en bregzt um leið hlut- verki sínu, ýtir undir smœlkið en dregur kjark úr þeim sem eitthvað geta; hins vegar freistast þróttmikið gáfufólk til að snúa sér að hagnýtum vísindum og tœknidýrkunin *) Hér er eyða í dagbókinni. *) Atriði tekið úr orðabók yíir listir sem Delacroix vannst aldrei tími til að semja. TlMARITIÐ VAKI 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Vaki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.