Vaki - 01.09.1953, Side 20

Vaki - 01.09.1953, Side 20
list — ein kvalitatif list. Það talar að vísu margur eins og listin væri brotin sundur í miðju í tvo óskylda parta — abstraktan part og svo allt hitt. Og menn þykjast skilja annan partinn, náttúrlega náttúrueftirlíkinguna, en ekki hinn. — Skilja hvornugan. Samhengi og þróun listarinnar má líkja við keðju, þar sem hver hlekkur er í senn sjálfstæður og bundinn keðj- unni — þar sem hver hlekkur togar á móti hinum og myndar um leið keðjuna. Umbrot í lífinu og tilverunni, efnis- legri sem hugmyndalegri, orsaka for- færslu í tíðaranda, hugsun og skilningi, og skapar nýjan sannleikshlekk í þró- unarkeðjuna. Þessi hlekkur hét einu sinni impressionismi eða realismi eða rómantík eða eitthvað annað, og hann var hverju sinni öllum fyrri sannleik stærri. 1 dag heitir þessi sannleikur ab- strakt list og er öllum sannleik æðri og stærri. Og stærsti partur samtíðarinnar endurtekur skilningsvana fjandskap sinn með því að kalla þetta grillu og hneykslast á heimsku fyrri samtíðar eða þeirrar, sem var svo heimsk, að hún skildi ekki einu sinni Vincent van Gogh. Þú talar um hlutstæða og óhlutstæða list. Fyrir mér er engin list hlutstæðari en sú, sem hefur hlotið nafnspjaldið ó- TlMARITIÐ VAKI 18 Ilnettir Eigandi: Erik Mengel

x

Vaki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.