Vaki - 01.09.1953, Síða 38

Vaki - 01.09.1953, Síða 38
inni og minnir á verk frá byrjun fimmtu aldar í Grikklandi. Mynd Jó- hannesar, sem stendur hinum megin við krossinn, er auðsjáanlega stælingarmynd að einhverju leyti. Klæðin eru gerð eftir lítt merkri fyrirmynd frá rómversk- gallverskum tíma, einkum neðantil og eru eins og fölsk nóta í mynd þar sem annars ríkir óvenju mikið samræmi. Klassískur tími í list verður ekki til fyrir ytri áorkan. Þegar reynt er mark- víst að stæla fornaldarlist er það ó- brigðult merki um rómantíska list- hneigð. Við ætlum ekki að ræða hér til neinn- ar hlítar hvernig formin þróast frá klassískum tíma yfir til úrvinnslu og fáfjunartilrauna. Þegar þær eru fram- kvæmdar í húsagerð, er leitast við að gefa tæknilegum byggingarúrlausnum kaldan og óaðfinnanlegan glæsibrag og engu hlíft í þeirri viðleitni, þær koma að lokum fram í þurrum og mjög ein- földum formum, hver hluti verksins hneigist til sjálfstæðis og sést það hvað greinilegast í rayonnant stigi gotn- esku listarinnar. Á sama hátt er manns- myndin leyst undan allri þegnskyldu við bygginguna, hún verður sérstök mynd, líkaminn greinist og verður fíngerðari í sniðum, hreyfist eftir fleiri möndlum og vinnan á yfirborðinu verður æ smágerv- ari og margbrotnari. Töfrar hins nakta holds eru notaðir sem listefni, og myndhöggvarinn gerist málari og vinnur nú að sérstökum smámyndum; holdið verður hold en hættir að vera steinveggur. Þegar lögð er rækt við að höggva myndir af ungum karlmönnum má ekki líta á það sem æskumerki í list; það er öllu frekar fyrirboði hnign- unar. Hinar tígulega mannamyndir Upprisunnar við aðaldyrnar í Ramp- illon, mjúkar og stæltar, styttan af Adam frá Saint-Denis, sum myndbrotin úr Notre-Dame varpa praxícalískum kvöldroða yfir franska list frá lokum 13. aldar og frá 14. öld allri. Sést nú að þetta svipmót myndanna er ekki hreint smekksatriði, það er árangur af djúpum og leyndum straumi í lífi fornmanna, síkvikum og sístarfandi á öllum tímum og öllum stöðum listmenningar. Og ef til vill má gefa svipaða skýringu á viss- um samkennum, sem koma í ljós milli konumynda á attískum grafkerjum frá 4. öld og myndum, sem japanskir meistarar drógu með pensli fyrir tré- skurðarmenn í lok 18. aldar. Barolcktíminn í stílhreyfingunni fær- ir okkur enn eina sönnun á samsvörun formeinkenna á ólíkum tímum og stöð- um. Hann er ekki einkaeign Evrópu síðan á 17. öld fremur en klassíski tím- inn er einkaeign fornaldarþjóðanna við Miðjarðarhaf. Hann er stig í formlíf- inu og vafalaust frjálsasta stigið. Form- in hafa nú afmyndað eða hafnað regl- unni um hina ytri samstillingu hlutanna, en þar er samræmi við ytri skilyrði eitt höfuðatriði, sérstaklega í húsagerð; formin lifa nú eigin lífi og fara geyst, breiða úr sér af áfergju, skjóta öngum og geta af sér afbrigði eins og illkynjuð jurt. Þau leysa af sér öll bönd í vextin- um, reyna með öllum ráðum að brjóta sér leið út í rúmið, að ráðast á það og brjótast í gegn eftir mætti, og manni virðist sem þau hlakki yfir þess- um nýju landvinningum; dýrkun hinna einstöku hluta í verkinu ýtir undir á- sælni þeirra. Þessi einkenni barokksins koma furðu skýrt fram í skreytilistinni. Abstrakt form hafa hvergi jafn mikla stælinga hneigð og í skrauti barokktím- ans. Enda er aldrei jafn mikill rugl- ingur á merki og formi. Formið er nú ekki einungis látið merkja sjálft sig, TlMARITIÐ VAKI 36
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Vaki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.