Vaki - 01.09.1953, Síða 52

Vaki - 01.09.1953, Síða 52
verki skipt milli tveggja, til dæmis í Parzival Wolframs (19), þar sem um tvo gral-konunga er að ræða. Svo virðist í raun og veru sem ein hetja hafi haft á hendi öll hlutverkin; hlutverk gestidsna húsbóndans, jötunhirðisins, gral-kon- ungsins og hlutverkið sem við munum koma að seinna undir nafninu „Þraut- gjafans", ef dæma skal eftir enska kvæð- inu Sir Gawain and the Green Knight (20) sem birtir söguna í einkar upp- runalegri mynd, og írsku kviðunni Briuchius (21). Kona þessi er því hin sama og des Teufels Grossmufter, amma skrattans, sem birtist í svo mörgum þjóðsögum, t. d. ævintýri Grimms um risann með gullhárin þrjú: konan sem hjálpar söguhetjunni er komið hefur til heimkynna risans (eða djöfulsins) í leit að einhverjum hlut (22). Hetjan þarf ávallt að þreyta nokkra raun áður en henni tekst að vinna gral- inn: í Perceval eru margar slíkar. I keltnesku textunum er raunin oft einvígi hetjunnar og jötuns nokkurs eða ó- freskju. Einvígi er háð að þeim ásjáandi er við höfum nefnt „þrautgjafann“ — eða hetjan heyr einvígið við hann sjálf- an eins og í Veizlu Briucrius — það er eitt hlutverk Hymis í kvæðinu. Æsir vinna bardagann og Þór hverfur á brott með ketilinn. Leitinni er lokið og Æsir geta haldið veizlu sína. Næst þeirra heimilda er ég hefi valið, er frásögnin af förinni til Utgai'ða, sem er ein tegund annars heims líkt og jötun- heimar. Tvær mikilvægar heimildir eru til um þessa sögu; önnur í Snorra-Eddu (23), hin hjá Saxo Grammaticus (24). 1 Eddu segir að Þór fari ferðina til Út- garðaloka, en hjá Saxó er það Thorkillus er leitar Utgarthilocuss; einnig verður að hafa í huga heimsókn Útgarthilocuss til konungsins Geruthuss (25). Frásögn Snorra veitir litlar goðsögu- legar upplýsingar, nema við hittum enn einu sinni fyrir hirðinn við inngang ann- ars heims, Egil, og Utgarðaloki sjálfur hefur á hendi hlutverk gestrisna hús- bóndans og leiðsögumannsins. Slík tvö- földun hlutverksins kemur oft fyrir í keltneskum sögum. Saxó segir miklu at- hyglisverðari sögu. Thorkillus leggur úr höfn og lendir að lokum í ókunnu landi þar sem hann rekst á hryllilegan helli fullan af nöðrum og óþverra. Tveir af- skræmislegir jötnar eiga þar hýbýli og býðst annar þeirra til að vísa Thorkillusi leið til Utgarthilocuss. Dvalarstaður hans er jafnvel enn óhugnanlegri en hý- býli jötnanna. Hetjan finnur þar kon- ung í hlekkjum, bundinn á höndum og fótum. Thorkillus slítur hár af kon- unginum, og fær varla komizt lífs á brott, svo illa fýlu leggur um staðinn. Mörg mikilvæg atriði koma fram í þessari undarlegu frásögn. Þess ber fyrst að geta að Thorkillus kemst til annars heims eftir sjóferð. Sömu sögu er að segja um Þór og för hans til Ut- garðaloka („yfir hafit þat it djúpa“), svo og um Hymi („fyrir austan Éli- vága“). Sama hefð ríkir í keltnesku sög- unum, þar sem Perceval fer yfir fljótið til þess að nálgast gral-höllina og Trist- an fer yfir sjóinn til þess að hitta Iseult (26). Ennfremur hittum við fyrir okkur öðru sinni leiðsögumanninn ófreskju- lega. Þriðja atriðið sem vert er að veita athygli er líaflinn um hár risans. Það hefur tvöfalda þýðingu að slíta hár af honum. I fyrsta lagi verðum við að vísa til þjóðsögunnar þýzku um „risann með gullhárin þrjú“. Það eru því hliðstæður er Thorkillus kemur heim með 'hárið og er Þór kemur til baka með ketil Hymis. I annan stað getum við gert samanburð við skeggskurðarsiðinn í Kulhwch. Há- TlMARITIÐ VAKI 50
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Vaki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.