Birtingur - 01.01.1964, Síða 34
anir þekkja er ótrúlega keimlíkt að uppbygg-
ingu hlöðunum í Öræfum. Japanir kalla þessa
elztu húsagerð sína „tateana". Við sjáum
fjóra stafi rekna ofan í jörðina, tvo ása og
bita, sem bera uppi þekju hússins. Raunar
má segja, að bygging þessi sé þríása. því að
kjöltréð, þótt grennra sé og ekki borið uppi
af vöglum, er þriðji ásinn. Að vísu standa
stafirnir á hlöðunum margumtöluðu á stoð-
arsteinum, en eru ekki grafnir niður. Bæði er
það, að við höfum mörg dæmi um stoðar-
holur í fornum rústum íslenzkum og nor-
rænum, eins er hitt, að enn standa eða hafa
staðið til skamms tíma (ómögulegt er að vita,
hvenær og hvar markverð menningarverð-
mæti eru rifin á íslandi nú á dögum) mann-
virki hérlendis, sem svo eru gerð, og á ég
þar við hákarlshjalla á Ströndum. Ef litið er
á meðfylgjandi mynd af hjalli frá Finnboga-
stöðum í Trékyllisvík, þá verður líkingin með
honum og tateanagrindinni enn meiri, stoð-
irnar grafnar í jörð, skástoðir og bitakeflin
liggja ógrópuð á ásana. Það er mikla sögu að
segja frá ætt þeirri, sem vaxin er upp af
„tateana“-kofanum. í Japan sem í Noregi
þróaðist smátt og smátt einhver fullkomnasta
timbur- og stafsmíð, sem veröldin þekkir og
það sem meira er: hún hafði seinna drjúg
áhrif á byggingarlist nútímans, því að tveir
lærifeður hennar, Frank IJoyd Wright og
Richard Neutra, lærðu mikið af japanskri
húsagerð. Það er kynlegt til þess að vita, að
„villurnar“ sumar hér í útjaðri bæjarins skuli
á vissan hátt vera afkomendur hákarlshjalla
á Ströndum.
Fleira er forvitnilegra húsa í Öræfum, þótt
mér hafi orðið tíðrætt um hlöðurnar þar.
Nefna vil ég fyrst Hofskirkju, eitt dæmi af
fimm torfkirkjum, sem enn standa uppi á
Islandi, ágætt sýnishorn. Hún er reist árið
1884 af Páli Pálssyni, sem kallaður var jökull,
sigldur srniður og nýjungamaður á sinni tíð,
bæði um stíl og tækni. Jón Stefánsson í Skafta-
felli tjáði mér, að Páll hefði fyrstur manna
notað strikhefla í Öræfum. Vert er að gefa
því gaum, hversu vel honum hefur tekizt að
koma bursthyrnunni fyrir, ofan við glugga og
hurð, en þar er um nýjung að ræða í stíl á
þeim tíma. Var ekki sú glufa í vegg, að ekki
væri kórónuð með gríska hofstafninum, höfuð-
uðeinkenni nýklassíkur. Hér er höfundarmark
Páls og af því getum við ráðið af gömlum ljós-
myndum, að hann hefur smíðað víðar í austur-
og vestursýslunni, svo sem að Sandfelli, Svína-
felli og Núpsstað. Hofskirkja var gerð upp
undir handleiðslu þjóðminjavarðar 1954 og er
húsinu vel við haldið, Öræfingum til sóma.
Eina athugasemd vil ég þó gera: Litir að ut-
an eru ekki sannfærandi, grænar vindskeið-
ar við grasið á þekjunni fara illa saman að
32
BIRTINGUR