Birtingur - 01.01.1964, Side 96

Birtingur - 01.01.1964, Side 96
Tsékov fæddist í Taganrog í Úkrainu árið 1860. Fjölskyldan var kúguð af föðurnum sem var kaupmaður, undarlega samslunginn mað- ur, ruddafenginn og ofstopafullur; hann var haldinn hættulegu trúarofstæki en jafnframt músíkalskur og átti það eitt sameiginlegt með föður Halldórs Laxness að leika á fiðlu og eiga snilling að syni. Hann var af fátækum leiguliðum kominn, hans faðir hafði verið ánauðugur og varla læs né skrifandi. Hann var ástríðufullur stjórnandi kirkjukórs og Anton sonur hans segir að karl hefði helzt viljað hafa það einsog grísku munkarnir síð- skeggjuðu á Athosfjalli að hefja tíðasöng klukkan sex að morgni og halda áfram þind- arlaust söng og bænum til klukkan sex á kvöldin. Karlar einir sungu í kórnum og voru víst alveg ágætir en því miður allir djúpir bassar. Þá greip söngstjórinn til sona sinna til að bjarga harmóníunni. Tveir hinir elztu voru settir einsog englar í að syngja sópran en Anton Tsékov söng alt. Rödd hans var lítil og illa fallin til þessa hlutverks en viðkvæmni drengsins ofurnæm og sjálfsgagn- rýnin vægðarlaus og hann hefur lýst þeim vítiskvölum sem hann leið á guðsvegum í kirkjunni en tónameistarinn sparaði ekki svipuna þrumandi upphafinn: Það getur aldrei verið óheilsusamlegt að þjóna guði. Seinna á ævinni sagði Tsékov frá því að hann mætti ekki svo ganga framhjá kirkju að hann minntist ekki bernsku sinnar með blygðun og trúin vekti sér ugg og skelfingu. Systkinin voru allmörg og snemma bar á list- gáfu hjá flestum þeirra þótt ekkert þeirra hefði skapfestu til að aga gáfu sína og rækta nema Anton. Móðirin var blíðlynd kona, Ant- on sagði að faðir þeirra hefði kramið hana andlega og likamlega með harðlyndi sínu og ofbeldi sem oft var framið undir yfirskini guðsóttans einsog vill verða hentugt fólskum mönnum. Frá föður okkar höfum við listgáf- una en hjartað frá móður okkar, skrifaði Ant- on eldri bróður sínum Alexandri. Oft hafa hagsýni og trúarofstæki haft ánægju- legt sambýli en þessum kaupmanni tókst ekki að láta guð sinn hjálpa sér að græða á við- skiptavinunum. Búðarholan var skuggaleg, og helgimunir frá Athosfjalli sendu hæverskan bjarma inn í fróm hjörtu út úr drungalegum haugum af kramvöru, þar sem öllu ægði sam- an: ávöxtum, ólífum, mjöli, ilmvatnsglösum, köðlum með sinni sérstöku lykt, kaffi. Og í kjallaranum undir var krá þar sem tveir vesa- lingar fölir og horaðir flögruðu með lífsins vatn í glösum milli þrútinna drykkjusvola sem ýmist grétu yfir fegurð heimsins langt í burtu eða erfiðleikum lífsins og yndisþokka kvenna sem flettu sig slæðum handan við sjóndeildar- hringinn eða þeir hlógu ef einhver datt og 92 BIRTINGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.