Birtingur - 01.01.1964, Side 120
THOR VILHJÁLMSSON: MINNING DAVÍÐS STEFÁNSSONAR
Ég efast um að annað skáld hafi sungið sig
eins létt inn í huga og hjarta þess fólks sem
býr á íslandi einsog Davíð Stefánsson gerði
strax með fyrstu bókinni sinni Svörtum fjöðr-
um. Með þeirri bók komst hann strax inn í
hjarta þjóðarinnar, það var nýr blær yfir ljóð-
um hans, nýr tími; hann talaði fyrir svo
marga um það sem bjó í hjörtunum og það
sem hann sagði var svo einfalt að það hreif á
stundinni. Hann sagði það sem aðra langaði
til að hafa sagt svo vel að mörgum fannst
þeir hlusta á sín eigin hjartaslög, heyra sína
eigin óþreyju tala, gleði, reiði, sorg, þrá.
Davíð fæddist 21. janúar 1895 í Fagraskógi
við Eyjafjörð og í þessu nafni Fagriskógur er
hljómur sem ómar í ljóðum Davíðs alla tíð.
Fagriskógur.
En þegar hann fæddist var ekki vorhlýja í
loftinu einsog við höfum notið undanfarið
heldur var kalt og hretstormar nístu byggð-
ina og landsins forni fjandi var fyrir Norður-
landi, hafísinn sem hafði stundum svo
grimmileg umsátur fyrrumtíð fyrir ströndum
þessa lands.
Hann var af góðu fólki kominn, dugandi
bændum sem margir voru héraðsstólpar og
prýði sveitarinnar. Og í móðurætt voru hinir
mætustu fræðimenn sem varðveittu margar
perlur og forðuðu frá glötun með því að leita
uppi og skrásetja sögur og kvæði sem kynslóð
eftir kynslóð hafði geymt munnlega. Móður-
bróðir hans var Ólafur Davíðsson sem varð
frægur fyrir starf sitt og minnisstæður þeim
sem kynntust honum fyrir persónutöfra og
fjörugar gáfur. Og annar frændi Davíðs skálds
var Jón Árnason sem þjóðsögurnar eru kennd-
ar við sem þið kannizt eflaust öll við.
Foreldrar Davíðs voru bæði skörungar og í
Fagraskógi fékk hann vegarnesti sem entist
honum alla ævi og hugur hans leitaði alltaf
heim í Fagraskóg, þar átti hann heima þótt
hjarta hans væri órólegt og þráin teygði hann
víða um lönd. Hugurinn leitaði alltaf heim í
Fagraskóg.
Hið svipfríða umhverfi Eyjafjarðar með há-
gnæfum fjöllum og tign var nátengt hrein-
lyndi skáldsins og falsleysi og rómantísk feg-
urðarþrá hans var sterkt bundin Eyjafirði.
Fagriskógur stendur við fjall sem eitt sinn hét
Sólarfjöll og þaðan er talið að landnámsmað-
urinn Helgi magri hafi fyrst horft yfir sitt
nýja land. Sólarfjöll og Fagriskógur, Vaðla-
heiði, Arnarnes. En þar sést líka Vindheima-
jökull og Kaldbakur til að rjúfa þann milda
blæ:
Hef eg lönd og fjöld frænda / flýð en hitt er
nýjast, / kröpp eru kaup ef hreppi eg / Kald-
bak en eg læt Akra, sagði Önundur Tréfótur
þegar hann kom þangað frá Noregi frá víðum
ökrum þess og háum og þéttum skógum. Þið
116
BIRTINGUR