Birtingur - 01.01.1964, Side 154

Birtingur - 01.01.1964, Side 154
barning og strit vetrarins. VertíSarfólkiS var löngu farið, þetta nútírna förufólk, sem flakk- ar um landiS heimilislaust úr einum stað í annan milli verstöðva, sefur allt sitt tíma- kaupslíf á mygluðum hálmdýnum í hriktandi braggakojum, rótlaust og útverkað; þetta fólk, sem felur lífsviðhorf sitt í því spakmæli að tími verði til hvíldar í gröfinni, það var horfið burt með hárvatn sitt, greiðu og spegil í pappatöskum vandlega reyrðum aftur með snærum, komið eitthvað norður eða austur í land í nýja verstöð, lagst til hvíldar í nýja koju, svaf á annarri fúkkaðri dýnu einhvers frystihússeigandans, í nýjum slagandi bragga, og hafði neglt spegil sinn aftan á kojugaflinn ásamt þrykkmyndum, hengt sparifötin á nagla á þilinu, brugðið skræpóttu hálsbindinu um krók herðatrésins og límt nokkrar brjósta- miklar kvikmyndaleikkonur fyrir ofan höfða- lag kojunnar eftir að hafa fært með klunna- legum, óæfðum blýantsstrikum undan bikini- sundbolnum það sem átti velsæmisins vegna að hylja; stöðugt í eltingaleik sínum við fisk inn, síldina og aurana sína.“ Undanfarið hafa menníngarstjórar vorir verið að sífra eitthvað um að ýngri höfundar hér- lendir tækju ekki til meðferðar vandamál ís- lenzks þjóðfélags. Þau sem nú eru helzt að- kallandi. Þótt þetta geti átt við um suma höf- unda (eldri sem yngri) eru það mörg dæmi um hið gagnstæða, að ekki sýnist mér ástæða til kvíðni. Og er þessi bók einmitt eitt gleggsta dæmið. I henni er fjallað um eitt helzta vanda- mál nútíma þjóðlífs á íslandi, hinn lánga vinnudag og þreytuna, sljóleikann og fáfræð- ina, sem eru beinar afleiðingar hans. Þetta fólk á sér mjög fábrotin áhugamál, ef nokkur. Það gefur sér eingan tíma til neins, nema þræla fyrir nokkrar krónur, svo það geti leyft sér þann frumstæða munað að éta sæmilegan mat öðru hvoru, leggja sig eftir vinnutíma, kannski á myglaða hálmdýnu, og drekka brennivín. Þetta fólk les varla bækur, hlustar ekki á aðra músík en kynóraglamur Keflavík- urútvarpsins, sér aldrei málverk. Eina „mynd- list“ þess er ljósmyndir af hálfberum leikkon- um. Öll listsköpun og menníngarstarfsemi af hvaða tagi sem er, fer þarna fyrir ofan garð og neðan. Þetta er allt svo hin rómaða bók- menntaþjóð í sinni réttu mynd og sínu rétta umhverfi. Dauðar sálir, sagði einhver. Nei kannski ekki dauðar, en vanvita af þekkíngar- skorti, múgmennsku, andlegu hirðuleysi og lángri vinnuþrælkun. íslenzk menníng er svo sterk, segja sumir. Hve mörg megatonn skyldi hún vera? Ekki verður Guðbergur kallaður glæsilegur stílisti eða eitthvað slíkt. Hann beitir ekki stíl- brögðum eða öðrum hjálparmeðulum. Sögur hans á einstaklíngnum og félagslegri aðstöðu 150 BIRTINGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.