Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2006, Page 76
74
Guðrún Þórðardótíir
3. Lokaorð
í upphafi rannsóknarinnar var sett fram sú tilgáta að þessi árin, í lok
20. aldar og upphafi 21. aldar, eigi sér stað miklar og örar breytingar
á notkun viðtengingarháttar í nútíð. Giskað var á að notkun hans ykist
sífellt og að hann væri oft notaður í setningum þar sem áður var ein-
dregið notaður framsöguháttur, svo sem eftir sögninni vita. Rannsókn-
in, sem fólst í samanburði fjölmargra spumarsetninga í nútíð með
samtengingunni hvort úr ótal ólíkum textum, leiddi í ljós svo að ekki
verður um villst að í //vort-setningum hefur notkun viðtengingarhátt-
ar aukist að miklum mun, ekki síst hjá yngstu málhöfunum í rann-
sókninni, sem fæddir em eftir 1970. Niðurstaðan vekur spumingar um
hvort aukin notkun á viðtengingarhætti gæti bent til þess að fleiri miði
nú notkunina eftir því hvað er óvíst eða vafi, hugsanlegt en ekki gef-
ið, fremur en að styðjast við eldri málhefð í háttanotkun.
Niðurstaðan vekur einneginn vangaveltur um hvort tíðari notkun
viðtengingarháttar sýni að honum sé síður en svo hætta búin í íslensku
eða hvort ósamræmið í notkun hans sé veikleikavottur. Af niðurstöðu
þessarar rannsóknar er hægt að leiða þá tilgátu að svipuð niðurstaða
fengist ef athugaðar væm aðrar spumarsetningar, aðrar fallsetningar
eða atvikssetningar en það er nýtt rannsóknarefni.
VIÐAUKI
Textar þeir sem rannsóknin er byggð á.
Netútgáfan — http://www.snerpa.is/net/:
Atli Harðarson (f. 1960). Greinasafn.
Biblian á Netinu, texti Biblíunnar frá 1981.
Fomnt: Fornaldarsögur Norðurlanda, Gylfaginning, Heimskringla, íslendingasögur,
íslendingaþœttir, Landnámabók (Sturlubók) og Jómsvíkingasaga.
Skáldsögur: Jón Trausti (Guðmundur Magnússon, 1873-1918): Anna frá Stóruborg,
Borgir, Halla, Heiðarbýlið I-IV, Leysing. Toríhildur Hólm (1845-1918): Brynjólf-
ur biskup Sveinsson. Þorgils gjallandi (Jón Stefánsson, 1851-1915): Upp við fossa,
Gamalt og nýtt.
Smásögur eftir Benedikt Gröndal (1826-1907), Gest Pálsson (1852-1891), Jónas Hall-
grímsson (1807-1845), Jónas Jónasson frá Hrafnagili (1856-1918), Jón Trausta,
Stephan G. Stephansson (1853-1927), Torfhildi Hólm og Þorgils gjallanda.