Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2006, Blaðsíða 126
124
Eiríkur Rögnvaldsson
b. sjálfra sinna — 33
en að þær hafi ekki gildi sjálfra sinna vegna.
c. sjálfra síns — 4
Stefnt er að því að nemendur hugleiði hverjir þeir eru í augum
sjálfra síns og annarra.
2.2 Tíðni
Hér má svo sjá niðurstöður úr tvenns konar talningu. Annars vegar eru
dæmin sem Google fann á netinu og eru væntanlega flest úr textum frá
síðustu fimm árum eða svo, þótt ýmislegt eldra slæðist með — jafn-
vel úr fommáli eins og ég nefndi áðan. Hins vegar em tölur um sömu
sambönd úr Morgunblaðinu frá 1913-2000, sem nú er hægt að leita í
á timarit.is. Þetta efni er mjög forvitnilegt til samanburðar við tölum-
ar úr Google, af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi endurspegla tölurnar úr
Morgunblaðinu mestalla 20. öldina, en ekki síðustu fimm ár eins og
Google. í öðm lagi er Morgunblaðið prentað og (yfirleitt a.m.k.) les-
ið yfir fyrir prentun þannig að maður býst ekki við að finna þar aðrar
myndir en þær sem em viðurkenndar, a.m.k. ekki í verulegum mæli.
(10) Google Morgunblaðið
Fjöldi % af heild Fjöldi % af heild
sjálfrar minnar/þinnar/sinnar 41 0,85 6 0,13
sjálffar mín/þín/sín 878 18,30 674 14,17
sjálfrar míns/þíns/síns 22 0,46 3 0,06
sjálfs mín/þín/sín 1919 40,00 2846 59,85
sjálfs míns/þíns/síns 1629 33,96 504 10,60
sjálfra sín 271 5,65 715 15,04
sjálfra minna/þinna/sinna 33 0,69 6 0,13
sjálfra síns 4 0,08 1 0,02
Samtals 4797 4755
Dæmin af netinu og úr Morgunblaðinu em álíka mörg þannig að
þægilegt er að bera tölumar saman. Þama em .s'/«-myndimar yfirgnæf-
andi, einkum í Morgunblaðinu, en dæmin um sjálfs síns em þó miklu
fleiri en svo að hægt sé að líta framhjá þeim eða afgreiða þau sem ein-
hvers konar villur. Hér má einnig nefna að ég leitaði að dæmum um