Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2006, Blaðsíða 103
101
Um líki í íslensku í ýmiss konar líki
Þessi málfræðing verður könnuð nánar í næsta kafla en fyrst verða
sýnd dæmi um notkun líki frá ýmsum tímum til þess að fá betri yfir-
sýn yfir stöðu og hlutverk orðsins í íslensku.
4. Málfræðing og margs konar líki
í (3a-b) er að finna skilgreiningar annars vegar Ásgeirs Blöndals
Magnússonar (1989:562), (3a), og hins vegar Áma Böðvarssonar
(1994:587), (3b), á hvorugkynsnafnorðinu líki:
(3)a. líki: sköpulag; líking; líkami; nár
b. líki: sköpulag, mynd, hamur; í samsetningum um eftirlíkingu:
leðurl., kaffil., smjörl.
í (3b) kemur fram sá möguleiki að líki í samsetningum geti haft aðeins
aðra merkingu en liki þegar það stendur sjálfstætt, þ.e. að það sé not-
að í samsetningum til þess að tjá eftirlíkingu. í ljósi þeirra atriða, sem
einkenna sjálfstæð orð og rætt var um í 3. kafla, er þetta óvenjulegt af
þeirri ástæðu að sé um sama orð að ræða í öllum tilvikum ætti merk-
ingin ekki að geta breyst. Sá merkingarmunur, sem gefínn er í skyn í
(3b), er hins vegar dæmigerður fyrir þann mun sem upp getur komið
við málfræðingu sjálfstæðs orðs yfir í viðskeyti. Meira um það síðar.5
Hvorugkynsnafnorðið líki er algengast sem seinni liður í orðum,
sbr. dæmin hér að ofan. Önnur dæmi eru m.a. bjórlíki, hundsliki og
frumvarpslíki. Það finnst einnig í fasta orðasambandinu i liki einhvers,
sbr. eftirfarandi dæmi af veraldarvefnum: „Gesturinn var í líki kattar
sem læsti klónum í búið og gekk endanlega frá því.“ Einnig finnast
dæmi um sjálfstæða notkun þess utan fasta orðasambandsins, sbr.
»Maríu mynd með lausnaranz liki J hniam“ (Bps, 17. öld).
í þessum kafla verður gerð grein fyrir þessari þrenns konar notkun
hki í íslensku en við dæmaleit var stuðst við Ritmálsskrá Orðabókar
Háskólans (hér eftir RMS) og leitarvélina Google.com á veraldarvefn-
5 Auk þessa fínnst karlkynsorðið líki í merkingunni jafningi, sbr. enginn var hans
hki eða hún átti engan sinn líka, að mestu leyti notað í fostum orðasamböndum og
ekki verður nánar hugað að því hér.