Ritmennt - 01.01.2005, Blaðsíða 140
VILBORG AUÐUR ÍSLEIFSDÓTTIR
RITMENNT
það til þess að þá þegar í hans biskupstíð
hafi biskupsstóllinn haft skip í förum. í
Biskupa sögum er skýrt frá því í sögubroti,
að Gottskálk Kæneksson hafi látið byggja
upp miðkirkjuna á Hólum og látið gera
múr í kringum hana.20 Til slíkra stórbygg-
inga þurfti venjulega timbur erlendis frá og
bendir þetta til tryggra verslunarsambanda
við Noreg.
í embættistíð Gottskálks Kænekssonar
voru skrifarar við kansellí konungs í Osló
þokkalega ritfærir á norrænu og notuðu
meira að segja stafinn þ.21 Af bréfum Gott-
skálks Kænekssonar að dæma voru hann
og skrifarar hans einnig vel færir á norræna
tungu. Þeir skrifuðu gjarnan „wii" í staðinn
fyrir vér. Þar fyrir utan var stafsetningin
sérviskuleg og með ýmsu móti, sem vafa-
laust helgaðist af breytilegum framburði
og skorti á samræmdri réttritun. Svo slettu
menn náttúrlega þýsku eins og gerðist og
gekk á þessum tíma.
Fleiri ættmenn Gottskálks bjuggu á
íslandi, t.d. Valgerður Kæneksdóttir, systir
biskupsins. Hún giftist árið 1466 Hallvarði
Ámundssyni og lagði hann 300 gyllini til
ráðahagsins, auk þess sem hann gaf konu
sinni 100 gyllini í bekkjargjöf.22 Það var alger
undantekning, að brúðarfólk legði fram svo
háa upphæð í reiðufé. Jarðir, kúgildi og
búfénaður voru hinn venjulegi gjaldmiðill.
Olafur Rögnvaldsson, sem þá var orðinn
biskup, gerði þessa frændkonu sína úr garði
með mjög veglegan heimanmund. Fékk
hún 60 hundraða, þ.e. andvirði stórbýlis
eftir þeirrar tíðar verðlagi. Hafði Gottskálk
biskup á hérvistardögum sínum gefið systur
sinni jörðina Tungu í Núpsdal, sem metin
var á 40 hundruð, og lagði Ólafur blessun
sína yfir þá gjöf.23
Gottskálki til halds og trausts var bróð-
ursonur hans, Ólafur Rögnvaldsson, og var
hann kominn til íslands sumarið 1449.24
Ólafur virðist snemma hafa hafist til met-
orða og er hans getið í bréfi, útgefnu í
Kaupmannahöfn í mars 1453, og virðist
hann þar vera í erindagjörðum frænda síns.25
Sama ár fékk hann erkibiskupsveitingu fyrir
Oddastað,26 og árið 1458, að Gottskálki bisk-
upi látnum, var hann kjörinn biskupsefni af
klerkum Hólabiskupsdæmis. í kjörbréfinu
lcemur fram, að klerkum er mjög áfram
um að fá Ólaf til biskups og stendur þar
eftirfarandi klausa: „Finnst það og í öllum
greinum, að þeir [biskupar] hafa nýtilegastir
verið heilagri kirkju, sem af voru landi hafa
samþykktir verið."27
Þegar svo röggsamur maður sem Ólafur
var, situr 36 ár á biskupsstóli, fer ekki hjá
vegabréf fyrir pílagríma í suðurgöngu, brytaeið og
prestseið í stöðluðu formi. I prestaeiðnum er tekið
fram, að prestar skuli hvorki halda eiginkonu né
fylgilconu á kirkjunnar kostnað.
20 Um Gottskálk Keniksson og Hóla biskupa", bls.
233.
21 DIIV, nr. 674.
22 DI V, nr. 420. Skýringin á þessu lausafé kann að
vera sú, að Hallvarður hafi verið Norðmaður en
ekki lendur maður á íslandi.
23 DI V, nr. 420. Um þessar mundir er minnst á
Gottskálk Gottskálksson í Fornbréfasafni. Nafnið
var mjög sjaldgæft á íslandi og því eru miklar líkur
á því, að þessi Gottskálk hafi verið ættmaður þeirra
Hólabiskupa. DIV, nr. 430.
24 DIV, nr. 27.
25 DIV, nr. 94.
26 DI V, nr. 93.
27 DIV, nr. 153.
136