Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Síða 72
54
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
fyrirtaks efni í eina himnaríkis-
stiga-tröppu.
Áheyrandi: Því betur sem sannast,
að sígarettur valda krabbameini,
þess meir gerir bissnesið til að sem
flestir reyki þær. Annað, sem ég
skil ekki, er, því fólk er narrað og
tælt til að éta og éta meira og enn
meira, þó mesti fjöldi svelti sig,
skrúfi og píni á allan hátt til að
hafa af sér spikið; og fleiri en færri
éti sig í hel. Hugvit og myndlist
auglýsingabissnesins bera ábyrgð á
þessum og líkum andstæðum í lýð-
ræðinu.
Héðin: Gáfuleg athugun og flókn-
ari fimmtíu fræðibókum. En grund-
völlurinn er alltaf inn sami: pen-
ingar; og það sem virðist andstæður,
er oft samkeppni. En hún er líf allra
viðskipta. Bissnes er bissnes, á sama
hátt og nýlistin er listin fyrir listina.
Því kemur ekkert við, hvað maður-
inn hugsar, eða líður eða reynir. En
svo við athugum sígarettur og
krabba: — Við auglýsum hvort
tveggja, svo ótti og löngun eflist og
keppi hvort við annað, og ónýt
krabbalyf og sígarettur seljist í
krafti. Hvað ofáti og matarauglýs-
ingum líður, er það flóknara mál.
En benda má á þetta: Óttinn við of-
fitu skapar eftirspurn fyrir allra-
handa meðul og maskínurí til affit-
unar. Þeir, sem éta sig í hel, eru oft-
ar en hitt efnamenn, og lát þeirra
vatn á myllu násmyrslanna, og dán-
arbúin ekki síður hagvæn lög-
mönnum. Þegar til bissness kemur
á sviði heilbrigðinnar, ber að athuga
það í ljósi vísindanna. Þeir, sem éta
sig í hel, eru heimskingjar og bezt
komnir í þúsund dollara kistum
undir tíu-þúsund dollara steinstrók-
um. Og er landhreinsun að. í raun-
inni er allur manndauði dulbúin
blessun, þar eð fólkinu fjölgar dag
frá degi, hversu margir sem drepa
sig og aðra, og ekki nærri nóg í alla
og á. Afleiðingar síðustu styrjalda
eru glögg merki þess, að milljóna
mannfall og víðtækar mannlegar
hörmungar efla jafnt bissnes og vís-
indi, svo ekki má lengur milli sjá,
hvort manninum er heillaríkara, líf
eða dauði. Um slík spursmál ber oss
ekki að grufla; en halda því föstu,
að bissnes er bissnes, og fyrir full-
tingi brasklistarinnar, höfuðmenn-
ingarverðmæti „lífs vors og hátta-
lags“.
Áheyrandi: En hvar er þá kristin-
dómi lýðræðis vors komið?
Héðin: Bissnes er kristindómur og
vísiversa. Fyrir nokkrum árum rit-
aði einn af vorum ágætustu brask-
fræðingum bók um Krist. Eftir
miklar og nákvæmar rannsóknir á
biblíunni og framkomu frelsarans,
varð höfundurinn þess vís, að Krist-
ur var, að eðli og upplagi, inn
mesti vörusali og prangari; og ber
bókin fram fullar sannanir fyrir því.
Áheyrandi: En hvernig stemmir
þetta við kærleikskenningarnar, sem
lýðræðið er þrungið af?
Héðin: Vel grunduð og valin
spurn, og svarið enn ið sama: Kær-
leikurinn er bissnes. „Af verkunum
skuluð þið þekkja þá“, og „verkin
sýna merkin“. Nú eru kærleiks-
merkin gjafir (vörur) og önnur
hjálp bágstöddum. Hvort tveggja
kostar peninga og heyrir bissnesinu
til. Þar kemur brasklistin með alla
sína útbreiðslu-tekník til skjalanna,
og vér auglýsarar breytum einstakl-