Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 91
Prófessor RICHARD BECK:
Mannalát
FEBRÚAR 1959
22. Þorbergur Þorbergsson, á Almenna
sjukrahúsinu í Winnipeg. Fæddur 29.
des. 1892 í Lögbergs-nýlendunni í Sas-
katchewan. Foreldrar: Björn Þorbergs-
son frá Dúki í Skagafirði og Helga
Þorleifsdóttir frá Reykjum á Reykja-
strönd.
JÚLÍ 1959
27. Helga G. Christopher hjúkrunar-
kona í Kelowna, B.C. Foreldrar: Theodór
og Sigríður Thordarson, fyrrum í Sel-
kirk og Winnipeg, nú búsett í Van-
couver, B.C.
ÁGÚST 1959
17. Einar Jónasson, á heimili sínu að
Jaðri í Víðis-byggð í Nýja íslandi. Fædd-
ur að Jaðri í Hnausa-byggð 9. apríl 1896.
1 oreldrar: Jóhannes Jónasson og Halla
Jonsdóttir.
OKTÓBER 1959
14. Jónas Jónasson, á heimili sínu að
Jaðri í Víðis-byggð. Fæddur 5. okt. 1888.
Albróðir ofannefnds. Vann sér orð fyrir
dýralækningar.
18. Magnús F. Björnsson frá Mountain,
N. Dak., á heimili dóttur sinnar í Huron,
Dak. Fæddur 16. des. 1873 í Rosseau,
Ontario, Kanada. Foreldrar: Friðbjörn
og Anna Björnson. Fluttist með þeim
•«rnun®ur til Pembina, N. Dak., en átti
siðan lengstum heima að Mountain. Kom
mikið við bæjar- og sveitarmál og var
hæjarstjóri í Mountain í 18 ár.
NÓVEMBER 1959
8. Halldór J. Halldórsson, landnáms-
naaður í Wynyard-byggð í Saskatche-
wan, að Surrey, Burnaby, B.C. Fæddur
fS Húki í Miðfirði í Húnavatnssýslu 19.
íebrúar 1873. Foreldrar: Jónatan Hall-
dorsson og Elín Magnúsdóttir. Fluttist
jneo þeim ársgamall vestur um haf til
Ontario, en árið eftir til Nýja íslands,
Siðan til N. Dakota og þaðan 1906 til
Þaskatchewan.
20. Magnús O. Magnússon, landnáms-
naaður í Wynyard-byggð í Saskatche-
„Tani að heimili sínu í grennd við Blaine,
Wash. Fæddur 18. des. 1877 í Haukadal
„Vf^asýslu (líklega að Núpi). Foreldrar:
>Jddur Magnússon og Margrét ólafsdótt-
lr fra Vatnshorni í Haukadal. Fluttist
til Vesturheims með þeim 1886, fyrst til
N. Dakota, en til Saskatchwan 1906, og
bjó þar lengstum síðan.
DESEMBER 1959
7. Ágúst Líndal, í Fort Frances, On-
tario, 76 ára. Foreldrar: Jakob Líndal
(Hanson) og Anna Hannesdóttir. Flutt-
ist með þeim vestur um haf til Kanada
1888. Albróðir Walters J. Lindal dómara
í Winnipeg.
13. Sigurjón Þórðarson, landnámsmað-
ur í Geysis-byggð í Nýja íslandi, á
sjúkrahúsinu á Gimli, Man. Fæddur 13.
des. 1864. Foreldrar: Þórður Jónsson og
Rósa Þorláksdóttir, er fluttust frá Efsta-
samtúni í Glæsibæjarhreppi til Vestur-
heims 1893, og settust þá þegar að í
Nýja íslandi.
19. Valgerður Johnson, kona Eiríks
Johnson, á Almenna sjúkrahúsinu í Sel-
kirk, Man. Fædd í Reykjavík 15. apríl
1881. Foreldrar: Kristján Kristjánsson og
Björg Sveinsdóttir. Kom til Ameríku
1902. Búsett í Selkirk frá 1904.
20. Halldóra Thorláksson, kona Thor-
láks Thorláksson, í Hensel, N. Dak., á
sjúkrahúsi í Cavalier, N. Dak. Fædd í
Víðinesi í Berufirði í Suður-Múlasýslu 6.
marz 1894. Foreldrar: Þorgrímur Þor-
láksson og Guðrún Marteinsdóttir. Kom
af íslandi til N. Dakota 1911.
31. Jóhann Benedikt Halldórsson,
landnámsmaður í Amaranth, Manitoba,
í Langley, B.C., 81 árs að aldri.
JANÚAR 1960
3. Paul Carl Thorsteinson, að heimili
sínu i Winnipeg. Fæddur þar í borg 1.
júní 1910. Foreldrar Þorsteinn Þ. Þor-
steinsson skáld og fyrri kona hans, Rann-
veig Einarson.
5. Valentínus Valgardsson kennari, á
heimili sínu í Moose Jaw, Saskatchewan.
Fæddur í Winnipeg 16. apríl 1896. For-
eldrar: Ketill Valgarðsson, ættaður úr
Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu, og Soffía
Sveinbj arnardóttir frá Laxárdal í Dala-
sýslu. Mikill námsmaður á skólaárun-
um, og hafði í 35 ár verið kennari við
Moose Jaw Central Collegiate, aðal-
skóla þeirrar sléttuborgar.