Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Síða 99
þingtíðindi
81
að orðið, ef hún hefði getað staðizt ásókn
erlendra orða. Ég held að enskir rithöf-
undar gætu lært mikið af honum Snorra
Sturlusyni til þess að gera mál sitt meira
lifandi og í sterkari tengslum við tal-
málið.“
. Dæmi slíkra manna eru oss íslend-
ingum ærin sönnun þess, hvern fjársjóð
vér eigum, þar sem eru bókmenntir vor-
ar og önnur menningarverðmæti, og
jafnframt áminning um það að leggja
rækt við þær erfðir, varpa þeim eigi á
glse, en gera þær sem ávaxtaríkastar í
lifi voru og annarra hérlendis. Það er
°.g hefir um 40 ára skeið verið megin-
tilgangur þessa félagsskapar vors, sem
hefir á liðnum árum aflað honum fylgis
af hálfu fjölda fólks vors; og enn á
hann, góðu heilli, stóran hóp velunnara
vor á meðal, sem skilja gildi hins veg-
lega málstaðar, er vér helgum viðleitni
v°ra í þjóðræknis- og menningaráttina.
Hinu er ekki að leyna, að stöðugt
grisjast skógurinn í fylkingu hins eldra
félagsfólks vors. Eftir því sem fjármála-
ritari, Guðmann Levy, tjáir mér, höfum
vér átt á bak að sjá þessum félagssyst-
kinum á árinu: Dr. theol. Rúnólfur Mar-
teinsson, Winnipeg, heiðursfélagi; Einar
Páll Jónsson ritstjóri og skáld, Winni-
Peg, heiðursfélagi; Mrs. Elizabet Polson,
winnipeg; Magnús Magnússon, St. Boni-
face; Geir Thorgeirsson, Winnipeg;
Sveinn Oddsson, Winnipeg; Mrs. Lena
Stratton, Winnipeg; Þorlákur Johnson,
Winnipeg; Mrs. Þórdís Jónsson, Winni-
Peg; Jónas G. Skúlason, Árborg; Jónas
Jónasson, Víðir; Einar O. Hallgrímsson,
Minneota, Minnesota; J. J. Erlendson,
Mountain; Mrs. Rannveig Stefánsson og
Mrs. Valgerður Johnson, Selkirk; Mrs.
Guðrún Borgfjord, Árborg; P. K. Bjarna-
Winnipeg; Peter S. Peterson, Piney;
Gunnar J. Guðmundsson, Vancouver;
Tómas Guðmundson, Eiríkur Scheving
°g Einar H. Einarson, allir að Lundar;
°g Miss Sigurrós Vídal frá Hnausum.
Eins og nöfnin gefa í skyn, voru í
þessum hópi ýmsir þeir, sem hátt bar
aratugum saman í þjóðræknislegri og
jnenningarlegri starfsemi vorri, og höfðu
Par víðtæk áhrif, en við öll þessi kæru
felagssystkini vor eiga eftirfarandi
yóðlínur úr merkilegu erfiljóði eftir
Stephan G. Stephansson um vestur-ís-
lenzka landnámskonu:
En þjóðarheill auðgar þó ævi hvers
manns
ef eftir hann liggur á bersvæði lands
Parft handartak, hugrenning fögur.
Vér minnumst þessara látnu félags-
systkina vorra með einlægum saknaðar-
°g þakkarhuga og vér vottum hlutað-
eigendum innilega samúð vora. Mér
verða þessa stundina ofarlega í huga
hjartaheit bænarorð dr. Rúnólfs Mar-
teinssonar fyrir ættjörð vorri, sem hann
flutti nýlega í byrjun þings vors, og mér
hljómar í eyrum djarfmælt eggjanin til
dáða í snjöllum ættjarðarkvæðum Ein-
ars Páls Jónssonar. Hinir í hópi þeirra
félgassystkina vorra, sem létust á árinu,
myndu taka í sama streng og vilja við
oss segja hvert um sig í orðum Guð-
mundar skálds Guðmundssonar:
Láttu aldrei fánann falla,
fram til heiðurs stigið er.
Vissulega er góðum málstað að vinna
þar, sem er markmið félags vors: auðg-
un hérlends þjóðlífs með varðveizlu
og ávöxtun dýrkeyptra menningarverð-
mæta vorra. Minnug þess, hefir stjóm-
arnefndin á allmörgum fundum sínum
á árinu, og með starfi sínu utan þeirra,
leitazt við að ráða fram úr þeim málum,
sem síðasta þjóðræknisþing fól henni til
framkvæmda, og einnig haft með hönd-
um önnur mál, sem henni hafa borizt
til athugunar. Meðnefndarfólki mínu
þakka ég prýðilega samvinnu að vanda.
Læt ég svo eftirfarandi skýrslu segja
sögu starfsins á árinu.
Úlbreiðslu- og fræðslumál
Deildir víðs vegar eru hornsteinar
starfsemi þess, og framtíð þess að sama
skapi undir því komin, hvernig þeim
farnast, án þess að lítið sé gert úr gildi
einstakra félagsmanna, hvar sem þeir
standa í sveit. Það má því vera oss sér-
stakt ánægjuefni, að sumar deildirnar
hafa á árinu aukið félagatal sitt. Ber þar
fyrst að nefna deildina að Gimli, sem
bætt hefir við sig 32 félögum, eða meir
en þriðjungi alls deildarfólks. Er þar
sannarlega ágætlega að verki verið og
öðrum til fyrirmyndar, og ber þessi
mikla aukning félagsfólks vitni traustri
forystu í málum deildarinnar og blóm-
legu félagslífi. Samkvæmt upplýsingum
frá fjármálaritara hefir deildin „Esjan“
í Árborg bætt við sig rúmri tylft nýrra
félaga og deildin „Báran“ að Mountain
svipuðum hópi, og er það einnig mjög
þakkarvert. Loks er mér óblandið gleði-
efni að skýra frá því, að félagi voru
hefir bætzt mikill liðsauki, þar sem eru
12 nýir félagar úr hópi íslendingafélags-
ins í New York. Er það einkum að þakka
lifandi áhuga og dugnaði forseta þess
ágæta félags, frú Guðrúnu Miller, og
votta ég henni hér með þökk félags vors.
Jafnframt býð ég allt hið nýja félags-
fólk velkomið í hóp vorn, og um leið
aðra nýja félagsmenn og konur, sem
mér kann að vera ókunnugt um.