Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 102

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 102
84 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Sigurbjarnar biskups, en gat eigi, fremur en forseti, þegið það ágæta boð. Fyrir hönd félags vors þakka ég séra Eric Sigmar kveðjuflutning hans af vorri hálfu við vígslu hins nýja biskups heima á ættjörðinni. Heiðursfélagi vor, frú Jakobína John- son skáldkona í Seattle dvaldi sumar- langt á íslandi í boði vina sinna þar; flutti hún ávarp í íslenzka ríkisútvarp- inu og ræður á samkomum. í sambandi við heimför hennar, kom út á íslandi safn hinna ágætu ljóðaþýðinga hennar úr íslenzku á ensku, Noríhern Lights, og er það hin ákjósanlegasta gjafabók og kynningar um íslenzka ljóðagerð. Annar heiðursfélagi vor og velunnari, Valdimar Björnsson, fjármálaráðherra í Minnesota, dvaldi ásamt frú sinni á fs- landi rúman hálfan mánuð síðastliðið haust í boði Stúdentafélags Reykjavík- ur. Flutti hann fyrirlestra á vegum þess félagsskapar og íslenzk-ameríska félags- ins bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fjallaði einn fyrirlesturinn um það mál- ið, sem oss er nátengdast og ofarlega á dagskrá hjá oss á þjóðræknisþingum, um fsland og samband vort við það. Þarf ekki að fjölyrða um það, hve skörulega hefir þar verið á málunum haldið, enda voru fyrirlestrar Valdi- mars frábærilega vel sóttir og hlutu sambærilegar undirtektir áheyrenda. Hann ræddi meðal annars um manna- skipti yfir hafið, enda er þar um megin- þátt að ræða í samskiptum vorum við heimalandið. Og þegar um það atriði er rætt, minnumst vér sérstaklega prest- anna heiman um haf, sem dvalið hafa og dveljast vor á meðal. Með söknuði sáum vér á bak þeim séra Ólafi Skúla- syni og frú Ebbu úr Norður-Dakota- byggðinni síðastliðið haust, en bót í máli, að þau hurfu heim til ættjarðar- stranda. Vér þökkum þeim samveruna og samstarfið og biðjum þeim og dætr- um þeirra blessunar. Samtímis fögnum vér nýju prestunum heiman af fslandi, þeim séra Ingþóri Indriðasyni og séra Hjalta Guðmundssyni og fjölskyldum þeirra, bjóðum þau hjartanlega velkom- in í vorn vestur-íslenzka hóp og hér á þingið, en báðir eru þeir prestarnir á skemmtiskrá á samkomum í sambandi við þingið, og sleppa vitanlega ekki við að taka þátt í þingstörfum. Hollvinur vor og heiðursfélagi, dr. Árni Helgason, ræðismaður fslands í Chicago, dvaldi einnig heima á ætt- jörðinni rúmar þrjár vikur síðastliðið vor, og hefir sýnt oss þá miklu velvild að koma hingað norður til þess að flytja erindi á hinni almennu samkomu síð- asta þingkvöldið og sýna þar myndir, er hann tók í fyrrnefndri heimferð sinni. Býð ég hann hjartanlega velkominn á þingið og í vorn hóp. Prestana frá íslandi og skyldulið þeirra skoða ég þegar sem heimamenn í vorum hópi, en vér höfum einnig á árinu átt ýmsum góðum gestum að fagna heiman af ættjörðinni. Snemma sumars voru hér á ferðinni þeir Árni Bjarnarson og Gísli Ólafsson lögreglustjóri frá Akureyri, sem báðir eru oss áður kunnir af fyrri heimsókn- um. Voru þeir á íslendingasamkomum vestur á Kyrrahafsströnd og eins á „Fróns“-kvöldi hér í Winnipeg; flutti Árni erindi um samband og samvinnu íslendinga austan hafs og vestan, en hann er hinn mesti áhugamaður um þau mál, eins og kunnugt er, og hefir látið sig þau miklu skipta. Meðal annars er hann formaður nefndar þeirrar, sem vinnur að því að safna æviskrám Vestur- fslendinga og gefa þær út. Er þar um hið merkasta og þarfasta verk að ræða, og vil ég á ný hvetja fólk vort til þess að leggja til efni í æviskrárnar, en um- boðsmaður útgáfunefndarinnar er Davíð Björnsson bóksali hér í Winnipeg. Jafn- framt vil ég þakka Árna Bjarnarsyni forgöngu hans í þessu máli og öðrum oss til heilla, og tekur það einnig til samverkamanna hans. í haust var í kynnisferð um Banda- ríkin, í boði utanríkisráðuneytis þeirra, Jón Magnússon, fréttastjóri íslenzka rík- isútvarpsins; kom hann á íslendinga- slóðir á ýmsum stöðum og flutti hlýja kveðju heiman um haf á tíu ára afmæl- ishátíð elliheimilisins „Borgar“ að Moun- tain. Undanfarna þrjá mánuði dvaldi hér einnig, lengstum vestur í Vancouver, séra Halldór Kolbeins, sóknarprestur í Vestmannaeyjum ásamt frú sinni. Pré- dikaði hann við íslenzkar guðsþjónustur þar í borg og í Winnipeg, og flutti einn- ig erindi á samkomum deildarinnar „Ströndin“ í Vancouver, er hélt þeim hjónum virðulegt kveðjusamsæti. Öllum þessum kærkomnu gestum frá íslandi þökkum vér komuna, þáttinn, sem þeir hafa ofið í bræðrabandið yfir hafið, og óskum þeim velfarnaðar. Bróðurkveðjur milli vor og ættþjóðar- innar hafa einnig á árinu brúað hafið frá báðum ströndum. f fyrra vor flutti íslenzka ríkisútvarpið erindi um Þjóð- ræknisfélagið, sem forseti þess hafði tal- að á segulband í tilefni af 40 ára afmæli félagsins og jólakveðju frá honum síðar á árinu í félagsins nafni. Hliðstæðar kveðjur voru fluttar í útvarpinu frá þeim Gretti L. Johannson ræðismanni og frú Ingibjörgu Jónsson, ritstjóra Lög- bergs-Heimskringlu. Annaðist ritari fé- lagsins, próf. Haraldur Bessason, upp-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.