Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Síða 106
88
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
STATEMENT OF 652 HOME STREET
FOR 1959
Total Receipts for 1959 $3,384.00
Total Disbursements for 1959:
Taxes $ 499.86
Water Works rates 85.82
Fuel 502.13
Management 120.00
City Hydro,
purchase of stove 50.00
Sundries 13.69
Plumbing 96.85
Supplies and repairs 74.85
Electrical repairs 72.85
Stoker repairs 7.50
Chimney Cleaners 12.00
Boiler Inspection fee 5.00
Massie and Renwick,
insurance premium 87.50
Total disbursements $1,821.27
Payment to
Treasurer of Icel.
National League 1,562.73
TOTALS $3,384.00 $3,384.00
Winnipeg, January 12th, 1960.
Submitted by Mr. P. J. Petursson.
FramanritaSa reikninga höfum við
endurskoðað og höfum ekkert við þá að
athuga.
Winnipeg, Kanada, 17. febrúar 1960.
Davíð Björnsson, Jóhann Th. Beck,
endurskoðendur.
Flutningsmaður lagði til, að skýrslun-
um yrði vísað til væntanlegrar fjármála-
nefndar. Miss Elín Hall studdi, og var
tillagan samþykkt. Fjármálaritari hafði
einnig lagt til, að skýrslu sinni yrði vís-
að til væntanlegrar fjármálanefndar.
Frú Kristín Johnson studdi, og var til-
lagan samþykkt.
Dr. V. J. Eylands flutti skýrslu dag-
skrárnefndar.
Skýrsla dagskrárnefndar
1. Þingsetning.
2. Ávarp forseta.
3. Kosning kjörbréfanefndar.
4. Kosning dagskrárnefndar.
5. Skýrslur embættismanna.
6. Skýrslur deilda.
7. Kveðjur og skeyti.
8. Kosning allsherjarnefndar.
9. Skýrslur milliþinganefnda.
10. Útbreiðslumál.
11. Fjármál.
12. Fræðslumál.
13. Samvinnumál við ísland.
14. Útgáfumál.
15. Kosning embættismanna.
16. Ný mál.
17. ólokin störf og þingslit.
Flutningsmaður gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði viðtekin. Grettir L. Jo-
hannson studdi, og var tillagan sam-
þykkt.
Þá var tekið fyrir næsta mál á dag-
skrá, þ. e. skýrslur deilda. Frú Kristín
Thorsteinsson flutti ársskýrslu þjóð-
ræknisdeildarinnar „Gimli“.
Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar
„Gimli" 1959
Á síðastliðnu ári hafa verið haldnir
þrír starfs- og skemmtifundir og fjórir
stjórnarnefndarfundir.
Árið 1959 varð Þjóðræknisfélag fs-
lendinga í Vesturheimi 40 ára. „Gimli“
deildin ákvað að minnast þess atburðar
með því að auka félagatölu sína upp í
90. Takmarkinu er náð. Félagatala komst
upp í 92, og nú eru 94 félagar í deild-
inni. Annað takmark félagsmeðlima var
að gefa elliheimilinu „Betel“ peninga
fyrir húsmuni í eitt herbergi. Þann 15.
nóv. 1959 afhenti stjórnarnefndin $500.00
gjöf elliheimilinu fyrir húsmuni í tveggja
manna herbergi, og var síðara takmark-
inu þar með náð. Deildin hafði íslenzka
samkomu til arðs fyrir Betel 13. október
í kvikmyndahúsinu á Gimli. Ræðumað-
ur var prófessor Haraldur Bessason. Dr.
V. J. Eylands sýndi ágætar myndir frá
fslandi, sem hann skýrði snilldarlega.
Á samkomunni var efnt til happdrættis
til arðs fyrir Betel. Hafði deildin staðið
fyrir sölu miða um sumarið og haustið
áður. Unglingasöngflokkur deildarinnar
hefir sungið á deildarfundum, á sam-
komu lestrarfélagsins s. 1. vor, á íslend-
ingadeginum s. 1. sumar, á samkomu
okkar 13. október, á Betel s. 1. sumar og
á aðfangadagskvöld jóla í vetur. Á deild-
arfundi 19. maí var til skemmtunar
kvöldvökulestur úr Laxdælu, sem Miss
S. Stefánsson stjórnaði. Á fundi 19.
ágúst var Mrs. B. E. Johnson frá Win-
nipeg gestur okkar. Hún sýndi mikið
af íslenzkum munum og flutti skemmti-
legt erindi um ferð sína til íslands sum-
arið 1957. Samskotin, sem inn komu á
þessum fundi, gaf Mrs. Johnson í Betel
sjóðinn.
Á ársfundi deildarinnar 26. jan. 1960
sýndi skýrsla féhirðis, að tekjur á árinu
höfðu verið $893.59, en útgjöld $751.30.
Á banka 26. jan. 1960 átti deildin $142.29.
Stjórnarnefnd deildarinnar 1960 er
sem hér segir:
Forseti, Mrs. Kristín Thorsteinsson.
Varaforseti, Mrs. Elín Sigurðsson.
Ritari, Ingólfur N. Bjarnason.
Vararitari, Mrs. I. N. Bjarnason.