Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Side 107

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Side 107
þingtíðindi 89 Féhirðir, W. J. Árnason. Varaféhirðir, Mrs. W. J. Árnason. Fjármálaritari, Hjálmur V. Thorsteins- son. Varafjármálaritari, Mrs. John Stevens. Skjalavörður, Mrs. Guðrún Stevens. Kær kveðja til þingsins. Ingólfur Nikulás Bjarnason ritari. Flutningskona gerði að tillögu sinni, að skýrslan yrði viðtekin. Margir studdu, og var skýrslan viðtekin með samhljóða atkvæðum. Prófessor Haraldur Bessason flutti ársskýrslu delidarinnar „Frón“ í Win- nipeg. Ársskýrsla deildarinnar „Frón" í Winnipeg Skemmtifundir deildarinnar á árinu voru fimm talsins og má segja, að þeir væru allsæmilega sóttir. Frónsmótið var að venju langsamlega umfangsmest, og var gerður að því góður rómur. Aðal- ræðumaður á Frónsmóti þessu sinni var séra Jón Bjarman á Lundar. Aðrir þeir, sem þar komu fram, voru Miss Snjólaug Sigurðsson, sem sýndi deildinni mikla góðvild með því að koma fram á dag- skránni. Frú Elma Gíslason kom einnig fram með söngflokk. Einnig söng frúin einsöngva. Kann deildin frú Elmu mikla þökk fyrir dyggilegan stuðning fyrr og síðar. Þá söng Gústaf Kristjánsson ein- söngva, og einnig sungu þau frú Elma og hann tvísöngva. f aprílmánuði hélt deildin kvöldvöku, sem ritari félagsins tók saman og stjóm- aði. Var þar tekin til umræðu Brennu- Njálssaga og lesið úr sögunni. Þessir lásu upp: Miss Lára Sigurðsson, dr. Sveinn Björnsson, Miss Elín Hall, Miss Guðbjörg Sigurðsson, Vilhelm Krist- jánsson, Valdimar Lárusson, Axel Vopn- fjörð og Haraldur Bessason. Hinn 8. júní efndi deildin til fjöl- mennrar kvöldsamkomu. Þar fluttu rasður Árni Bjarnarson, bókaútgefandi frá Akureyri og sýndi hann einnig kvik- mynd. Einnig tók þar til máls Gísli Ól- afsson yfirlögregluþjónn frá Akureyri. Samkoma þessi þótti takast vel. Á sam- komum fyrri hluta vetrar komu fram Miss Gubjörg Sigurðsson, sem flutti er- indi um ferð sína til Norðurlanda og Miss Ingibjörg Bjarnason, sem ræddi um íslandsdvöl sína og sýndi gullfallegar litskuggamyndir, sem hún hafði tekið i ferðinni. Einnig voru á fyrri samkom- unni sýndar myndir, sem Mrs. Stem- dór Jakobsson lánaði deildinni til sýn- mgar. Það hefir orðið deildinni nokkur fjöt- ur um fót, að stjórnarmeðlimum fækk- aði um helming nokkurn hluta árs. Tveir fluttust brott, en tveir lágu sjúkir og áttu við heilsuleysi að stríða. Deildin fagnar því, að heilsufar þeirra varafor- seta og vararitara fer sífellt batnandi og óskar þeim alls hins bezta. Var það okkur sérstakt ánægjuefni, að þessir menn sáu sér fært að taka endurkosn- ingu. Hundrað dölum hefir verið varið til bókakaupa. Bókasafnið hefir verið í góðri umsjá, en frú Ólína Johnson hefir annazt bókavörzlu. Um 36 manns nota safnið reglulega og lánaðar hafa verið út um 1100 bækur á árinu. Á ársfundi deildarinnar voru þessi kjörin í stjórn félagsins: Forseti, Heimir Thorgrímsson; ritari, Haraldur Bessa- son; gjaldkeri, J. Asgeirsson; fjármála- ritari, Gunnar Baldvinsson; varaforseti, Steindór Jakobsson; vararitari, Valdimar Lárusson; varaféhirðir, Guttormur Finn- bogason; varafjármálaritari frú Marja Björnsson. Deildin mun sem fyrr styðja Þjóð- ræknisfélagið í hvívettna og býður full- trúa deilda velkomna á þing. Haraldur Bessason ritari. Flutningsmaður lagði til, að skýrslan yrði viðtekin, og var svo gert með sam- hljóða atkvæðum. Dr. Árni Helgason ávarpaði þinggesti þessu næst og sagði fréttir af íslend- ingum í Chicago. Séra Jón Bjarman flutti ársskýrslu þjóðræknisdeildarinnar á Lundar. Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar á Lundar Þjóðræknisdeildin ,,Lundar“ hélt fjóra starfsfundi á árinu, og voru allir fund- irnir haldnir á heimilum félagsmanna. Tvær samkomur voru haldnar. Sú fyrri var sumarmálasamkoma, sem haldin var 25. apríl. Ágóðinn af þeirri sam- komu, sem var $50.00, var látinn ganga til íslenzku vikublaðanna. Þá var höfð minningarathöfn við minnisvarða land- nema byggðarinnar þann 16. ágúst. Deildin gerðist meðlimur í Skógræktar- félagi íslands og greiddi árstillagið, $10.00. Deildin átti á bak að sjá nokkr- um meðlima sinna á árinu. Fyrst er að telja ritara deildarinnar, Tómas Guð- mundsson, og einnig þá Eirík Scheving og Einar H. Einarsson. Deildin starf- rækir lestrarfélag byggðarinnar. Nýlega aflaði_ lestrarfélagið sér margra nýrra bóka í skiptum fyrir aðrar eldri. Margir félagsmenn færa sér lestrarfélagið í nyt. Gísli S. Gíslason ritari.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.