Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Qupperneq 113
þingtíðindi
95
þess er farið á leit við deildirnar, að þær
taki málið til athugunar. Er ég nú að
vona, að þessi beiðni til deildanna kunni
að bera einhvern árangur, og mér virð-
ist, að ef hver deild hefði nefnd í mál-
inu, myndi það vera notadrýgst. Ég lít
svo á, að til þess að góður árangur náist,
verði Þjóðræknisfélagið að finna og
benda á réttu leiðina til starfs. Það ætti
að vera ritað um málið í nafni stjórnar-
nefndar og það skýrt þannig, að fólk
skilji, hvað um er að vera. Það þarf að
koma fram áskorun frá stjórnarnefnd
til fólksins að sinna þessu máli, eins og
það á skilið, og það sem allra fyrst.
Hingað til hafa þeir munir, sem fengizt
nafa, verið gefnir í safnið, og hafa menn
sýnt góðvilja sinn í því efni. En ef fé-
laginu er alvara með það að eignast
niyndarlegt minjasafn, ætti það að
greiða sanngjarnt verð fyrir þá muni,
sem eru að einhverju leyti verðmætir.
Yrði málinu með því rudd greiðari leið
til áframhalds og sigurs. Síðan áður-
nefndur listi var birtur, hefi ég með-
tekið mynd af Þingvöllum. Gefandinn
er Alla Vernon, en faðir hennar kom
jneð myndina frá fslandi 1930. Aðra gjöf
nefi ég meðtekið frá Kristínu Sveinsson,
en það er peysufataslifsi, sem Halldóra
Gunnlaugsson hafði gefið henni. Þá
var mér tilkynnt, að bókasafnið „Jón
Trausti“ í Blaine, Washington hefði hætt
störfum, og hefir séra Guðmundur John-
son boðið safninu árbækur félagsins frá
byrjun að gjöf. Þá hefir mér verið til-
kynnt, að tvær gipsmyndir væru geymd-
ar hjá séra P. M. Pétursson. Eru þær
eftir Maríu Jónsdóttur frá fslandi og
gefnar safninu af Rósu Hermannsson
vernon í Toronto.
Marja Björnson.
Flutningskona gerði að tillögu sinni,
a9 skýrslan yrði viðtekin. Frú Herdís
Eiríksson studdi, og var tillagan sam-
Pykkt með samhljóða atkvæðum. ólafur
Hallsson gerði þessu næst tillögu _ um,
að milliþinganefnd í minjasafnsmálinu
skyldi endurkosin. Sú tillaga var studd
°g samþykkt. f milliþinganefnd eiga
saeti frú Marja Björnson, frú Herdís
Eiríksson og frú Kristín Johnson.
Forseti, dr. Beck, las þessu næst sím-
|9nda kveðju frá biskupi íslands, herra
öigurbirni Einarssyni, en kveðjan hljóð-
ar þannig:
..Flyttu þinginu alúðarkveðjur mínar
°g blessunaróskir.“
Sigurbjörn Einarsson biskup.
Kveðjunni var fagnað með lófataki.
Séra Jón Bjarman gerði tillögu um
Þap, að forseta yrði falið að skipa
P^iggja manna allsherjarnefnd. Tillagan
Var studd og samþykkt. Frú Kristín
Johnson gerði því næst tillögu um að
fresta fundi til næsta morguns, og var
sú tillaga samþykkt.
Þriðji fundur
var settur kl. 10 f. h., þriðjud. 23. febr.
1960. Lesin var fundargerð síðasta fund-
ar og hún samþykkt. Forseti las að því
búnu kveðju frá herra Ásmundi Guð-
mundssyni fyrrverandi biskupi yfir fs-
landi. Kveðjan hljóðar þannig:
„Sendi þingi Þjóðræknisfélagsins kær-
ar kveðjur og beztu árnaðaróskir."
Ásmundur Guðmundsson.
Kveðjunni var fagnað með lófataki.
Síðan kynnti forseti fulltrúa deildar-
innar „Báran“ á Mountain, N.D., séra
Hjalta Guðmundsson og Guðmund Jón-
asson. Guðmundur Jónasson flutti að
því búnu ársskýrslu deildarinnar „Bár-
an“ á Mountain.
Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar
„Báran'1 á Mountain, N.D.
Litlar framkvæmdir hafa orðið á ár-
inu. En samt má þó segja, að stjórnar-
nefndin hafi verið vakandi og á verði
eins og vera bar. Það hafa verið haldnir
tveir almennir fundir, og voru þeir
fremur fámennir, en góðmennir að
vanda. Þrír nefndarfundir voru haldnir.
og fjölluðu þeir um undribúning 17.
júní samkomunnar, sem leitazt var við
eftir mætti að koma í framkvæmd. En
af ófyrirsjáanlegum orsökum varð að
hætta við þá samkomu, þó að slæmt
þætti.
í tilefni af fimmtán ára afmæli lýð-
veldisins íslenzka, efndi sóknarprestur-
inn, séra Ólafur Skúlason, til sérstakr-
ar hátíðarguðsþj ónustu í Víkurkirkju að
Mountain, kl. 2 e. h„ sunnud. 21. júní.
Séra ólafur þjónaði fyrir altari og
stjórnaði messugjörðinni, er hófst með
því, að forseti „Báru“ las bæn í kórdyr-
um. Blandaður kór söng íslenzka sálma
undir stjórn T. Thorleifson frá Garðar,
N.D. Ræðuna við guðsþjónustuna flutti
dr. Richard Beck. Hóf hann mál sitt með
því að flytja kveðjur og heillaóskir for-
seta íslands. En ræðuefnið var „Þá hug-
sjónir rætast“, og vísast í þessu sam-
bandi til Lögbergs-Heimskringlu, en
ræðuna er að finna á fyrstu síðu jóla-
blaðsins 24. des. 1959.
Einnig skal þess getið hér, að á 8. síðu
Lögbergs, 16. júlí 1959 er fallega rituð
grein með fyrirsögninni „Afmælis ís-
lenzka lýðveldisins minnzt í N.D.“, og
vísast þangað til frekari upplýsinga. En
við þá grein hefir hér verið stuðzt að
nokkru leyti.
Um guðsþjónustu þá, sem hér hefir