Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 114

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 114
96 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA verið minnzt, má með sanni segja, að yfir henni hvíldi hátíðarblær. Hún var þrungin af uppbyggilegu efni og ánægju- leg í alla staði, og hafi séra Ólafur, dr. Beck og söngflokkurinn hjartans þökk fyrir framtakssemina og frammistöð- una. Þess skal getið, sem gjört er. Kveðjusamsæti var haldið fyrir séra Ólaf og frú Ebbu Skúlason 30. sept. 1959 í samkomuhúsi Mountainbúa. íslenzku söfnuðirnir stóðu fyrir samsætinu og buðu „Báru“ að taka þátt í því, og þáði hún boðið með þökkum og fól forseta að koma þar fram fyrir sína hönd og segja nokkur orð, sem hann og gjörði, bæði í bundnu máli og óbundnu. Einnig afhenti hann prestshjónunum bréf frá deildinni, sem hafði að geyma dálítinn fjársjóð fyrir þau til heimferðarinnar. Fjölyrði ég svo ekki frekar um þetta efni, en vísa til vikublaðs okkar, en 8. október 1959 er þar að finna grein með fyrirsögninni „Kveðjusamsæti". Er þar fróðleik að finna, enda er próf. Har- aldur Bessason höfundur greinarinnar, og hafi hann þökk fyrir verkið. Fjórtán nýir meðlimir hafa bætzt í hópinn á liðnu ári, og býð ég þá hjartan- lega velkomna í okkar hóp. Meðlimatala „Báru“ komst upp í 60 á árinu, og er það nokkrum meðlimum fleira en á und- anförnum fjórum árum, og er ánægju- legt til þess að vita. En því miður hafa verið höggvin skörð í fylkinguna, þar sem prestshjónin fluttust burt, og sökn- um við þeirra úr okkar fámenna hóp. Á árinu hafa tveir meðlimir látizt, svo að mér sé kunnugt um, en það voru þau Jakob Erlendsson, d. 28. ágúst 1959, og Mrs. Lína Stratton, d. 27. nóv. 1959. Á fundi 6. febrúar 1960 voru þessir kosnir í stjórnarnfend „Báru“: G. J. Jón- asson, forseti; S. A. Bjornson, varafor- seti; H. B. Grímson, skrifari; séra Hjalti Guðmundsson, varaskrifari; Joseph An- derson, féhirðir; H. J. Bjornson, varafé- hirðir; O. G. Johnson, fjármálaritari. G. J. Jónasson, forseti H. B. Grímson, skrifari. Flutningsmaður lagði til, að skýrslan yrði viðtekin. Sú tillaga var einróma studd og samþykkt. Því næst skipaði forseti í allsherjarnefnd. Allsherjarnefnd: Sr. P. M. Pétursson Tímóteus Böðvarsson Dr. S. E. Bjornson. Ritari flutti þessu næst munnlega skýrslu um míkrófilmun vestur-íslenzkra kirkjubóka. Kvaðst hann hafa unnið mjög að þessu verki undanfarna mán- uði, og að með aðstoð ríkisstjórnar fs- lands væri nú búið að filma meginhluta umræddra kirkjubóka, en eintak af filmunum kvaðst hann hafa sent Þjóð- skjalasafni fslands í Reykjavík. Þessu næst sagði frú Herdís Eiríksson fundargestum frá íslandsferð sinni, en hún hafði dvalizt á fslandi sumarmán- uðina. Var gerður hinn bezti rómur að máli frúarinnar. Árni Helgason vakti máls á því, að athugandi væri, hvort Þjóðræknisfélagið gæti ekki aflað eftir- prentana þeirra á íslenzkum málverk- um, sem Ragnar Jónsson bókaútgefandi á íslandi hefir látið gera. Samþykkt var samkvæmt tillögu frá féhirði, G. L. Jo- hannson, að vísa málinu til væntanlegr- ar stjórnarnefndar. Formaður kjörbréfanefndar, Guðmann Levy, tilkynnti þessu næst, að fulltrúar deildarinnar „Báran“ á Mountain færu með 20 atkvæði hvor fyrir deild sína, en eins og fyrr getur, voru mættir á þingi þeir séra Hjalti Guðmundsson og Guðmundur Jónasson. Séra Jón Bjarman gerði tillögu þess efnis, að frú Eleanor Sveinbjörnsson, ekkju dr. Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar tónskálds yrði sent heillaóskaskeyti frá þinggestum í til- efni af níræðisafmæli hennar. Var sú tillaga þegar samþykkt og ritara falið að leiða málið til lykta. Ritari ræddi nokkuð um útgáfu á þýðingu Vilhelms Kristjánssonar á bók frú Elínborgar Lárusdóttur, „Hvíta höllin“, en því máli var vísað til stjórnarnefndar til nánari athugunar. Þessu næst gerði frú Her- dís Eiríksson tillögu um, að forseta yrði falið að skipa fimm manna útbreiðslu- málanefnd. Var sú tillaga studd af frú Hrund Skúlason og síðan samþykkt. Úlbreiðslumálanefnd: Séra P. M. Pétursson Stefán Eymundsson Frú Marja Björnson J. J. Johnson Guðmundur Jónasson. Ólafur Hallsson gerði tillögu um, að forseta yrði falið að skipa þriggja manna fjármálanefnd. Sú tillaga var studd og samþykkt. Fjármálanefnd: Guðmann Levy J. B. Johnson Daniel Lindal. Ritari gerði þessu næst tillögu um, að forseta yrði falið að skipa fimm manna þingnefnd í fræðslumálum. Fru Louisa Gíslason studdi, og var tillagan síðan samþykkt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.