Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Qupperneq 9
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 9
GuðbjörG Pálsdóttir
Menntavísindasviði Háskóla íslands
ólöf björG steinþórsdóttir
university of nortHern iowa
Uppeldi og menntun
20. árgangur 2. hefti 2011
Raddir ungs fólks um stærðfræðinám
Mikilvægt er fyrir kennara og aðra sem bera ábyrgð á stærðfræðinámi að hlusta á nemendur
og þekkja hugmyndir þeirra og viðhorf . Hér er sagt frá rannsókn þar sem leitað var eftir
hugmyndum og viðhorfum ungs fólks varðandi stærðfræðinám . Rannsóknargagna var aflað
í tveimur rannsóknum . Gögnin voru greind að nýju út frá rannsóknarspurningunni
Hvaða sjónarmið og hugmyndir hefur ungt fólk um stærðfræði og stærðfræðinám? Notuð
var þemagreining til að greina þau mynstur sem fram komu . Tvö meginþemu greindust,
hefðbundið stærðfræðinám og kynjamyndir . Viðmælendur vísa til reynslu sinnar af hefð-
bundinni stærðfræðikennslu . Þeir telja að mikilvægt sé að skilja stærðfræði til að hafa ánægju
og gagn af henni . Orðræða þeirra er kynjuð og hefðbundin viðhorf til námshegðunar
stúlkna og drengja koma berlega í ljós . Viðmælendur telja að þó að væntingar til náms- og
starfsvals séu kynbundnar séu þeim sjálfum ýmsir möguleikar opnir .
Efnisorð: Viðhorf, stærðfræðinám, stærðfræðikennsla
inn gang ur
Síðastliðin 40 ár hefur fræðasviðið stærðfræðimenntun vaxið og ýmsar hliðar stærð-
fræðináms verið rannsakaðar. Áhrif viðhorfa og hugmynda nemenda um stærðfræði-
nám er eitt af þeim sviðum sem skoðuð hafa verið í ýmsum erlendum rannsóknum.
Þá er sjónum gjarnan beint að tengslum námshegðunar og námsárangurs við ýmsa
félagslega þætti. Dæmi um viðfangsefni slíkra rannsókna eru trú á eigin getu, sjálfs-
traust, áhrif kynferðis á stærðfræðinám, viðhorf nemenda og kennara til stærðfræði
og áhrif foreldra á stærðfræðinám barna sinna (Bishop og Forgasz, 2007; Boaler, 2008;
Brandell, Nyström, Staberg og Sundqvist, 2003; Diversity in Mathematics Education
Center for Learning and Teaching, 2007; Leder, 1992; OECD, 2001, 2002, 2003, 2004,
2005, 2007a, 2007b; Pehkonen, 1994; Pehkonen og Safuanov, 1996). Niðurstöður þessara
erlendu rannsókna á viðhorfum ólíkra hópa eru að þau eru talin hafa mikil áhrif á
stærðfræðinám. Fáar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu sviði en þó hafa